Segir Ísland vera að kaupa dömubindi fyrir úkraínska herinn til að fela sprengjukaup

Formaður Mið­flokks­ins segir að Íslend­ingar ættu ekki að reyna að fela sprengju­kaup fyrir Úkra­ínu­her með „„jafn­rétt­is­á­herslum” í formi þess að kaupa her­bún­inga með kvenna­sniði og dömu­bindi fyrir úkra­ínska her­inn.“ Utan­rík­is­ráð­herra segir hann vera „meiri rea­lista en þetta teik.“

Segir Ísland vera að kaupa dömubindi fyrir úkraínska herinn til að fela sprengjukaup
Hlaðið í færslu? Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son hefur farið mik­inn á sam­fé­lags­miðlum síð­ustu daga vegna stuðn­ings Íslands við úkra­ínska her­inn. Mynd: Stundin / Davíð Þór

„Er ég gam­al­dags ef mér finnst að það eigi ekki að senda konur í stríð? Og að Íslend­ingar ættu ekki að reyna að fela sprengju­kaup með „jafn­rétt­is­á­herslum” í formi þess að kaupa her­bún­inga með kvenna­sniði og dömu­bindi fyrir úkra­ínska her­inn?“ Þetta skrif­aði Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins, á sam­fé­lags­mið­il­inn X, áður Twitter, seint í gær­kvöldi. 

Tilefnið er að á mánu­dag var til­kynnt að Ísland muni styðja við inn­kaup Tékk­lands á skot­færum fyrir Úkraínu og leggja fjár­muni í kaup á bún­aði fyrir konur í úkra­ínska hernum. Í til­kynn­ingu frá utan­rík­is­ráðu­neyt­inu sem birt­ist á vef stjórn­ar­ráðs­ins vegna þessa sagði að lítið fram­boð hefði verið af skot­færum í Úkraínu og því hefði Tékkland, í sam­vinnu við helstu sam­starfs­ríki Íslands, tekið að sér að útvega skot­færi fyrir stór­skota­lið Úkraínu sem gegnir lyk­il­hlut­verki við varnir lands­ins. Gert sé ráð fyrir að um tveimur millj­ónum evra verði varið til verk­efn­is­ins af Íslands hálfu. 

Þá muni Ísland líka styðja inn­kaup á bún­aði fyrir konur í úkra­ínska hernum, en hlut­fall þeirra í hernum hefur vaxið mjög á síð­ustu árum, sér­stak­lega eftir að inn­rás Rússa hófst. „Til að koma til móts við þarfir kven­kyns her­manna er lagt upp með að útvega ein­kenn­is­föt, skot­held vesti, læknis- og hrein­læt­is­vörur fyrir 75 millj­ónir króna,“ segir í til­kynn­ing­unni. 

Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra og fyrr­ver­andi utan­rík­is­ráð­herra, svar­aði Sigmundi Davíð á X og sagði konur taka ákvörðun um að verja móð­ur­land sitt. „Dömu­bindi fyrir úkra­ínska her­inn? Hættu nú alveg. Þú ert meiri rea­listi en þetta teik. Erum ekk­ert að fela. Erum að styðja við vopna­kaup sem þau þurfa til að verja land sitt og gildin sem við byggjum til­veru okkar á.“

Á herlaus þjóð að kaupa vopn?

Sig­mundur Davíð hefur gagn­rýnt stuðn­ing­inn við inn­kaup á skot­færum fyrir úkra­ínska her­inn víðar en í ofan­greindri færslu. Hann birti líka færslu á Facebook fyrri part­inn í gær þar sem áherslan í gagn­rýn­inni var þó tölu­vert önnur. 

Þar skrif­aði hann að rík­is­stjórnin áformi „nú að Ísland taki þátt í kaupum á allt að 1,5 millj­ónum sprengikúlna fyrir fall­byssur (við eigum ekki einu sinni orð yfir fyr­ir­bærið). Einkum eru þetta 155 mm „kúlur” eins og sjást á mynd­inni. Þetta er gert undir for­ystu Tékka sem afhenda eigin sprengjur til Úkraínu og afla fleiri eftir því sem fjár­fram­lög skila sér.“

Þótt hann geri sér fulla grein fyrir því að ekki sé hægt að standa í stríði án skot­færa hefði hann talið betra að halda í fyrri verka­skipt­ingu. „Þ.e. að her­lausa Ísland héldi sig við þá stefnu að veita stuðn­ing með lyfjum, lækn­inga­tækjum og slíku en hern­að­ar­þjóðum væri eft­ir­látið að sjá um sprengju­kaup og aðra vopna­miðlun.“

Í áður­nefndri til­kynn­ingu á stjórn­ar­ráðsvefnum, þegar greint var frá stuðn­ingi Íslands við kaupin, var haft eftir Bjarna Bene­dikts­syni, utan­rík­is­ráð­herra og for­manni Sjálf­stæð­is­flokks­ins, að brýnt sé að halda áfram að styðja Úkraínu af krafti. „Þannig leggjum við ekki aðeins okkar af mörkum til varnar íbúum lands­ins, heldur sömu­leiðis alþjóða­lögum í stærra sam­hengi og okkar eigin örygg­is­hags­munum. Stefna um stuðn­ing við Úkraínu sem nú liggur fyrir Alþingi mun ramma þennan stuðn­ing inn til lengri tíma, en á sama tíma ætlum við áfram að hreyfa okkur hratt og styðja við frum­kvæð­is­verk­efni af þessu tagi.“

Þar vísar Bjarni í þings­á­lykt­un­ar­til­lögu um stefnu um stuðn­ing við Úkraínu til fimm ára sem hann kynnti á Alþingi í síð­ustu viku. Markmið stefn­unnar er að festa umfangs­mik­inn stuðn­ing Íslands við Úkraínu í varn­ar­stríði sínu gegn inn­rás­ar­liði Rúss­lands í sessi til lang­frama. Stuðn­ingur Íslands við Úkraínu frá því að stríðið braust út nemur 5,7 millj­örðum íslenskra króna sem runnið hafa til varnar-, mann­úðar- og efna­hags­stuðn­ings við landið. Hægt er að lesa til­lög­una hér.

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • JA
    Jón Arnarson skrifaði
    Það er eingum sæmandi, hvað þá fyrirverandi forsætisráðherra, að vera með svona samanburð!
    0
  • JE
    Jóhann Einarsson skrifaði
    En við ætlum bara að halda áfram að styðja við útrýmingarnar á Gæsa, það er auðvitað alltaf spurning um hvítuna.
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár