„Mér sýnist allt stefna í að Halla Tómasdóttir verði næsti forseti Íslands“

Halla Tóm­as­dóttir er með afger­andi for­ystu í for­seta­kosn­ing­unum eftir að atkvæði hafa verið birt úr öllum kjör­dæmum, þar sem hún fékk flest atkvæði alls staðar. Katrín Jak­obs­dóttir virð­ist vera búin að við­ur­kenna ósigur.

„Mér sýnist allt stefna í að Halla Tómasdóttir verði næsti forseti Íslands“
Tær gleði Halla Tóm­as­dóttir og fjöl­skylda hennar fagna eftir upp­lestur talna skömmu í nótt. Mynd: Golli

Komnar eru tölur úr öllum kjör­dæmum og búið er að telja meg­in­þorra atkvæða í þeim stærstu. Samkvæmt stöð­unni eins og hún er nú verður Halla Tóm­as­dóttir, for­stjóri B Team, næsti for­seti Íslands. Hún hefur fengið flest atkvæði í öllum kjör­dæmum. Sem stendur mælist hún með 32,4 pró­sent fylgi og er með tölu­vert for­skot á Katrínu Jak­obs­dóttur, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra. Halla vildi sjálf ekki ganga að því vísu að hún væri búin að vinna í við­tali við RÚV en Björn Skúlason, eig­in­maður hennar, velti hins vegar fyrir sér hvernig það yrði að búa á Bessa­stöðum í sama við­tali. 

Viðbrögð Höllu við tölum úr Reykja­vík­ur­kjör­dæmi norðurGolli

„Mér sýn­ist allt stefna í að Halla Tóm­as­dóttir verði næsti for­seti Íslands,“ sagði Katrín, sá for­seta­fram­bjóð­andi sem stefnir í að lenda í öðru sæti í kosn­ing­unum í dag, í við­tali við RÚV rétt fyrir klukkan eitt í kvöld. Hún óskaði Höllu til ham­ingju með sig­ur­inn og sagði að hún vissi ekk­ert hvað tæki við. Aðspurð hvort hún myndi bjóða sig aftur fram til for­seta var svarið skýrt: „Nei, þetta geri ég ekki aftur.“

Katrín er sem stendur með 26,3 pró­sent atkvæða og því munar 6,1 pró­sentu­stigum á henni og Höllu. Tveir aðrir fram­bjóð­endur eru með fylgi í tveggja stafa tölu: Halla Hrund Loga­dóttir orku­mála­stjóri er með 15,4 pró­sent og Jón Gnarr, leik­ari og fyrr­ver­andi borg­ar­stjóri, er með 11,4 pró­sent. Sá fram­bjóð­andi utan Höllu Tóm­as­dóttur, sem er að fá miklu meira fylgi en hún mæld­ist með í skoð­ana­könn­unum, sem er lengst frá því að ná þeim árangri sem spár gerðu ráð fyrir er Baldur Þór­halls­son. Hann hefur fengið 8,1 pró­sent atkvæða. 

Sennileg for­seta­hjónBjörn Skúlason kyssir eig­in­konu sína á kosn­inga­vöku Höllu Tóm­as­dóttur í Grósku í nótt.

Arnar Þór Jónsson, vara­þing­maður og fyrr­ver­andi dóm­ari, er með fimm pró­sent atkvæða og aðrir minna. Flestir hinna fram­bjóð­end­anna virð­ast ætla að verða tölu­vert langt frá því að ná 1.500 atkvæðum, sem þýðir að þeir fengu ekki öll atkvæði þeirra sem mæltu með þeim í fram­boð.

Búið er að telja 86.551 atkvæði.

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • SSS
    Sigurjón Smári Sverrisson skrifaði
    Það kann nú varla góðri lukku að stýra að halla tómasdóttir skuli verða næsti forseti Íslands.
    Því ég er sannfærður um að hún muni fá lánaðann „samþykkt“, stimpilpúðann sem kajak var búin að láta gera fyrir sig til að geta flýtt fyrir sammþykki á öllum þeim skíta frumvörpum sem verða send á hana og þar með talið afhending iðurlega „rangnefnt sala“, á Landsvirkjun í hendur auðróna og landráða hyskis Íslands.
    1
  • Sigmundur Guðmundsson skrifaði
    HHG-íhaldið og stórútgerðin töpuðu forsetakosningunum 2024

    :-) :-) :-) :-) :-) :-)
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár