79 ár frá frelsun Auschwitz: 245 þúsund fórnarlömb helfararinnar enn á lífi

Hluti fanganna fer í síðasta sinn út um hliðið alræmda, þar sem stóð Arbeit macht frei,
Hluti fang­anna fer í síð­asta sinn út um hliðið alræmda, þar sem stóð Arbeit macht frei, eða Vinnan mun gera yður frjáls.

Í dag, 27. jan­úar 2024, eru 79 ár síðan 332. riffla­deild 60. hers Sov­ét­ríkj­anna hrakti þýskar varn­ar­sveitir burt frá þremur smá­þorpum í suð­ur­hluta Póllands, nánar til­tekið í Slesíu, sem Hitlers-Þýska­land hafði inn­limað haustið 1939. Þorpin hétu Monowitz, Birkenau og Auschwitz og stóðu í þéttum hnapp við ána Sola.

Hinn Rauði her Sov­ét­ríkj­anna hóf þann 12. jan­úar mikla sókn við og yfir ána Vislu og fátt varð um varnir hjá Þjóð­verjum. Þann 17. jan­úar tóku her­sveitir Georgí Sjúkovs mar­skálks Varsjá, sem þá var lítið annað en rjúk­andi rústir, og tveim dögum seinna sendi Sjúkov sína menn inn í Łódź sem Þjóð­verjar köll­uðu Lemberg. Og um sama leyti rudd­ist 60. her­inn í suðri inn í Slesíu undir æðstu stjórn Ívans Konévs mar­skálks.

Sovéskar stríðs­konur með hluta barn­anna sem enn voru á lífi í Auschwitz.

Enn voru varnir Þjóð­verja í molum en þó svo­lítið farnar að styrkj­ast svo það kost­aði líf 231 dáta úr 332. riffla­deild­inni að reka þýska varn­ar­liðið burt frá litlu þorp­unum þremur við Sola þann 27. jan­úar.

Óbreyttir dátar riffla­deild­ar­innar vissu ekki til þess að neitt væri merki­legt við þessi litlu þorp og þeir ráku því upp stór augu þegar þeir fóru að svip­ast um síð­degis þennan dag og gengu fram á fanga­búðir þar sem illa leiknar mann­eskjur stóðu þegj­andi bak við gadda­vírs­girð­ingar.

Allir fanga­verðir voru greini­lega flúnir en fang­anir voru greini­lega svo illa á sig komnir að þeir höfðu ekki megnað að hafa sig út úr girð­ing­unum. Margir voru svo mátt­farnir að þeir máttu sig varla hreyfa.

Fjölmörg börn voru á meðal þeirra.

Nú á dögum þekkja allir nafnið Auschwitz en við búðir í því þorpi eru útrým­ingar- og þrælk­un­ar­búðir í þorp­unum þremur allar kenndar.

60.000 manns höfðu verið í Auschwitz þegar sókn Rauða hers­ins hófst þann 12. en meiri­parti fang­anna var þá smalað saman í sann­kall­aða „dauða­göngu“ vestur á bóg­inn til Þýska­lands.

Eftir í Auschwitz urðu 6.000 manns sem 332. rifflasveitin frels­aði þennan dag en tölu­vert mörg þeirra voru reyndar svo illa haldin af hungri og sjúk­dómum að þau dóu næstu daga. Í verk­smiðjum IG Farben iðn­veld­is­ins í Monowitz fund­ust líka 800 illa haldnir þrælar enn á lífi.

Sovésku her­menn­irnir fundu í búð­unum í Auschwitz og Birkenau 600 lík, jakka­föt á 370.000 manns, 837.000 kven­manns­flíkur og 7,7 tonn af manns­hári.

Síðar var reiknað saman að meira en 1,1 millj­ónir manna höfðu dáið í Auschwitz.

Flest dóu í gasklef­unum en öðrum var þrælkað út eða hrein­lega myrt „með handafli“ af SS-vörð­unum og öðru ill­þýði sem gætti fang­anna. Lang­flest hinna látnu voru Gyðingar frá flestum löndum Evrópu en tölu­vert þó af Róma-fólki, pólskum og sov­éskum stríðs­föngum og sam­kyn­hneigðum.

Auschwitz hefur síðan orðið tákn fyrir þá ógn­ar­legu illsku sem getur búið í mannsál­inni en þó um leið líka fyrir von og þol­gæði því ótrú­lega mörgum tókst að lifa af hryll­ings­vist sína í fanga­búð­unum og halda þó mennsku sinni óskertri.

En hve mörg þeirra sem lifðu af hel­för­ina gegn Gyðingum eru enn á lífi? Svo vill til að fyrr í mán­uð­inum kom út skýrsla þar sem nið­ur­stöður rann­sóknar á því eru birtar.

Það var sér­stök stofnun sem tók að sér að rann­saka það en sú hefur verið að skoða og rann­saka kröfur sem sam­tök Gyðinga ætla að gera á hendur Þjóð­verjum. Hér má lesa þessa skýrslu.

Nokkrir fang­anna sem blöstu við sov­ésku dát­unum 27. jan­úar 1945.

Þar eru talin saman öll sem telja má fórn­ar­lömb helfar­ar­innar.

Þá ekki aðeins þau sem lentu í útrým­ingar- og fanga­búðum heldur líka fólk sem var í felum á yfir­ráða­svæði Þjóð­verja eða í liði skæru­liða á hernumdum svæðum.

Jafn­framt eru talin með öll börn, hversu ung sem þau voru og meira að segja líka börn sem voru í móð­ur­kviði allt framtil upp­gjafar Þjóð­verja í byrjun maí 1945.

Þess vegna er yngsta fólkið á list­anum fætt í blá­byrjun árs­ins 1946.

En nið­ur­staðan er sem sagt sú að um 245.000 manns séu enn á lífi af fórn­ar­lömbum helfar­ar­innar.

Af þeim eru 60 pró­sent konur.

Lang­flest þeirra búa í Ísrael en skipt­ingin er þessi (hér eru nefnd þau lönd þar sem meira en 1,0 pró­sent eft­ir­lif­enda býr):

1.  Ísrael 48,7 pró­sent (119,300 ein­stak­lingar)

2.  Banda­ríkin 15,7 pró­sent

3.  Frakk­land 8,9 pró­sent

4.  Þýska­land 5,8 pró­sent

5.  Rússland 7,4 pró­sent

6.  Úkraína 3,0 pró­sent

7.  Kanada 2,5 pró­sent

8.  Ung­verja­land 1,4 pró­sent

9.  Ástralía 1,1 pró­sent

Þar næst koma Belarús, Ítalía, Holland, Bretland og Belgía.

Hér má sjá sam­an­tekt Washington Post um ýmsar nið­ur­stöður skýrsl­unnar.

Það var oft glatt á hjalla hjá starfs­fólki Auschwitz þegar það skrapp í sum­ar­bú­stað­inn Sola­hütte.Sola­hütte var rúma 20 kíló­metra frá Auschwitz. Myndin er tekin síð­sum­ars eða snemma hausts 1944 þegar starfs­fólk fékk helg­ar­frí frá mjög miklum önnum við að drepa ung­verska Gyðinga.

Kjósa
14
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • VSE
    Virgil Scheving Einarsson skrifaði
    Þetta er vel skrifað fra þeim meistara er her Skrifar. Eg bjo i Bretlandi i 20 ar þar er venja föst að i Öllum skolum landsins er 1 Skoladagur tekin i að minnast Helfararinar i mali og mindum og Umfjöllun ekkert er annað a dagskra þan dag. Bretar vilja að þessi Hörmung gleimist ekki, lika er BBC riksisonvarpið me mindefni um Helförina og WW2. Einig fer Namsfolk i skolaferðir til Auschwitz og Birkenau og fl staða sem Nasistar Brendu Folk.
    Kvað er a Islandi arlega ekki neitt. Her var flokkur manna sem Klæddist SS Buningum a Sunnudögum. Þeir Gufuðu upp i striðslok og gengu i Sjalfstæðisflokk. Siðar eða-- 30 mars 1949 þekttu glöggir menn þa a Austurvelli með Borða um Handlegg og Gasgrimur og Eikarkilfur fra Sendiraði USA og Taragas sem þeir notuðu ospart a Folkið sem var a Austurvelli þann eftirmidag þar voru ekki Bara Sosialistar samankomnir, nei mikið af folki sem kom þar af forvitni var þar. Það er svartasti dagur i sögu Lyðveldisins. 1946 Hafði sami Flokkur sem Let Lemja Saklaust folk a Austurvelli, Fengið islenska Striðsglæpamenn Lausa ur fangelsum fyrir Hollustu við Hitler. Ljotur Atburður var er Hermann Jonasson þa Domsmalaraðherra let senda 40 Gyðinga mentaða vel ur landi, þeir enduðu allir i Utrimingabuðum Auschwitz og Birkenau. Það er Ævarandi sköm fyrir Island.
    Sem betur fer hefur verið ritað mikið um Islenska Nasista siðast Byr Islendindur Her
    Þar kemur fram að 1 Glæpamanna sem Rikistjornin fekk framseldan til Islands kom Leif
    Möller i Fangabuðir Nasista. Sa Raðherra sem fekk þa lausa, Sotti Fund þar sem Adolf Hitler kom fram 1936 i Þiskalandi
    Með honum var annar namsmaður i Þiskalandi a þeim arum Allabal siðar Bæjarstjori i Kopavogi. Svona voru menn Sjukir af Hugsjon Hitlers.
    4
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár