Tómas Brynjólfsson settur tímabundinn ráðuneytisstjóri fjármálaráðuneytisins

Tómas Brynj­ólfs­son er tíma­bund­inn arf­taki Guð­mundar Árnason í starfi ráðu­neyt­is­stjóra fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins. Var hann áður skrif­stofu­stjóri á skrif­stofu efna­hags­mála. Senn verður aug­lýst eftir nýjum ráðu­neyt­is­stjóra.

Þórdís Kolbrún R. Gylfa­dóttir fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra hefur sett Tómas Brynj­ólfs­son í emb­ætti ráðu­neyt­is­stjóra í fjár­mála­ráðu­neyt­inu til 31. mars. Þetta segir í til­kynn­ingu frá ráðu­neyt­inu.

Tómas var áður skrif­stofu­stjóri á skrif­stofu efna­hags­mála í ráðu­neyt­inu og hefur verið skrif­stofu­stjóri frá 2018. Hann er arf­taki Guð­mundar Árna­sonar í starfi en Guð­mundur lét af emb­ætti um ára­mótin eftir 14 ár í starfi.

Í til­kynn­ing­unni segir að senn verði aug­lýst eftir nýjum ráðu­neyt­is­stjóra. 

Tómas er með meistara­gráðu í hag­fræði frá Háskóla Íslands og meistara­gráðu í alþjóða­stjórn­málum frá London School of Economics. Áður en hann varð skrif­stofu­stjóri í ráðu­neyt­inu hafði Tómas m.a. verið stjórn­andi á EFTA-skrif­stof­unni í Brussel og unnið að efna­hags- og fjár­mála­mark­aðs­málum í stjórn­ar­ráð­inu frá árs­lokum 2008.

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár