Akkerisbúnaður skipsins hafi verið „í fullkomnu lagi“

Fram­kvæmda­stjóri Vinnslu­stöðv­ar­innar í Vest­manna­eyjum svarar gagn­rýni félags skip­stjórn­ar­manna í Eyjum, sem lýsti yfir van­þóknun á hendur honum og hluta stjórnar fyr­ir­tæk­is­ins skömmu fyrir jól. Sig­ur­geir Brynjar Krist­geirs­son seg­ist standa við það mat sitt að frænd­urnir sem stýrðu Huginn VE hafi ekki rækt skyldur sínar. Því hafi ekki verið verj­andi annað en að gera við þá starfs­loka­samn­inga.

Huginn VE55
Huginn VE55 Hér má sjá skemmdir á síðu Hugins VE55 skömmu eftir atvikið um miðjan nóv­em­ber.

Sig­ur­geir Brynjar Krist­geirs­son fram­kvæmda­stjóri Vinnslu­stöðv­ar­innar í Vest­manna­eyjum segir, í yfir­lýs­ingu vegna gagn­rýni stétt­ar­fé­lags skip­stjórn­ar­manna í Eyjum í hans garð, að skip­stjórn­ar­menn Hugins VE 55 hafi ekki rækt skyldur sínar í aðdrag­anda þess að akk­eri skips­ins féll útbyrðis og skemmdi einu vatns­leiðsl­una til Heima­eyjar.

Í yfir­lýs­ingu fram­kvæmda­stjór­ans, sem lesa má á vef Vinnslu­stöðv­ar­innar, kemur meðal ann­ars fram að skoðun Vinnslu­stöðv­ar­innar á upp­tökum úr örygg­is­mynda­vélum hafi leitt í ljós að örygg­is­loki eða keðju­stopp­ari akk­eris Hugins, sem komi í veg fyrir að akk­erið falli ef bremsa á spili er losuð, hafi verið opinn í sex vikur áður en óhappið átti sér stað. Til við­bótar segir í yfir­lýs­ing­unni að bæði spil og örygg­is­loki/keðju­stopp­ari hafi verið prófuð eftir atvikið.

„Reyndist hvoru tveggja í full­komnu lagi og héldu akk­eri á sínum stað. Réttur frá­gangur og …

Kjósa
10
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár