Ellefu þúsund tonn af kjúklingi í kjötborðum landsmanna árið 2023

Inn­flutn­ingur á kjöti jókst um 17 pró­sent árið 2023 og nær sú aukn­ing yfir allar helstu kjöt teg­undir. Lang mest var flutt inn af ali­fugla­kjöti, sem er aðal­lega kjúklingur. Í ljósi þess að inn­lend fram­leiðsla á því hefur auk­ist mikið und­an­farin ár og tekið fram úr fram­leiðslu á kinda­kjöti má því með sanni segja að Íslend­ingar séu sólgnir í kjúklinga­kjöt sem aldrei fyrr.

Ellefu þúsund tonn af kjúklingi í kjötborðum landsmanna árið 2023
Íslend­ingar flytja inn og fram­leiða mest af ali­fugla­kjöti Mynd: Pixabay

Inn­flutn­ingur á kjöti jókst um 17 pró­sent milli áranna 2022 og 2023. Samkvæmt nýj­ustu tölum Hag­stof­unnar voru flutt inn alls 4.976 tonn af kjöti árið 2023. Lang stærstur hluti inn­flutts kjöts var ali­fugla­kjöt, en árið 2023 voru flutt inn rúm­lega tvö þús­und tonn af kjúklinga­kjöti. 

Í línu­riti Hag­stof­unnar sem sýnir inn­flutn­ing á kjöti milli áranna 2011 til 2023 má glöggt sjá að inn­flutn­ingur á kjöti hefur farið ört vax­andi síð­ast­lið­inn fjögur ár. Inn­flutn­ingur á ali­fugla­kjöti jókst um nálega 740 hund­ruð tonn milli áranna 2020 til 2023. Inn­flutn­ingur á svína­kjöti jókst um svipað magn.

Þá má einnig sjá á töfl­unni að inn­flutn­ingur á nauta­kjöti tók stökk milli áranna 2022 og 2023 og jókst um 48 pró­sent. Hefur inn­flutn­ingur á nauta­kjöti aldrei verið meiri, en hann var 1.344 tonn árið 2023. 

Lítið flutt inn af kindakjöti

Ein kjöt­vara sker sig þó úr í talna­efni Hag­stof­unnar, það er kinda­kjötið. Milli áranna 2011 og 2023 hefur inn­flutn­ingur á kinda­kjöti öllu jafna verið núll til tvö tonn ári. Þegar mest lét voru flutt inn 39 tonn árið 2019, en það sker sig úr í gögn­unum.

Milli áranna 2011 til 2018 var nán­ast ekk­ert kinda­kjöt flutt inn til lands­ins. Frá 2021 til 2023 má þó greina hæg­fara aukn­ingu í inn­flutn­ingi. Þá fór inn­flutt magn úr núll tonnum árið 2020 yfir í 20 tonn árið 2023.    

Þá kemur einnig fram í til­kynn­ingu Hag­stof­unnar að útflutn­ingur á kinda­kjöti hafi dreg­ist saman um 43 pró­sent milli áranna 2022 og 2023. Í lok árs námu upp­safn­aðar birgðir af kinda­kjöti um 4.660 tonnum. 

Íslendingar sólgnir í kjúklinga

Í frétt Heim­ild­ar­innar sem birt­ist fyrir tæpum mán­uði síðan var greint frá því að fram­leiðsla á kjúklinga­kjöti hafi tekið fram úr fram­leiðslu á lamba­kjöti annað árið í röð. Árið 2023 var sam­an­lögð fram­leiðsla á ali­fugla­kjöti rúm­lega 8.955 tonn, sem var um 500 tonnum meira en sam­an­lögð árs­fram­leiðsla á kinda­kjöti.  

Það má því með sanni segja að Íslend­ingar séu orðnir að kjúklinga­þjóð. Samkvæmt gögnum Hag­stof­unnar hefur útflutn­ingur á ali­fugla­kjöti verið nán­ast eng­inn síð­ast­lið­inn fimm ár, fyrir utan árið 2021 þegar eitt tonn var flutt úr landi. Sam­an­lagt nam fram­boð á kjúklinga­kjöti á íslenskum mark­aði árið 2023 því um 11 þús­und tonnum.

Þá kemur einnig fram í til­kynn­ingu Hag­stof­unnar að eggja­fram­leiðsla hafi náð aftur sínu striki eftir mik­inn sam­drátt í kór­ónu­veiru­far­aldr­inum. Nam fram­leiðslan 4.790 tonnum árið 2023 og hefur aldrei verið meir.    

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár