Guðmundur Árnason hættir í fjármálaráðuneytinu og fer í utanríkisþjónustu

Guð­mundur Árnason mun láta af störfum sem ráðu­neyt­is­stjóri fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins eftir 14 ár í starfi og færa sig yfir í utan­rík­is­þjón­ust­una. Fjár­mála­ráðu­neytið vildi ekki tjá sig um þær ástæður sem liggja að baki starfs­lokum Guð­mundar.

Embættismaður
Emb­ætt­is­maður Guð­mundur hefur verið ráðu­neyt­is­stjóri í fjár­mála­ráðu­neyt­inu síðan 2009. Mynd: MBL / Kristinn Magnússon

Guð­mundur Árnason mun láta af störfum sem ráðu­neyt­is­stjóri fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins um ára­mótin og hefja störf í utan­rík­is­þjón­ust­unni. Þetta stað­festir Elva Sverr­is­dóttir, upp­lýs­inga­full­trúi fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins, í sam­tali við Heim­ild­ina. Fjár­mála­ráðu­neytið vildi ekki tjá sig um þær ástæður sem liggja að baki starfs­lokum Guð­mundar. Stað­geng­ill ráðu­neyt­is­stjóra mun taka við emb­ætt­inu af Guðmundi tíma­bundið.

Guð­mundur hefur sinnt stöðu ráðu­neyt­is­stjóra fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins síð­ast­liðin fjórtán ár, en áður var hann ráðu­neyt­is­stjóri í mennta­mála­ráðu­neyt­inu. Samkvæmt frétt Innherja til­kynnti hann starfs­mönnum ráðu­neyt­is­ins um starfs­lok sín í tölvu­pósti fyrr í dag. Guð­mundur hefur sam­hliða emb­ætt­is­mennsk­unni setið í stjórnum LSR, Söfn­un­ar­sjóði líf­eyr­is­rétt­inda og Þjóð­ar­sjóðs Óman­ríkis.

Samkvæmt heim­ildum Innherja hefur Guð­mundur tekið við skipun sem sendi­herra í utan­rík­is­þjón­ust­unni. Gert er ráð fyrir því að hann muni taka til starfa í Róm, höf­uð­borg Ítalíu, síðar á árinu. 

Ekkert íslenskt sendi­ráð er þó starf­rækt í Róm heldur er það sendi­ráðið í París sem sinnir hlut­verk­inu gagn­vart Ítalíu. Utan­rík­is­þjón­ustan …

Kjósa
17
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Kári Jónsson skrifaði
    Augljóst þarf að rannsaka aðkomu Guðmundar vegna vinnu eiginkonu hans fyrir ríkið í þessi 14ár.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár