Spurningaþraut Illuga 26. janúar 2024

Hér geta les­end­ur spreytt sig á spurn­inga­þraut Ill­uga Jök­uls­son­ar sem birt­ist í tölu­blaði Heim­ild­ar­inn­ar 26. janú­ar.

Spurningaþraut Illuga 26. janúar 2024
Fyrri mynd: Á hvaða hljóð­færi er konan að spila?

Seinni mynd:

Þetta er kort af landi einu í heimi hér. Og landið er ...?

Almennar spurningar: 

  1. Í bíó­mynd frá 2015 leikur Matt Damon mann sem verður stranda­glópur ... hvar?
  2. Hvað heitir þjálf­ari karla­lands­liðs­ins í hand­bolta?
  3. Hvaða ár fædd­ist söng­konan Björk Guð­munds­dóttir? Var það 1955 – 1965 – 1975 – eða 1985?
  4. Hvaða frétta­skýr­inga­þátt ann­ast Birta Björns­dóttir og Bjarni Pétur Jónsson á laug­ar­dögum á Rás 1 RÚV?
  5. Hvað er yfir­leitt alltaf ódýrasta græn­meti, miðað við kíló­verð hvar sem er í heimi?
  6. Greta Gerwig leik­stýrði vin­sælli kvik­mynd á síð­asta ári. Hver er myndin?
  7. Hvaða ríki lenti geim­fari sínu á tungl­inu í síð­ustu viku, þó ekki færi allt að óskum?
  8. Í hvaða landi eru rústir borg­ar­innar Tróju?
  9. Nafn höf­uð­borgar einnar þýðir „Gott loft“. Hvaða borg er það?
  10. Þátttaka Ísraels í Eurovision er mjög umdeild, svo ekki sé meira sagt. En hve oft hefur Ísrael unnið Eurovision?
  11. Í hvaða firði á Íslandi er Grenivík?
  12. Hver var mann­eskja árs­ins hjá tíma­rit­inu TIME á síð­asta ári?
  13. Hver er núver­andi for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar?
  14. Núver­andi for­maður tók við af Loga Ein­ars­syni. En hver var for­maður á undan honum?
  15. Hver var for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins á undan Bjarna Bene­dikts­syni?

Svör við mynda­spurn­ingum:
Konan er að spila á túbu. Kortið sýnir Þýska­land.
Svör við almennum spurn­ingum:
1.  Mars.  —  2.  Snorri Steinn.  —  3.  1965.  —  4.  Heimskviður.  —  5.  Kart­öflur.  —  6.  Barbie.  —  7.  Japan.  —  8.  Tyrk­landi.  —  9.  Buenos Aires.  —  10.  Fjórum sinnum.   —  11.  Eyja­firði.  —  12.  Taylor Swift.  –  13.  Kristrún Frosta­dóttir.  —  14.  Oddný Harð­ar­dóttir.  —  15.  Geir Haarde.
Kjósa
31
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár