Dreymir um að koma íslenskum æðardúnssængum á alþjóðamarkað

Frá blauti barns­beini hefur Hilmar Jón Krist­ins­son tínt og verkað æðar­dún. Hann segir for­rétt­indi að fá að umgang­ast æðar­varp og dúnsængur sem hann fram­leiðir eru seldar undir nafn­inu Royal Eiderdown.

Lúxusvara
Lúx­usvara Æðar­dúns­sængur eru ein sjálf­bærasta lúx­usvara í heimi. Mynd: ÚR VÖR

Hilmar Jón Krist­ins­son á ættir að rekja til Skarðs á Skarðs­strönd í Dala­sýslu. Frá blautu barns­beini hefur hann tínt og verkað æðar­dún og dreymir nú um að koma æðar­dúns­sængum sínum á markað erlendis. Undir Skarð heyra hvorki meira né minna en 63 eyjar og því eru hæg heima­tökin að nýta dún á þeim slóðum. Hilmar fundar þessa daga með ýmsum aðilum um að koma einni sjálf­bær­ustu lúx­usvöru í heimi á markað, en dúnsæng­urnar hefur hann fram­leitt og selt undir nafn­inu Royal Eiderdown. 

„Formóðir mín, hún Ólöf ríka, var fyrst allra til að selja út æðar­dúns­sængur á 15. öld. Þannig að við erum svo­lítið að feta í fót­spor for­feðr­anna að því leyt­inu til, þ.e. að halda við við­skiptum í þessu nafni. Ég er alinn upp við með­ferð æðar­dúns og tínslu hans úr eyj­unum okkar og þekki það ferli út og inn, alveg frá hreiðri í sæng. Fyrstu árin og alveg fram undir ferm­ingu var vorið und­ir­lagt varð­andi þetta og sel­veiðar og annað. Þetta er vorferli sem hefur lifað alla tíð frá minni æsku og til dags­ins í dag,“ segir Hilmar.

Fór til Japans og lærði að þvo dúninn

Hilmar segir að tíma­bilið byrji í kringum 20. maí ár hvert og er út júní og um heil­mikið ferli er að ræða. Dúnninn er tíndur úr hreiðr­unum, honum safnað saman og verk­aður. Svo fer hann í þurrk og svo í gróf­hreinsun. Í fram­haldi af því er hann fín­hreins­aður, reyk­hreins­aður og fíber­hreins­aður. Úr því ferli fer hann í svo­kall­aða fjaðra­tínslu­vél, lát­inn snú­ast þar og fer svo í svo­kall­aða hand­fjaðra­tínslu. Þar situr fólk við borð og fer í gegnum hvert ein­asta gramm á dún­inum og hand­tínir úr honum það sem vélar hafa ekki náð. 

Stund milli stríðaHilmar, sem er lengst til hægri á mynd­inni, gæðir sér á nesti með félögum sínum í pásu frá æðar­dúns­tínslu.

„Þá er hann yfir­leitt til­bú­inn til útflutn­ings, en við höfum breytt þessu aðeins, við fórum í að full­vinna hann meira hér á landi. Ég fór til Japans og lærði að þvo dún­inn og verka hann til fulln­ustu, það ferli kunni ég ekki, en lærði sem sagt að verka dún­inn alla leið til sæng­ur­gerðar. Við erum mest­megnis hætt að flytja hann út sem hrá­efni frá okkur, en við vorum með í 20 ár hreins­un­ar­stöð þar sem við hreins­uðum dún­inn fyrir bændur hvar­vetna af land­inu og sendum út á Jap­ans­markað. Við hættum svo öllum þannig rekstri árið 2013, þá hættum við hrá­vinnslu og vinnslu fyrir bændur, það var komin sam­keppni og lítið úr þessu að hafa, bara kostn­aður. Það var því sjálf­hætt og við lögðum þann rekstur niður í kjöl­farið,“ segir Hilmar.

Heimurinn orðinn opnari

Að sögn Hilmars byrj­aði hann að fram­leiða sínar fyrstu sængur í kringum árið 1992 og var þá að búa til sængur fyrir bændur sem áttu dún hjá honum. Bænd­urnir voru að gefa börnum og barna­börnum þessar sængur í ferm­ing­ar­gjöf og segir Hilmar að starfið hafi þró­ast í gegnum árin úr því að fram­leiða æðar­dúns­sængur úr skítugum æðar­dún í að full­vinna hann og búa til lúx­usvöru úr honum. 

Þetta er nátt­úr­lega ein elsta sjálf­bæra lúx­usvara í heimi

„Planið er að selja vörur á erlendan markað, það er verið að leggja drög að því að færa út kví­arnar og reyna að gera eitt­hvað af viti úr þessu. Það eru vanga­veltur og fundir varð­andi þetta, verið að þreifa á ákveðnum aðilum og sjá hvort þetta gangi upp. Japaninn er mjög stór og sterkur í þessu og það er erfitt að keppa við hann, hann er með þetta um allan heim. Tíminn leiðir í ljós hvernig þetta fer og hvort það borgi sig að eiga við þetta, það er mjög kostn­að­ar­samt að fara út í þetta af fullum þunga, maður þarf að gera þetta í ein­hverjum hænu­skrefum. Það eru ekki heldur margir í þessu hér á landi, ég veit um einn annan aðila sem er eitt­hvað að brasa við þetta,“ segir Hilmar.

Hilmar segir að þró­unin sé þannig að heim­ur­inn er orð­inn opn­ari núna gagn­vart aðgengi að fólki og mörk­uðum, það er auð­veld­ara við­viks í dag heldur en var bara fyrir 10 árum síðan bæði að kynna vör­una og selja hana. Að sögn Hilmars skiptir máli að ná í við­skipta­vin­inn og finna þá, sem tekur tíma og er vanda­samt verk.

„Maður bara tæmir hausinn“

„Eins og staðan er núna þá brosi ég út í annað, ég er ekki far­inn að brosa út í bæði, en þetta lítur ágæt­lega út. Þetta er nátt­úr­lega ein elsta sjálf­bæra lúx­usvara í heimi, það liggur í augum uppi, þetta var einu sinni kónga­vara. Fuglinn er ekki drep­inn eða reyttur lif­andi á nokkurn hátt, hann kemur alltaf á sama stað að verpa ef hann finnur frið til þess. Svo eru auð­vitað ákveðin for­rétt­indi að fá að umgang­ast æðar­varp, þetta er úti­vist og úti­vera almennt. Maður er að vinna með hönd­unum og líka hausnum og er að lifa og njóta í leið­inni. Maður bara tæmir haus­inn, hlustar á fugla­söng­inn umhverfis mann og svo er best ef sím­inn þagnar alveg!“ segir Hilmar hlæj­andi að lokum.

Efnið er unnið í tengslum við vefritið ÚR VÖR.

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • HÓ
    Helga Óskarsdóttir skrifaði
    Ég væri til í að kaupa úlpu og sæng búna til úr ísl. dún. Það er svo falleg búgrein með virðingu fyrir náttúrunni.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár