Fyrrverandi kjörinn fulltrúi segir að þrívegis hafi verið reynt að múta sér

Tómas Ellert Tómasson steig fram í við­tali við Heim­ild­ina í sept­em­ber og greindi frá því að Leó Árnason, for­svars­maður Sigtúns á Selfossi, hafi reynt að bera á sig fé. Hann segir að fjöl­miðlum hafi í kjöl­farið borist upp­lýs­ingar um að Tómas Ellert væri „geð­veikur, ætti við and­leg vanda­mál að stríða, væri fylli­bytta og allt þetta mál væri á mis­skiln­ingi byggt.“

Fyrrverandi kjörinn fulltrúi segir að þrívegis hafi verið reynt að múta sér
Fyrr­ver­andi bæj­ar­full­trúi Tómas Ellert Tómasson segir að tvö til­boð hafi komið frá einum og sama aðil­anum og það þriðja „frá óskyldum aðila þess fyrr­nefnda“. Hann tók engu þeirra. Mynd: Ingi Freyr Vilhjálmsson

„Á mínum stutta ferli sem póli­tískt kjör­inn full­trúi í sveit­ar­stjórn Svf. Árborgar buð­ust mér þrisvar sinnum fjár­hags­leg til­boð ef að ég seild­ist út fyrir vald­svið mitt og tæki ákvarð­anir sem ekki væru í sam­ræmi við fyr­ir­fram ákveðnar ákvarð­anir ann­arra í þeim meiri­hluta sem ég starf­aði í frá árinu 2018-2022. Tvö til­boð komu frá einum og sama aðil­anum á þessu tíma­bili. Það þriðja kom frá óskyldum aðila þess fyrr­nefnda. Til að gera langa sögu stutta tók ég ekki neinu þeirra.“ 

Þetta segir Tómas Ellert Tómasson, bygg­ing­ar­verk­fræð­ingur og fyrr­ver­andi bæj­ar­full­trúi Mið­flokks­ins í Árborg, í aðsendri grein sem birt­ist á Vísi í dag. Tómas Ellert steig fram í við­tali við Heim­ild­ina 1. sept­em­ber síð­ast­lið­inn þar sem hann greindi frá því að Leó Árna­son, fjár­fest­ir og for­svars­mað­ur fast­eigna­fé­lags­ins Sigtúns á Sel­fossi, hafi gert sér eitt þess­ara til­boða árið 2020. Í því fólst að ef Tómas Ellert átti að beita sér fyr­ir því að sveit­ar­fé­lag­ið hætti við að kaupa hús Lands­bank­ans á Selfossi, sem Sig­tún vildi kaupa. Í stað­inn ætl­aði Leó og fyr­ir­tæki hans og Krist­jáns Vil­helms­sonar, útgerð­ar­manns í Samherja, að sjá til þess að kosn­inga­bar­átta Mið­flokks­ins yrði fjár­mögnuð og myndi skila flokknum í bæj­ar­stjórn. Frásögn Tómasar fylgdi ljós­mynd sem sýnir Leó sitja við tölvu­skjá þar sem sést í hverju til­boðið fólst. Hér­aðs­sak­sókn­ari brást við umfjöll­un­inni og kall­aði Tómas Ellert fyrir, vegna gruns um að lög hefðu verið brotin; að Leó hefði borið fé á Tómas Ellert, jafn­vel þótt Tómas Ellert hefði ekki tekið til­boð­inu. 

Segir aðila tengda Leó hafa hótað fjölmiðlum

Umfjöllun Heim­ild­ar­innar vakti mikla athygli og var til umfjöll­unar á ýmsum öðrum miðlum. Í grein sinni í dag segir Tómas Ellert að hann hafi vit­neskju um að í kjöl­far þess hafi borist upp­lýs­ingar inn á rit­stjórn­ar­skrif­stofur við­kom­andi miðla um að við­kom­andi heim­ild­ar­maður, hann sjálfur, væri „geð­veikur, ætti við and­leg vanda­mál að stríða, væri fylli­bytta og allt þetta mál væri á mis­skiln­ingi byggt. Hringt var inn ótt og títt af aðilum tengdum til­boðs­gjafa. Fjöl­miðl­unum hótað, engar aug­lýs­ingar osfrv.. Málið væri mann­legur harm­leikur og ætti rætur sínar að rekja til þess að heim­ild­ar­mað­ur­inn væri svekktur yfir því að við­kom­andi til­boðs­gjafi hefði ekki gefið honum lóð. Lóð á mesta flóða­hættu­svæði Sel­foss­bæjar. Svæði sem er ógrund­un­ar­hæft með almennum og ein­földum grund­un­ar­að­gerðum og bein­línis lífs­hættu­legt íbúa­svæði.“

Tómas Ellert segir í grein sinni að ein sýni­leg­asta birt­ing­ar­mynd spill­ingar á Íslandi sé það sem kallað er „Elítu­spill­ing“, en það sé spill­ing þar sem óform­legt eða leyni­legt sam­ráð manna í áhrifa­stöðum tekst að fanga opin­bert vald og beita því í eigin þágu. „Mútur eru greiddar til að hafa áhrif. Þær eru greiddar til ein­stak­linga til þess að þeir seilist út fyrir vald­svið sitt eða umboð og breyti rétt teknum ákvörð­unum eða taki ákvarð­anir sem ekki eru í sam­ræmi við fyr­ir­fram ákveðnar reglur. Sá sem mútar hefur alla jafna valda­yf­ir­burði yfir þann sem er mútað þó ekki sé það algilt. Í flestum vest­rænum löndum, Íslandi þar á meðal, er það refsi­vert að bera fé á opin­bera starfs­menn til að fá fyr­ir­greiðslu sem ekki yrði veitt af öðrum kosti. Einnig póli­tískt kjörna full­trúa. Skiptir engu máli hvort við­kom­andi eru inn­lendir eða erlendir.“

Grunaður um mútur en klappaður upp af Guðna

Hin ætl­aða mútutil­raun Leós hafi þó ekki haft neina sýni­lega eft­ir­mála fyrir hann, að minnsta kosti ekki í sveit­ar­fé­lag­inu Árborg. Tómas Ellert greinir frá því að Leó hafi fyrir skemmstu verið „klapp­aður upp af Guðna Ágústs­syni, smæsta ráð­herra lýð­veld­is­ins, á herra­kvöldi knatt­spyrnu­deildar UMF. Selfoss“.

Þar hafi Leó gert það sem Tómas Ellert kallar mislukkað grín að sér, einum dygg­asta stuðn­ings­manni og bar­átt­uglað­asta knatt­spyrnu­manni Sel­foss­liðs­ins allt frá barns­aldri, sem var fjar­ver­andi það kvöldið. „Hugrakkt og smekk­legt af til­boðs­gjafa? Svari nú hver fyrir sig. Viku síðar var til­boðs­gjaf­inn kjör­inn for­maður Knatt­spyrnu­deildar UMF. Selfoss, fjöl­menn­ustu deild­ar­innar innan UMFS, þrátt fyrir að sæta rann­sókn Hér­aðs­sak­sókn­ara fyrir mútu­þægni. Já, þannig birt­ist spill­ingin og sam­spill­ingin mér á Íslandi.“

Kjósa
78
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • HSG
    Helga Salbjörg Guðmundsdóttir skrifaði
    Viðbjóðslegt en kemur akkúrat ekkert á óvart. Sérlega að þetta skuli vera á Selfossi!
    3
    • Jón Ragnarsson skrifaði
      Auðvitað kemur ekkert á óvart , þar sem sjálfstæðisflokkurinn er til staðar ?
      0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár