Skipstjórnarmenn í Eyjum lýsa yfir „vanþóknun“ á hendur Binna

Verðandi, stétt­ar­fé­lag skip­stjóra og stýri­manna í Vest­manna­eyjum, lýsir yfir „van­þóknun“ á hendur fram­kvæmda­stjóra Vinnslu­stöðv­ar­innar og hluta stjórnar félags­ins, vegna „for­dæma­lauss brott­rekstrar“ skip­stjórn­ar­manna á Hugin VE.

Vinnslustöðin
Vinnslu­stöðin Sig­ur­geir Brynjar Krist­geirs­son er fram­kvæmda­stjóri Vinnslu­stöðv­ar­innar. Mynd: mbl / Óskar Pétur Friðriksson

Skip­stjóra- og stýri­manna­fé­lagið Verðandi í Vest­manna­eyjum, bæði stjórn þess og aðal­fundur, sem fram fór 20. des­em­ber síð­ast­lið­inn, „mót­mælir harð­lega og lýsir yfir van­þóknun á hendur fram­kvæmda­stjóra og hluta stjórnar Vinnslu­stöðvar, vegna for­dæma­lauss brott­rekstrar skip­stjórn­ar­manna á Huginn VE 55“.

Frá ályktun félags­ins er greint á vef bæj­ar­blaðs­ins Tíguls í Vest­manna­eyjum, en Verðandi hefur verið stétt­ar­fé­lag skip­stjórn­ar­manna í Eyjum allt frá árinu 1938.

Í kjöl­far þess að Huginn VE missti akk­eri útbyrðis í nóv­em­ber, með þeim afleið­ingum að það dróst eftir sjáv­ar­botn­inum og reif með sér einu vatns­leiðsl­una til Eyja, gerði Vinnslu­stöðin starfs­loka­samn­inga við tvo skip­stjórn­ar­menn, frænd­urna Gylfa Viðar Guð­munds­son og Guðmund Inga Guð­munds­son.

Í sam­tali við Heim­ild­ina undir lok nóv­em­ber sagði fram­kvæmda­stjóri Vinnslu­stöðv­ar­innar, Sig­ur­geir Brynjar Krist­geirs­son, sem þekktur er sem Binni, að starfs­loka­samn­ingur hefði verið gerður við menn­ina, ekki hefði verið um ein­hliða upp­sögn af hálfu Vinnslu­stöðv­ar­innar að ræða.

Kjósa
20
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár