Herdís Fjeldsted verður forstjóri Sýnar

Herdís Dröfn Fjeldsted
Herdís Dröfn Fjeld­sted var áður for­stjóri Valitor.

Herdís Dröfn Fjeld­sted hefur nú verið ráðin for­stjóri Sýnar. Mun hún hefja þar störf þann 11. jan­úar. Þetta kemur fram í frétta­til­kynn­ingu frá fyr­ir­tæk­inu.

Herdís var áður for­stjóri Valitor en hún hefur einnig verið fram­kvæmda­stjóri Fram­taks­sjóðs Íslands. Herdís hefur setið í fjölda stjórna hjá ýmsum fyr­ir­tækjum. Þeirra á meðal eru Arion banki, Icelandair Group, Icelandic Group og Promens. Herdís er við­skipta­fræð­ingur að mennt með meistara­gráðu í fjár­málum frá HR.

Herdís tekur við af  Páli Ásgríms­syni, fram­kvæmda­stjóra lög­fræðis­viðs Sýnar, sem hefur gegnt for­stjóra­starf­inu tíma­bundið frá í haust. Tók hann við af Yngva Hall­dórs­syni sem var for­stjóri frá því síðla árs 2022. Páll mun nú aftur hverfa til síns fyrra starfs.

Herdís kveðst þakk­lát og full eft­ir­vænt­ingar yfir nýja hlut­verk­inu, að því er kemur fram í til­kynn­ingu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Þorsteinn V. Sigurðsson skrifaði
    Alltaf jafn hissa á að þetta fyrirtæki skuli vera á lífi með sýna háu taxta.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár