Friðrik vann bæði fyrir ríkið og útgerðir sem keyptu skip af spænsku fyrirtæki

Fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri LÍU, Friðrik Arn­gríms­son, hefur komið að við­skiptum við spænska skipa­smíða­stöð fyrir íslenska ríkið og einnig fyrir hönd íslenskra útgerða fyrir og eftir að hann var full­trúi rík­is­ins í nefnd við smíði nýs hafrann­nsókna­skips sem kostar fimm millj­arða króna. Vinna Friðriks í smíða­nefnd haf­rann­sókna­skips­ins vakti athygli og deilur á sínum tíma af því hann er sjálfur skipa­miðl­ari.

Friðrik vann bæði fyrir ríkið og útgerðir sem keyptu skip af spænsku fyrirtæki
Friðrik með í ráðum allan tím­ann Gunnar Tómasson, for­stjóri og eig­andi Þor­bjarnar, sést hér við hlið Friðriks J. Arn­gríms­sonar lengst til vinstri í nóv­em­ber í fyrra þegar nýi tog­ari útgerð­ar­innar var sjó­settur á Spáni. Gunnar segir að Friðrik hafi komið að samn­inga­við­ræðum um smíði tog­ar­ans allan tím­ann.

Friðrik Arn­gríms­son, skipa­miðl­ari og fyrr­ver­andi for­maður smíða­nefndar nýs haf­rann­sókna­skips fyrir hönd íslenska rík­is­ins, hefur ýmiss konar tengsl við skipa­hönn­uð­inn og spænsku smíða­stöð­ina sem samið var við um að smíða skipið. Hann átti þátt í að skipu­leggja smíða­vinn­una, sem leiddi til þess að samið var við skipa­smíða­stöð­ina, Astill­eros Armón. Fyrir þetta, og í kjöl­farið, hefur hann komið að samn­ingum útgerða hér á landi við spænsku skipa­smíða­stöð­ina. 

Eitt af því sem öll þessi verk­efni eiga sam­eig­in­legt er að íslenska fyr­ir­tækið Skipasýn teiknar skipin og Astill­eros Armón smíðar þau. Friðrik hefur nú komið að skipu­lagn­ingu og eða samn­ings­gerð um smíði fjög­urra skipa hjá spænska fyr­ir­tæk­inu á liðnum árum, eitt er haf­rann­sókna­skipið og svo þrír tog­arar. 

„Hann var alltaf okkar ráð­gjafi og full­trúi í öllu ferl­inu“
Gunnar Tómasson,
fram­kvæmda­stjóri Þor­bjarnar, tjáir sig um vinnu Friðriks við kaup á tog­ara af spænsku skipa­smíða­stöð­inni

Vinna …

Kjósa
24
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • JA
    Jón Arnarson skrifaði
    Er það ekki íslensk hefð að vera þrefaldir í roði:
    HUGSA UM SIG
    Hugsa um kaupanda
    Hugsa um seljanda

    Ha – er það ekki!?!?!
    Ótrúlega margir þjónar samfélagsins falla undir þetta!?!?
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár