Páskamatur úr fiskimjöli og bananahlaup en „engin sérstök páskamatarhefð“

Elda­buskan Nanna Rögn­valds­dóttir rabbar um páskamat­inn og þá skort á hefðum frekar en hefðir. En auð­heyri­lega hefur land­inn fiktað við ýmis­legt í páska­matseld­inni, eins og til dæmis að elda héra, hátíð­ar­mat úr fiski­mjöli og skellt í ban­ana­hlaup.

Páskamatur úr fiskimjöli og bananahlaup en „engin sérstök páskamatarhefð“
Nanna Rögn­vald­ar­dóttir er haf­sjór fróð­leiks um mat­ar­hefðir land­ans og líka skort á þeim en hún segir enga sér­staka hefð vera í páskamatnum. Mynd: Heiða Helgadóttir

Nanna Rögn­vald­ar­dóttir er svo ást­sæll höf­undur mat­reiðslu­bóka að hana þarf vart að kynna, auk þess að hafa slegið í gegn um síð­ustu jól með skáld­sög­unni Valskan. En spurð um starfs­titil fyrir þetta við­tal um páskamat­inn kveðst hún vera elda­buska. Skemmti­legt er þó að segja frá því að í kynn­ing­ar­texta For­lags­ins fyrir verk Nönnu kemur fram að hún hafi þótt skelfi­lega vondur kokkur fram undir þrí­tugt. Svo allir hljóta að eiga sér von!

Spjallið hefst á að spyrja Nönnu hvað væri snið­ugt fyrir ein­hleypa og jafn­vel blanka for­eldra að elda í páskamat­inn. Hún nefnir þá kjúkling og kveðst sjálf gjarnan elda eitt­hvert fugla­kjöt um pásk­ana. „Önd eða kalkún, eitt­hvað slíkt. Eða bara kjúkling. Það er hægt að gera kjúkling hátíð­legan og það getur verið ágætt fyrir fólk sem hefur ekki of mikið á milli hand­anna því hann er ekki dýr.“

„Lömbin fara ekki að fæðast fyrr en í …

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigðis­kerf­inu

Eng­inn á Ís­landi hef­ur lif­að af jafn al­var­leg­an mænusk­aða og Katla Guðna­dótt­ir sem lenti í dul­ar­fullu bíl­slysi 22 ára göm­ul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerf­ið hef­ur ekki af­greitt beiðni henn­ar um heima­þjón­ustu. Bar­átta henn­ar hef­ur þeg­ar skil­að for­dæma­lausri ákvörð­un í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líð­ur henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lif­að slys­ið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár