RÚV frestaði sýningu dagskrárliða til að forðast tap á síðasta ári

RÚV fékk 5,7 millj­arða króna úr rík­is­sjóði í fyrra og afl­aði 2,9 millj­arða króna tekna af sam­keppn­is­rekstri, sem er aðal­lega sala á aug­lýs­ingum. Tekjur fyr­ir­tæk­is­ins hafa auk­ist mikið á síð­ustu árum, ann­ars vegar vegna þess að íbúum lands­ins hefur fjölgað og hins vegar vegna þess að aug­lýs­inga­tekjur hafa auk­ist.

RÚV frestaði sýningu dagskrárliða til að forðast tap á síðasta ári
Útvarps­stjóri Í árs­reikn­ingi RÚV kemur fram að heild­ar­laun Stefáns Eiríks­sonar útvarps­stjóra hafi verið 35 millj­ónir króna í fyrra, eða 2,9 millj­ónir króna á mán­uði að með­al­tali. Mynd: Ragnar Visage

RÚV hagn­að­ist um 6,1 milljón króna í fyrra eftir að hafa tapað 164 millj­ónum króna árið áður. Rekstr­ar­tekjur opin­bera fjöl­miðla­fyr­ir­tæk­is­ins juk­ust um 817 millj­ónir króna milli ára og hafa vaxið um tæp­lega 1,7 millj­arð króna á tveimur árum. Þær voru sam­tals 8,7 millj­arðar króna á síð­asta ári. 

Rekstr­ar­hagn­aður jókst um 147 millj­ónir króna milli ára og var 484 millj­ónir króna. Hrein fjár­magns­gjöld voru svipuð, eða 478 millj­ónir króna. Því fór þorri rekstr­ar­hagn­að­ar­ins í að borga af skuldum á árinu 2023.

„Annar rekstr­ar­kostn­aður“, sem er ekki sér­stak­lega skil­greindur, var um 4,1 millj­arðar króna á árinu 2023 á meðal að laun og launa­tengdur kostn­aður jókst um tæp­lega 15 pró­sent og var tæp­lega 3,7 millj­arðar króna. Gengið hefur nokkuð á eigið fé RÚV á und­an­förnum árum en eig­in­fjár­hlut­fallið var 28,5 pró­sent árið 2018. Um síð­ustu ára­mót var það komið niður í 19,1 pró­sent. Óráð­stafað eigið fé helm­ing­að­ist milli ára og var …

Kjósa
14
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • AÓ
    Anna Ólafsdóttir skrifaði
    Spörum með því að hætta við þátttölu í Eurovision
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár