Dauði Navalní, mál Assange og útlendingamál í Pressu

Baldur Þór­halls­son, pró­fessor í stjórn­mála­fræði, Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, þing­kona Pírata og Gunnar Smári Egilsson, sjón­varps­maður á Sam­stöð­inni og for­maður fram­kvæmda­stjórnar Sós­í­alista­flokks­ins, taka þátt í umræðum í Pressu.

Dauði Navalní, mál Assange og útlendingamál í Pressu
Síðasta til­raun Julian Assange freistar þessu nú í síð­asta sinn fyrir breskum dóm­stólum að koma í veg fyrir að hann verði afhentur banda­rískum yfir­völdum, sem vilja fang­elsa hann í allt að 175 ár. Mynd: EPA

Dauði rúss­neska stjórn­ar­and­stæð­ings­ins Alexei Navalní í rúss­nesku fang­elsi, yfir­vof­andi fram­sal blaða­manns­ins Julian Assange til Banda­ríkj­anna og staða útlend­inga­mála á Íslandi verða til umræðu í Pressu í dag, föstu­dag­inn 23. febr­úar.

Rætt verður við Kristin Hrafns­son, rit­stjóra Wikileaks, sem staddur er í Lundúnum þar sem von er á nið­ur­stöðu varð­andi fram­sal Assange á hverri stundu. Baldur Þór­halls­son, pró­fessor í stjórn­mála­fræði, Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, þing­kona Pírata og Gunnar Smári Egilsson, sjón­varps­maður á Sam­stöð­inni og for­maður fram­kvæmda­stjórnar Sós­í­alista­flokks­ins, verða við umræðu­borðið í þætt­inum. 

Navalní dó í haldi rúss­neskra stjórn­valda í Síberíu þann 16. febr­úar síð­ast­lið­inn, þar sem hann afplán­aði níu ára fang­els­is­dóm fyrir að skipu­leggja og fjár­magna starf­semi öfga­sam­taka. Hann var einn mest áber­andi stjórn­ar­and­stæð­ingur Rúss­lands og hafa þjóð­ar­leið­togar víða kraf­ist þess að stjórn­völd upp­lýstu að fullu um þá atburða­rás sem leiddi til dauða Navalnís. Fjöl­skylda hans og sam­starfs­fólk hefur sagt Vladimir Pútín Rúss­lands­for­seta bera ábyrgð á dauða hans. 

Í Lundúnum er von á nið­ur­stöðu dóm­ara í máli Julian Assange sem gerir nú loka­til­raun fyrir dóm­stólum að koma í veg fyrir að hann verði fram­seldur til Banda­ríkj­anna. Þar á hann yfir höfði sér hátt í tvö hund­ruð ára fang­els­is­dóm fyrir birt­ingu upp­lýs­inga um stríðs­glæpi banda­rískra stjórn­valda. Upp­lýs­ing­arnar komu fram í trún­að­ar­gögnum banda­ríska hers­ins sem lekið var til Wikileaks og svo birtar. Sann­leiks­gildi gagn­anna er ótví­rætt en Banda­ríkja­stjórn vill fang­elsa Assange fyrir njósnir. 

Umræða um útlend­inga­mál hefur verið mikil á Íslandi og hafa verið boð­aðar breyt­ingar á umgjörð mála­flokks inn­flytj­enda og hæl­is­leit­enda. Orð for­manns Sam­fylk­ing­ar­innar vöktu svo athygli nýverið en hún sagði að opin landa­mæri og vel­ferð­ar­kerfi fari ekki saman. Fögnuðu í kjöl­far þing­menn og ráð­herrar Sjálf­stæð­is­flokks, sem buðu hana „vel­komna á vagn­inn“, en flokk­ur­inn hafði áður sætt gagn­rýni Sam­fylk­ing­ar­fólks fyrir harka­lega stefnu í mál­efnum útlend­inga. 

Pressa er send út í beinu streymi í hádeg­inu alla föstu­daga á vef Heim­ild­ar­innar. Hefst útsend­ingin klukkan 12.00.

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Pressa

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu