Þjóðarhöllin á að kosta 15 milljarða og verða tilbúin 2026
Enn ein und­ir­rit­unin Ásmundur Einar Daðason, ráð­herra íþrótta­mála, Þórdís Kolbrún R. Gylfa­dóttir, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra og Dagur B. Egg­erts­son borg­ar­stjóri und­ir­rit­uðu sam­komu­lagið í gær.

Þjóðarhöllin á að kosta 15 milljarða og verða tilbúin 2026

Rík­is­sjóður mun greiða 8,25 millj­arða króna og Reykja­vík­ur­borg 6,75 millj­arða króna í stofn­fram­lag vegna bygg­ingar Þjóð­har­hallar í Laug­ar­dal. Fjöldi þeirra tíma sem íþrótta­fé­lögin Þróttur og Ármann fá mun rúm­lega tvö­fald­ast með til­komu hennar og sér­stakt bók­un­ar­kerfi á að tryggja að félögin verði ekki víkj­andi við nýt­ingu hall­ar­innar.

Ný Þjóð­ar­höll í Laug­ar­dal á að vera til­búið haustið 2026 og hún mun kosta allt að 15 millj­arða króna. Íslenska ríkið mun greiða 8,25 millj­arða króna og Reykja­vík­ur­borg 6,75 millj­arða króna í stofn­fram­lag. 

Þetta kemur fram í kynn­ingu á fram­kvæmd­inni sem Heim­ildin hefur undir höndum. 

Ásmundur Einar Daðason, ráð­herra íþrótta­mála, Þórdís Kolbrún R. Gylfa­dóttir, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra og Dagur B. Egg­erts­son, sem verður borg­ar­stjóri þangað til í næstu viku, skrif­uðu undir sam­komu­lag um stofnun félags um fram­kvæmd­ina í gær. 

Samkvæmt upp­lýs­ingum Heim­ild­ar­innar hafa við­ræður um kostn­að­ar­skipt­ingu við upp­bygg­ingu og rekstur Þjóð­ar­hallar milli ríkis og Reykja­vík­ur­borgar verið á loka­metr­unum frá því snemma síð­asta haust, og til stóð að und­ir­rita sam­komu­lagið í októ­ber síð­ast­liðnum. Það frestað­ist en und­ir­rit­unin var fyr­ir­huguð í sömu viku og Bjarni Bene­dikts­son sagði af sér sem fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra. 

Und­ir­ritun sam­komu­lags­ins í gær gerð­ist tveimur dögum áður en íslenska hand­boltalands­liðið …

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • jon petur kristjansson skrifaði
    Svona miklir peningar til og Landspítalinn á götunni og Heilbrigðiskerfið í molum ! er búið að setja bráðabirgðalög á lífeyrissjóðina varðandi Grindavík og er búið að festa krónuna við sterkan gjaldmiðil, er komið leiguþak og er verið að byggja nóg af íbúðum og skipa Seðlabankanum að lækka vexti þar að lútandi ? NEIBB ÞETTA ER VINSÆLDA-SÝNING og þetta fólk þarf að kjósa burt ! 30 þúsund barnafjölskyldur og eldra fólk í vandræðum um Jólin !! Þrem vikum seinna er sýning sett í gang og löngutöng rekin framan í nefið á þjóðinni !
    1
  • Ásgeir Överby skrifaði
    Dagar Colosseum eru löngu liðnir en sagan endurtekur sig.
    Líklegt að framlag Reykjavíkur verði í öðru en peningum ef
    ég þekki þá rétt.
    Það er ekki að sjá að félögin sem koma til með að nýta húsið
    leggi neitt fram. Þau hafa komist upp með að eyða öllu sínu
    sjálfsaflafé í ferða-og mótakostnað. Börn eru látin greiða
    himinhá æfingagjöld sem fara að mestu í rekstur efstu deild-
    anna.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár