Stýrivextir haldast óbreyttir í 9,25 prósentum en verðbólguhorfur batna

Þrátt fyrir að tólf mán­aða verð­bólga hafi ekki mælst minni nú en síðan í mars 2022 þá hald­ast stýri­vextir áfram óbreyttir þriðja stýri­vaxta­á­kvörð­un­ar­dag­inn í röð. Þar á undan höfðu þeir hækkað 14 sinnum í röð.

Stýrivextir haldast óbreyttir í 9,25 prósentum en verðbólguhorfur batna
Pen­inga­stefnu­nefnd Ásgeir Jónsson seðla­banka­stjóri er for­maður pen­inga­stefnu­nefndar. Mynd: Seðlabanki Íslands

Sýri­vextir verða áfram 9,25 pró­sent sam­kvæmt ákvörðun pen­inga­stefnu­nefndar sem opin­beruð var í morgun. Þetta er í þriðja sinn í röð sem vöxt­unum er haldið óbreyttum á þeim stað á vaxta­á­kvörð­un­ar­degi en fyrir það höfðu þeir verið hækk­aðir á 14 fundum í röð, úr 0,75 í áður­nefnd 9,25 pró­sent.

Í yfir­lýs­ingu pen­inga­stefnu­nefndar Seðla­banka Íslands, sem ákveður vaxta­stígið í land­inu, segir að áhrif pen­inga­stefn­unnar séu að koma æ skýrar fram. „Raun­vextir hafa hækkað og verð­bólga hjaðnað nokkuð frá nóv­em­berfundi nefnd­ar­innar. Und­ir­liggj­andi verð­bólga hefur einnig minnkað. Vís­bend­ingar eru um að hraðar dragi úr vexti efna­hags­um­svifa en áður var talið. Samkvæmt nýrri spá Seðla­bank­ans fer spennan í þjóð­ar­bú­inu minnk­andi og snýst í slaka undir lok árs­ins. Verð­bólgu­horfur hafa því batnað.“

Lang­tíma­verð­bólgu­vænt­ingar hafi þó lítið breyst og hald­ist nokkuð yfir mark­miði. „Þótt hægt hafi á vinnu­mark­aði er spenna þar enn til staðar. Verð­bólga gæti því áfram reynst þrá­lát. Þá er einnig óvissa um nið­ur­stöður kjara­samn­inga og mögu­legar aðgerðir í rík­is­fjár­málum tengdar þeim og vegna jarð­hrær­inga á Reykja­nesi. Mótun pen­inga­stefn­unnar á næst­unni mun sem fyrr ráð­ast af þróun efna­hags­um­svifa, verð­bólgu og verð­bólgu­vænt­inga. “

Vísi­tala neyslu­verðs, sem mælir verð­bólgu, lækk­aði um 0,16  pró­­sent milli des­em­ber og jan­ú­ar­mán­aða. Tólf mán­aða verð­­bólga mælist nú 6,7 pró­­sent en hún mæld­ist 7,7 pró­­sent í des­em­ber. Hún hefur ekki mælst minni síðan í mars 2022 en hæst fór verð­bólgan í tveggja stafa tölu í febr­úar í fyrra. 

Staðan er því þannig að þrátt fyrir að verð­bólga sé að hækka milli mán­aða er tólf mán­aða verð­bólgan að lækka skarpt. Ástæða þess liggur í því að verð­bólga mæld­ist mjög há í lok árs 2022 og byrjun árs 2023 og þeir mán­uðir eru nú að detta út úr tólf mán­aða verð­bólgu­töl­unum.

Í til­kynn­ingu á vef Hag­stof­unnar sem birt var í byrjun síð­ustu viku vegna þessa sagði að kostn­aður vegna búsetu í eigin hús­næði hafi hækkað um 0,9 pró­sent milli mán­aða og að sú hækkun hafi haft mest áhrif á aukna verð­bólgu milli mán­aða. Kostn­aður vegna raf­magns og hita hækk­aði um 3,7 pró­sent milli mán­aða en á móti tog­uðu vetr­ar­út­sölur þar sem föt og skór lækk­uðu um 9,2 pró­sent frá því í fyrri mán­uði. Húsgögn og heim­il­is­bún­aður lækk­uðu sömu­leiðis um fimm pró­sent og flug­far­gjöld til útlanda um heil 11,4 pró­sent. „Athygli skal vakin á þeirri breyt­ingu að í stað þess að taka inn verð­breyt­ingar á „044 Annað vegna hús­næðis“ nú í jan­úar verður það gert í febr­úar þegar fyrsta greiðsla skv. nýjum gjald­skrám fer yfir­leitt fram. Undir þennan lið fellur sorp­hreinsun, hol­ræsi og kalt vatn.“

Nið­ur­fell­ing á virð­is­auka­skatt­sí­vilnun af raf­bílum hafði áhrif til hækk­unar á verði þeirra en tekið var til­lit til raf­bíla­styrkja Orku­sjóðs við útreikn­inga.

Mikil áhrif á greiðslu­byrði

Hækkandi stýri­vextir hafa haft mikil áhrif á greiðslu­byrði heim­ila og fyr­ir­tækja og hratt hefur dregið úr lán­tökum þeirra. Hærri greiðslu­byrði heim­ila, sem hefur í mörgum til­vikum allt að tvö­fald­ast hjá þeim sem eru með óverð­tryggð lán, hefur leitt til þess að sífellt fleiri færa sig úr því lána­formi og yfir í verð­tryggð íbúða­lán. Þau hafa þann kost að greiðslu­byrðin er lægri en þann van­kant að verð­bætur leggj­ast á höf­uð­stól lána í mik­illi verð­bólgu. 

Á því vaxta­hækk­un­ar­tíma­bili sem hófst 2021 og stóð óslitið fram að síð­asta vaxta­á­kvörð­un­ar­degi Seðla­bank­ans voru raun­vextir óverð­tryggðra lán­tak­enda lengi vel nei­kvæðir. Það þýðir að vext­irnir sem þeir borg­uðu voru lægri en verð­bólgan. Sömu sögu er að segja að inn­láns­vöxtum. Vext­irnir sem fólk fékk fyrir að geyma pen­ing­anna sína í banka voru almennt lægri en verð­bólgan og því rýrn­aði raun­virði sparn­að­ar­ins. 

Á síð­ustu mán­uðum hefur það snú­ist við og raun­vextir eru nú ekki lengur nei­kvæðir. 

Sú staða, ásamt því að mörg fast­vaxta­lán á óverð­tryggðum vöxtum hafa verið að losna, hefur stór­aukið flutn­ing heim­ila yfir í verð­tryggð lán. Í nýj­ustu mán­að­ar­skýrslu HMS kemur fram að í fyrra hafi hlut­deild verð­tryggðra lána heim­ila auk­ist á kostnað óverð­tryggðra. Sér í lagi fóru heim­ilin frá óverð­tryggðum lánum á breyti­legum vöxtum yfir í verð­tryggð lán á breyti­legum vöxtum. Í byrjun síð­asta árs voru tæp­lega 44 pró­sent íbúða­lána heim­ila lands­ins, sem eru í heild­ina rúm­lega 2.576 millj­arðar króna, verð­tryggð. Í lok þess var hlut­fallið komið í 51 pró­sent. Verð­tryggðu lánin hafa aftur náð yfir­hönd­inni. 

Mun halda áfram

Búast má við að til­færslan yfir í verð­tryggð lán muni halda áfram næstu ár að óbreyttu. Allt í allt eru um 706 millj­arðar króna af óverð­tryggðum lánum á föstum vöxtum með end­ur­skoð­un­ar­á­kvæði. Fram til loka árs 2025 munu 569 millj­arðar króna, 80 pró­sent allra þeirra lána, losna og lán­tak­arnir að óbreyttu færðir úr mjög lágum vöxtum yfir í mjög háa vexti. Vegnir með­al­vextir lána sem losna á ír ár eru 4,5 pró­sent en lán sem koma til end­ur­skoð­unar árið 2025 bera 5,1 pró­sent vegna með­al­vexti. Í dag eru lægstu breyti­legu óverð­tryggu vextir hjá bönk­unum í kringum ell­efu pró­sent. 

Í nýj­ustu mán­að­ar­skýrslu Húsnæðis- og mann­virkja­stofn­unar segir að heim­ili með háa greiðslu­byrði séu þegar byrjuð, og eigi vænt­an­lega eftir í miklum mæli, að færa sig yfir í verð­tryggð lán þegar til fyrr­nefndrar end­ur­skoð­unar kemur. Vilji þeir ekki færa sig yfir í slík lán að öllu leyti eða hluta stendur einnig til boða að lengja í lánum, greiða sparnað inn á lán eða semja um að færa hluta af vöxtum á höf­uð­stól.

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár