Óveður í vændum: Götur gætu teppst og síðdegisskutl verða í uppnámi

Íbúar á Suð­vest­ur­landi: Ekki láta blekkj­ast af vetr­ar­kyrrð morg­uns­ins. Um og eftir hádegi mun færð taka að spill­ast og ekki sjást á milli húsa. „Maður er voða­lega hræddur um það að það verði fastir bílar út um allan bæ,“ segir Einar Svein­björns­son veð­ur­fræð­ingur. „Að þetta verði svo­leiðis dagur.“

Framtíðarsýn?
Fram­tíð­ar­sýn? Mjög lík­lega munu bílar sitja fastir um alla borg síðar í dag, segir veð­ur­fræð­ingur. Hann hvetur fólk ein­dregið til að bíða af sér veðrið. Mynd: Slysavarnafélagið Landsbjörg

„Vanda­málin byrja ekki fyrr en eftir hádegi,“ sagði Einar Svein­björns­son, veð­ur­fræð­ingur og rit­stjóri Bliku.is í sam­tali við Heim­ild­ina snemma í morgun. Þetta eru vanda­mál af stærri gerð­inni; ófært gæti orðið inn­an­bæjar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Reykja­nes­brautin gæti sömu­leiðis orðið ill­fær eða ófær og það sama á við um vegi á borð við Mos­fells­heiði og Hell­is­heiði. Það verður blint, vart mun sjást á milli húsa, og best væri að allir sem mögu­lega geta bíði af sér veðrið. Fari ekki af stað.

Vest­an­strengur stefnir á suð­vest­an­vert landið og lætur til sín taka víða á því svæði frá því um hádeg­is­bil. „Þetta er í raun og veru mjög dýpk­andi lægð fyrir austan landið sem er í aðal­hlut­verki,“ segir Einar. Skömmin sú mun draga til sín gamla hálofta­lægð úr norð­an­verðu Græn­lands­hafi og „um leið og það ger­ist þá brestur á þessi stutti vest­an­stormur“. Lægðin mun gera vart við sig að ráði á Suð­ur­nesjum, þá á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og loks á Suð­ur­landi.

Vega­gerðin hefur lýst yfir óvissu­stigi sem þýðir að vegir geta teppst því allt hennar við­bragð nægir ekki til að halda þeim opnum. Hér getur þú fundið nán­ari upp­lýs­ingar um mögu­legar lok­anir vega.

Ekkert skyggni og skaflar á götum

„Við hefðum nú yfir­leitt ekki gert mikið veður út af þessu,“ segir Einar um vind­inn, þessa um og yfir 20 metra á sek­úndu, sem fylgja lík­leg­ast lægð­inni, „nema vegna þess að það er svo mikil lausa­mjöll yfir“. Það er hún, þessi hvíta nota­lega voð sem hylur nú að morgni 31. jan­úar jörð á Suð­vest­ur­landi, sem verður ekki til friðs þegar vindar taka að blása. Skaf­renn­ingur og blinda mun skapa vanda­mál: Skyggni mun spill­ast veru­lega, „og ekk­ert sjást á milli húsa þegar verst lætur,“ varar Einar við. Þá munu skaflar fljótt mynd­ast á vegum og spilla færð veru­lega. Líkur eru á að ófært verði um tíma. „Það sem ýtir undir það eru að það eru snjó­ruðn­ingar fyrir, jafnt innan bæjar sem utan, og það mun setj­ast á milli ruðn­inga á gang­stéttir og götur. Þannig að það er hætta á að götur verði fljótar að tepp­ast, ekki síst húsa­götur.“

ÓveðurLitirnir tákna vind­hraða. Um kl. 15, sam­kvæmt spá Veð­ur­stof­unnar, mun vindur fara yfir 20 m/s á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

Það er erfitt að ímynda sér í vetr­ar­kyrrð morg­uns­ins að fljót­lega muni fólk ekki sjá út úr augum. „Það verður mjög fal­legt veður á leið allra til vinnu og skóla,“ segir Einar. „Vanda­málin byrja ekki fyrr en eftir hádegi. Það er í raun og veru ekk­ert annað að gera en að bíða af sér veðrið. Ef fólk er ekki búið að gera það sem það ætlar sér að gera áður en veðrið skellur á þá verður það að bíða þetta af sér. Það er alveg hægt að gera það, en við gerum okkur alveg grein fyrir því að það þarf að sækja börn og þar fram eftir göt­unum. Það er hætt við því að alls konar skutl sem til­heyrir síð­deg­inu og útrétt­ingar verði í upp­námi og breyt­ist. Maður er voða­lega hræddur um það að það verði fastir bílar út um allan bæ. Að þetta verði svo­leiðis dagur.“  

Frá Suðurnesjum til Suðurlands

Uppúr hádegi byrjar ballið á Suð­ur­nesjum og áhrifa þess munu gæta m.a. á Reykja­nes­braut­inni. Um kl. 14-15 mun lægðin dansa af krafti um höf­uð­borg­ar­svæðið. Vart mun þýða að ryðja götur, nema helstu stofn­leiðir, á meðan það ástand varir því skaflar munu ein­fald­lega koma í skafla stað. „Það gæti vel orðið ófært innan hverfa og svo tekur tíma að hreinsa þegar þetta er yfir­staðið.“

Góðu frétt­irnar eru að sögn Einars að veðrið mun lík­lega aðeins standa í 2-3 tíma á hverjum stað. Slæmu frétt­irnar eru hins vegar að það er alveg nógu langur tími til að allt fari á hlið­ina í sam­göngum á þessu þétt­býlasta svæði lands­ins. Bílum hefur fjölgað þar veru­lega síð­ustu ár og umferðin auk­ist sam­hliða því, fleiri eru á ferð­inni og margir fara um lengri veg en áður. Þess vegna þarf að sögn Einars lítið útaf að bregða svo að allt fari á verri veg, að umferðin stöðv­ist hrein­lega alveg, þegar skot eins og þetta á fari yfir.

„Veðrið núna á sér greini­legt upp­haf og greini­lega endi“
Einar Svein­björns­son veð­ur­fræð­ingur,
um hvort von sé á ófærð í lengri tíma.

Sumir séu farnir að gera þær kröfur að kom­ast alltaf leiðar sinnar, sama hvernig viðrar. En nú þarf þetta sama fólk að anda ofan í kvið­inn eða bíta í það súra epli að í nokkra klukku­tíma er lík­legra en ekki að miklar sam­göngu­trufl­anir verði.

Í ofaná­lag mun svo mögu­lega snjóa með lægð­inni. Það gæti, að sögn Einars, komið hryðju­bakkar af hafi yfir borg­ina og nágrenni hennar. „Það mun ekki auð­velda okkur lífið,“ segir hann, „því þá verður enn meiri blinda“.

En gætum við átt von á sam­bæri­legum sam­göngu­trufl­unum og urðu í lok árs 2022, þegar Reykja­nes­brautin var ófær í lengri tíma? „Nei, því veðrið núna á sér greini­legt upp­haf og greini­legan endi,“ svarar Einar. Það vill hins vegar svo óheppi­lega til að veðrið verður verst á tíma sem fólk er almennt mikið á ferð­inni. Einar ítrekar því þær ráð­legg­ingar sínar að fara ekki út í blind­una, heldur bíða af sér veðrið.

Kjósa
17
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár