Fjármálaráðherra ósammála Nóbelsverðlaunahafa í hagfræði

Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir seg­ist vera ósam­mála Joseph Stiglitz, Nóbels­verð­launa­hafa í hag­fræði, um að hækkun stýri­vaxta seðla­banka víða um heim hafi verið olía á eld verð­bólg­unnar. Í ræðu á þingi í óund­ir­búnum fyr­ir­spurnum í dag sagði Þórdís að í til­felli Íslands hafi verið rétt ákvörðun að hækka vexti og benti á að hug­myndir Stiglitz gengu gegn meg­in­þorra hag­fræði­kenn­inga.

Fjármálaráðherra ósammála Nóbelsverðlaunahafa í hagfræði
Fjármála- og efna­hags­ráð­herra sagði ummæli Stiglitz í nýlegu við­tali vera í and­stöðu við flestar við­teknar hag­fræði­kenn­ingar Mynd: Bára Huld Beck

Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra seg­ist ekki geta tekið undir með banda­ríska hag­fræð­ingnum Joseph Stiglitz, sem sagði í við­tali í Kast­ljós­inu í gær að seðla­banka­stjórar hefðu farið fram úr sér við hækkun stýri­vaxta til að kveða niður verð­bólgu.

Að hennar mati hafi verið rétt ákvörðun að hækka stýri­vexti í kjöl­far verð­bólg­unnar sem óx hratt árið 2022. Í óund­ir­búnum fyr­ir­spurnum á þingi vakti Ást­hildur Lóa Þórs­dóttir, þing­maður Flokks fólks­ins, athygli á nýlegu við­tali við Stiglitz sem birt var í Kastljós í gær.

Í ræðu sinni rakti Ást­hildur Lóa í grófum dráttum efni við­tals­ins, þar sem Stiglitz sagði seðla­banka víða um heim hafa hækkað vexti að nauð­synja­lausu og í raun hafi þeir gert vont efna­hags­á­stand verra með of bröttum hækk­unum. 

Í við­tal­inu taldi Stiglitz stjórn­endur seðla­banka hætti til að ein­blína á verð­bólgu og hag­fræði­kenn­ingar í stað þess að horfa á heild­ar­mynd­ina.

Vaxta­hækk­anir sem ráð­ist var í mörgum vest­rænum ríkjum eftir heims­far­ald­ur­inn hafi ekki dregið úr verð­bólgu sem var knúin áfram af við­var­andi orku-, matar-, hús­næð­is­skort. Þvert á móti hafi brattar vaxta­hækk­anir haft þver­öfug áhrif.

Sagði Ást­hildur Lóa að boð­skapur Stiglitz hafi verið „eins og beint út úr mínu eigin hjarta.“ Því næst varp­aði hún þeirri spurn­ingu til fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, „hvort ekki sé kom­inn tími til að rík­is­stjórnin axli ábyrgð og sjái til þess að snúið verði af þess­ari glöt­un­ar­braut grimmi­legra vaxta­hækk­ana.“

Ósammála ummælum Stiglitz

Í svari sínu sagði Þórdís Kolbrún að Stiglitz væri gríð­ar­lega áhuga­verður maður með mikla reynslu og tók undir með athuga­semd hans um að pen­inga­stefna væri ekki aðeins „verk­fræði­legt verk­efni heldur mjög sál­rænt og marglaga.“

Hins vegar taldi hún að í til­felli Íslands hafi það verið rétt ákvörðun að hækka vexti. Í máli sínu benti hún á að verð­bólgan hér á landi væri frá­brugðin þeirri í Evrópu, sem hefur glímt við orku­skort frá því að Rússar réð­ust inn í Úkraínu.

Þá sagði ráð­herra að verð­bólgan hér á landi ætti í raun meira skylt við verð­bólg­una í Banda­ríkj­unum, þar sem eft­ir­spurn hafi drifið verð­bólg­una áfram. Þess vegna sé stýri­vaxta­hækkun við­eig­andi tæki til þess að bregð­ast við verð­bólgu.

„Það sem umræddur hag­fræð­ingur segir er alveg í and­stöðu við meg­in­þorra hag­fræði­kenn­inga,“ sagði Þórdís Kolbrún og bætti við að hún væri þó til í sam­tal um hvaða aðrar leiðir eru færar en tók þó fram að henni hugn­að­ist ekki leiðir sem myndu vega að sjálf­stæði Seðla­bank­ans.

Húsnæðisskortur og fákeppni

Í seinni ræðu sinni svar­aði Ást­hildur Lóa ráð­herra og sagði að þó svo verð­bólgan hér á landi hafi ekki verið drifin áfram af orku- og mat­ar­verði, þá væri hún hins vegar að miklu leyti drifin áfram að hús­næð­is­skort og fákeppni í atvinnu­líf­inu. Stiglitz hafi fært fyrir því sann­fær­andi í rök í máli sínu.

„Seðla­bank­inn var hrein­lega flengdur. Ég veit ekki hversu oft ég hef bent á að verð­bólgan á Íslandi er ekki heim­ilum lands­ins að kenna og það myndi ekki skila neinu að leggja allar þessar byrðar á þau nema að festa þau í langvar­andi kreppu,“ sagði Ást­hildur og spurði ráð­herra hver ætli að bera ábyrgð á afleið­ingum vaxta­hækk­ana?

„Seðla­bank­inn var hrein­lega flengdur“
Ást­hildur Lóa Þórssdóttir, þing­maður Flokks fólks­ins

Í svari Þórdísar Kol­brúnar tók hún fram að alþingi skapi lag­ara­mman, verk­færin sem Seðla­bank­inn starfar eftir, að öðru leyti sé Seðla­bank­inn sjálf­stæður í sínum störfum. Þá sagði hún að fá dæmi þess úr heims­sög­unni að það hafi gefi góða raun að vega að sjálf­stæði Seðla­banka.

Sömu­leiðis benti fjár­mála- efna­hags­ráð­herra á að verð­bólga væri á nið­ur­leið sem gæfi til kynna að aðgerðir Seðla­bank­ans væru að hafa til­ætluð áhrif. Í ræðu sinni minnt­ist ráð­herra einnig á að það væru „uppi sjón­ar­mið um að verð­bólgan gæti þvert á móti verið vegna þess hve lengi vextir voru lágir.“

Kjósa
17
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (5)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • GKB
    Guðmundur Karl Björnsson skrifaði
    Hún er ábúðarmikil og lítur málefnin greinilega alvarlegum augum - Staran er húmorslaus og allt að því grimdarleg á þessari mynd.
    0
  • Sigurður Sigurðsson skrifaði
    Islensk og veit betur...
    0
  • JL
    Jón Logi skrifaði
    Já það er alveg ljóst að þessi útlendi hagfræðingur þarf sárlega á endurmenntun að halda og fjármálaráðherra og fleiri glöggir pólitíkusar gera örugglega leitt hann í allann sannleika um undur og stórmerki hinnar séríslensku hagfræði.
    1
  • JBÓ
    Jón Brynjólfur Ólafsson skrifaði
    Oft hefur maður furðað sig á háskóla menntuðu fólki. Eins og það sé en þá á skólabekk, þó svo það sé starfandi út í samfélaginu. Hangir á kenningum, þess vegna kreddum og öðru sem það hefur lært. Eins og fólkið hafi ekki lag á því að nýta sér áunna þekkingu til að vinna með umhverfið eins og það er, þ.e. að nýta grunnþekkingu til að finna lausnir á því sem við blasir. Það sem Stiglitz segir er einmitt lýsing á kenningar- og þess vegna kreddu fólki. Sjálfsagt finnst háskóla menntuðu fólki auðveldara og e.t.v. öruggara að vinna með hráar kenningar, vilja ekki fara út fyrir „kassann“. Minnir svolítið á fólk sem túlkar trúarbragða rit þröngt og sér í hag.
    0
  • Örn Ægir Reynisson skrifaði
    Í viðtalinu taldi Stiglitz stjórnendur seðlabanka hætti til að einblína á verðbólgu og hagfræðikenningar í stað þess að horfa á heildarmyndina. Hagfræðikenningar. Rétt hjá honum
    4
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár