Vindur fór í 28 m/s í hviðum í Reykjavík

Vindur úr vestri hefur farið á ógn­ar­hraða yfir suð­vest­ur­horn lands­ins síð­ustu klukku­stundir. Vind­hviður hafa farið í 28 m/s í Reykja­vík og tíu metrum betur við Reykja­nes­vita. Allar helstu meg­in­leiðir að höf­uð­borg­ar­svæð­inu voru lok­aðar um tíma.

Blint
Blint Íbúar höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins hafa fengið að finna fyrir vetr­ar­veðri í dag. Færð hefur spillst víða, aðal­lega í efri byggðum en fá ef nokkur útköll hafa verið vegna veð­urs­ins hjá björg­un­ar­sveit­unum. Mynd: Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu

Svo virð­ist sem veð­ur­spár hafi gengið eftir á suð­vest­ur­hluta lands­ins og gott betur. Spáð var 15-20 metra vind­hraða á sek­úndu og raun­gerð­ist það víða. Þannig fóru hviður í Reykja­vík í 28 m/s á mælum Veð­ur­stof­unnar milli kl. 14 og 15 í dag. Með­al­vindur var þá um 17-18 m/s.

Mestur vindur á lág­lendi hafði kl. 16.00 í dag mælst við Reykja­nes­vita. Þar var með­al­vindur 28 m/s og allt upp í 38 metra í hviðum. Litlu minni vindur mæld­ist á Stór­höfða í Vest­manna­eyjum og á Fróð­ár­heiði á Snæ­fells­nesi. Um óyf­ir­farnar frum­nið­ur­stöður á vef Veð­ur­stofu er að ræða. 

Um tíma voru allar helstu leiðir til og frá höf­uð­borg­ar­svæð­inu lok­aðar, m.a. Hell­is­heiði, Kjal­ar­nes Mos­fells­heiði og Reykja­nes­braut. Sú síð­ast­nefnda var opnuð á ný síð­degis en þar er enn stór­hríð og snjó­þekja, segir á kortum Vega­gerð­ar­innar. Þar má líka sjá að 28 m/s vindur mæld­ist í hviðum á Mið­bakk­anum í Reykja­vík í dag.

Veðrið á að ganga niður á höf­uð­borg­ar­svæð­inu um kl. 17.30 og verður gulri við­vörun Veð­ur­stof­unnar þá aflétt. Á Suð­ur­landi er varað við dimmum éljum og skafrenn­ingi með lélegu skyggni fram á kvöld.  

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár