Fegin að það voru ekki farmar af bókum um Covid

Tveir bók­salar, þau Anna Lea Frið­riks­dóttir hjá Sölku bóka­búð og for­lagi og Starri Reyn­is­son í Eymunds­son, fóru yfir helstu þemun sem komu upp á árinu í bók­unum sem flæddu inn á borð hjá þeim. Sögulega skáldsagan var stórt þema sem og vand­ræði venju­legs fólks og ljóða­bækur seld­ust óvenju­vel.

Anna Lea Friðriksdóttir og Starri Reynisson
Anna Lea Frið­riks­dóttir og Starri Reyn­is­son Þemu jóla­bókanna í ár voru fjöl­breytt að sögn Önnu Leu, bók­sala og útgef­anda, en mest seg­ist hún fegin að hafa ekki fengið margar bækur um Covid. Sögulega skáldsagan var virki­lega áber­andi í ár að sögn Starra Reyn­is­sonar, bók­sala í Eymunds­son, en líka venju­lega fólkið í nútím­anum og vand­ræði þeirra.

Fyrst og fremst var Anna Lea Frið­riks­dóttir, útgef­andi og bók­sali hjá Sölku, mjög fegin að það flæddu ekki inn bækur um Covid þetta árið. „Það er vænt­an­lega ekk­ert leið­in­legra en að lesa um það, held ég, fyrir þá sem eru búin að upp­lifa það,“ segir hún og hlær áður en hún bætir við: „Þetta var alveg svaka­lega gott ljóðaár!“ Ljóða­bækur hafi selst vel þetta árið „miðað við“ síð­ustu ár, það séu alltaf ein­hverjir sem leiti eftir þeim hjá henni en nú nokkuð margir og þá sér í lagi ungt fólk. 

Annars segir hún mikla fjöl­breytni hafa verið hvað varðar þemu bókanna en vissu­lega hafi margir höf­undar tek­ist á við stór mál og nefnir hún sem dæmi Sigríði Hagalín og bók hennar Deus sem fjallar meðal ann­ars um gervi­greind og að „skáldsagan sé að hverfa“, eins og Anna orðar það, þar að …

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár