Jón Arnór Stefánsson ráðinn í stöðu stjórnarformanns Þjóðarhallar ehf.

Fyrrum körfuknatt­leiks­mað­ur­inn Jón Arnór Stef­áns­son hefur verið skip­aður for­maður stjórnar Þjóð­ar­hallar ehf., félagið sem ríkið og Reykja­vík­ur­borg stofn­uðu fyrir skömmu. Félagið var stofnað með þeim til­gangi að hafa umsjón með bygg­ingu nýrrar þjóð­ar­hallar í Laug­ar­dal.

Jón Arnór Stefánsson og Dagur B. Eggertsson, fráfarandi borgarstjóri Reykajvíkur
Jón Arnór Stef­áns­son og Dagur B. Egg­erts­son, frá­far­andi borg­ar­stjóri Reyka­jvíkur hand­sala ráðn­ing­una. En Jón hefur verið skip­aður stjórn­ar­for­maður Þjóð­ar­hallar ehf. Mynd: /Facebook-síða Dags B. Eggertssonar

Í til­kynn­ingu frá stjórn­ar­ráð­inu er greint frá því að Jón Arnór Stef­áns­son verið skip­aður stöðu for­manns stjórnar Þjóð­ar­hallar ehf. Fyr­ir­tæki sem stofnað var af ríki og Reykja­vík­ur­borg, í gær, til þess að skipu­leggja bygg­ingu á nýrri þjóð­ar­höll sem á að rísa í Laug­ar­dalnum.

Ásamt Jóni sitja í stjórn tveir ein­stak­lingar sem til­nefndir voru af rík­inu og aðrir tveir sem til­nefndir voru af Reykj­ar­vík­ur­borg. Helga Sigurrós Val­geirs­dóttir, sjáv­ar­út­vegs­fræð­ingur og fyrrum aðstoð­ar­maður Sigurðar Inga Jóhann­es­sonar þegar hann gegndi stöðu sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra og Þórey Edda Elís­dóttir, umhverf­is­verk­fræð­ingur og fyrrum afrek­s­í­þrótta­maður í stanga­stökki, voru til­nefnd af rík­inu.

Fyrir hönd Reykja­vík­ur­borgar sitja Ómar Ein­ars­son, sviðs­stjóri Íþrótta- og tóm­stunda­sviðs, og Ólöf Örv­ars­dóttir, sviðs­stjóri umhverfis- og skipu­lags­sviðs í stjórn félags­ins.

Þá voru til­nefndir tveir vara­menn í stjórn­ina. Varamenn eru Högni Har­alds­son og Þór­hildur Lilja Ólafs­dóttir.

Glæstur ferill

Jón Arnór, var um langt skeið með bestu körfuknatt­leiks­mönnum Íslands. Áður en hann lagði skóna á hill­una árið 2021, lék hann með félags­liðum í Þýska­landi, Ítalíu, Rúss­landi, Spáni og Banda­ríkj­unum. Þá var hann Íslands­meist­ari með KR fimm sinnum.

Að loknum körfu­bolta­ferl­inum hóf Jón störf hjá BDA Sports Mana­gement og færði sig síðar yfir til starfa hjá verð­bréfa­fyr­ir­tæk­inu Fossar mark­aðir. Jón er með MBA gráðu frá Háskól­anum í Reykja­vík.

Fjármálaráðherra leitaði til Jóns 

Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, greindi frá því í færslu sem birt var á Facebook-síðu ráð­herra að hún hafi átt fund með Jóni Arnóri morgun. Í færsl­unni segir hún Jón vera vel und­ir­bú­inn til þess að takast á við starfið. „Jón Arnór er eins og allir vita marg­faldur Íslands­meist­ari og atvinnu­maður í körfu­bolta sem veit hvað þarf til þess að ná langt og þekkir þarfir íþrótta­hreyf­ing­ar­innar,“ segir Þórdís. 

Þá kemur einnig fram í færsl­unni að hún hafi leitað til hans og beðið hann um að taka starfið að sér. 

Fréttin er í vinnslu og verður upp­færð

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár