Dómsmálaráðherra tekur áfengislögin til endurskoðunar á nýju ári

Í svari við fyr­ir­spurn Eyjólfs Ármanns­sonar, sem spurði út í afstöðu dóms­mála­ráð­herra til net­versl­ana sem selja áfengi í smá­sölu, seg­ist ráð­herra ekki hafa beitt sér form­lega eða óform­lega í mála­flokknum. Þá segir einnig að ráð­herra muni leggja fram frum­varp sem festi í lög heim­ild til vef­versl­ana um sölu á áfengi til neyt­enda.

Guðrún Hafsteinsdóttir, dómsmálaráðherra
Guðrún Haf­steins­dóttir, dóms­mála­ráð­herra mun leggja fram frum­varp til breyt­inga á áfeng­is­lögum á næsta ári sem mun heim­ila vef­versl­unum að selja áfengi í smá­sölu til neyt­anda. Mynd: Heiða Helgadóttir

Dóms­mála­ráð­herra segir net­versl­anir sem selja áfengi starfa í skjóli laga­legs tóma­rúms. Núgild­andi áfeng­is­lög end­ur­spegli ekki þá þróun sem hefur átt sér stað, sér­stak­lega hvað varðar net­verslun neyslu­hegðun lands­manna. Þetta kemur fram í svari Guðrúnar Haf­steins­dóttur dóms­mála­ráð­herra við fyr­ir­spurn Eyjólfs Ármanns­sonar, þing­mann flokks fólks­ins, sem birt­ist snemma í des­em­ber, en fyr­ir­spurnin var send ráð­herra í sept­em­ber. 

Í svar­inu segir að ráð­herra ætli sér að leggja fram frum­varp til breyt­inga á áfeng­is­lögum á nýju ári. Breyt­ing­arnar muni meðal ann­ars festa í lög heim­ild til rekst­urs vef­versl­ana með áfengi í smá­sölu. Þá kemur einnig fram í svari dóms­mála­ráð­herra að frum­varpið hafi verið lagt fyrir rík­is­stjórn­ina síð­ast­lið­inn vetur en það frum­varp hafi ekki „náð fram að ganga.“

Sala á áfengi í net­versl­unum hefur auk­ist und­an­farin ár og aðilar sem bjóða upp slíka þjón­ustu hefur fjölgað sömu­leiðis. Margir hafa eflaust orðið varir við aug­lýs­ingar frá slíkum fyr­ir­tækjum yfir hátíð­irnar þar sem skjótar heim­send­ingar …

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár