Greiddi 450 þúsund krónur fyrir bílastæði í miðbænum á síðasta ári

„Ekki refsa fólki sem vinnur í miðbæ Reykja­víkur,“ segir Halldór Jónsson, yfir­þjónn á Mat­ar­kjall­ar­anum. Á síð­asta ári greiddi hann næstum hálfa milljón króna bara í bíla­stæða­kostnað. Hann sótti um áskrift í bíla­stæða­hús­inu á Vest­ur­götu fyrir tveimur árum en veit ekki hvort eða hvenær hann fái þá áskrift.

Greiddi 450 þúsund krónur fyrir bílastæði í miðbænum á síðasta ári
Halldór Jónsson greiddi háar upp­hæðir á síð­asta ári fyrir bíla­stæði. Ofan á það bætt­ust við greiðslur af sjálfs­á­byrgð eftir að keyrt var á bíl­inn hans þrisvar sinnum. Mynd: Golli

„Ég fór yfir reikn­ing­ana á síð­asta ári og reikn­aði út hvað ég er að borga í bíla­stæði yfir árið. Sú upp­hæð var 450 þús­und krónur,“ segir Halldór Jónsson, yfir­þjónn á Mat­ar­kjall­ar­anum. 

„Það á ekki að refsa fólki sem vinnur í miðbæ Reykja­víkur. „Gjörðu svo vel, þú þarft að borga 370 til 450 þús­und á ári fyrir að leggja bílnum þínum í miðbæ Reykja­víkur.“ Af því þú býrð í Kópavogi, Hafn­ar­firði, skiptir ekki máli. Bara utan höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins.“ Halldór hefur starfað í miðbæ Reykja­víkur á ólíkum veit­inga­stöðum síðan 2016. Hann býr í Hafn­ar­firði og vinnur oft til tólf á mið­nætti. Þá er strætó hættur að ganga og því kýs Halldór að fara á einka­bíl í vinn­una. 

Gríðarlegur kostnaður 

Bíla­stæða­hús eru víðs vegar um Reykja­vík­ur­borg. Halldór sótti um pláss í bíla­stæða­hús­inu á Vest­ur­götu fyrir tveimur árum síðan og hefur enn ekk­ert heyrt. Mán­að­ar­kortið í bíla­stæða­húsið á Vest­ur­götu kostar 18.200 krónur. …

Kjósa
13
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (6)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Daði Guðbjörnsson skrifaði
    Í öðrum stórborgum nota menn almennings samgaungur ef þeir fara í miðborginna, þó að ég viti ekki um borg sem er það stór að hún sé með hærri bílastöðu gjöld heldren Víkinn.
    0
  • MGÁ
    Marteinn Gísli Árnason skrifaði
    Þu hlytur að vera með mjog goð launog það er gott.
    Eg skal taka að mer að skutla þer i og ur vinnu fyirir miklu lægra verð
    auk ymiskonar skutls sem þu þarft.
    0
  • BHS
    Birkir Helgi Stefánsson skrifaði
    „Ferðir til og frá vinnustað á höfuðborgarsvæðinu (Reykjavík, Kópavogur, Garðabær, Hafnarfjörður, Mosfellsbær og Seltjarnarnes), á þeim tíma sem strætisvagnar ganga ekki, greiðast af vinnuveitanda.“
    - Kjarasamningur milli VR og Samtaka atvinnulífsins
    3
  • Martin Swift skrifaði
    „Hann spyr sig hvers vegna hann geti þá ekki fengið betri kjör á bílastæðum líkt og þeir sem búi í Reykjavík.“

    Hér er náttúrulega komin góð lausn. Hann segist vilja þau réttindi sem íbúum standi til boða vegna þess að það er sem hann búi þar, svo auðvitað ætti hann að þá líka að vilja greiða útsvar í borginni.
    2
  • HÖH
    Hákon Örn Hákonarson skrifaði
    Í alvöru! Þetta er ekki frétt þetta er meðvirkni.
    2
  • Hafþór Bryndísarson skrifaði
    Hann er að kvarta undan því að það séu ekki nægilega mörg stæði en vill ekki taka þátt í lausninni sem er færri bílar eða fleiri stæði. Þessar lausnir eru ekki ókeypis, lægra gjald fyrir alla í hans stöðu myndi ekki leiða til þess að hann ætti auðveldara með að finna stæði heldur þveröfugt.
    4
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár