Eldgosið „á kórréttum stað“ en kemur upp á „verstu sprungu sem gat gosið á“

Eldgosið norður af Grinda­vík kemur upp á sprungu sem nátt­úru­vá­r­sér­fræð­ingar hafa hugsað til „með hryll­ingi“. Fyrst um sinn voru þó góðar fréttir af eld­gos­inu.

Þyrlumynd af gosinu Ný mynd frá Landhelgisgæslunni.

Uppfært kl. 12:40 Hraun­flæði úr eld­gos­inu við Sund­hnúks­gíga hefur minnkað um einn fjórða af því sem það var í byrjun. Kviku­strók­arnir eru lægri og eru um það bil 30 metrar þar sem þeir ná hæst. Kemur þetta fram í til­kynn­ingu frá Veð­ur­stofu Íslands sem segir þessar tölur vera sjón­rænt mat úr könn­un­ar­flugi. 

Segir í til­kynn­ing­unni að „þróun goss­ins svipar til eld­gosa við Fagra­dals­fjall þar sem gossprung­urnar eru byrj­aðar að draga sig saman og mynda stök gosop. Á þessum tíma­punkti eru um fimm gosop sem eru dreifð eftir upp­haf­legu sprung­unni.“

Ekki er talin hætta á gasmengun fyrr en seint í nótt eða í fyrra­málið á Höf­uð­borga­svæð­inu, en hennar gæti orðið vart í Vest­manna­eyjum.

Hraun­streymiEnn sem komið er hefur flæði hrauns dvínað á syðri hluta sprung­unnar og er mest eld­virknin um mið­bik hennar. Hraun flæðir helst að Fagra­dals­fjalli.Þróun goss­ins svipar til eld­gosa við Fagra­dals­fjall.

Uppfært kl. 10. Eldgosið er tals­vert stærra og kraft­meira en þau sem hafa orðið á svæð­inu síð­ast­liðin ár. Nokkuð dró úr krafti þess þegar leið á nótt­ina. Það gefur þó engar vís­bend­ingar um hve lengi gosið mun vara, aðeins að það sé að ná jafn­vægi.

Samkvæmt Veð­ur­stof­unni er gossprungan um fjórir kíló­metar að lengd. Norð­ur­endi hennar er rétt austan við Stóra-Skógfell, syðri end­inn er rétt austan við Sundhnúk. Frá syðri end­anum eru tæpir 3 kíló­metrar að jaðri Grinda­víkur.

Lovísa Mjöll Guð­munds­dóttir, nátt­úru­vá­r­sér­fræð­ingur hjá Veð­ur­stof­unni, sagði í sam­tali við Rík­is­út­varpið í morgun að virknin væri að þétt­ast fyrir mið­bik sprung­unnar og að syðri hluti gangs­ins væri að dvína.

Eldgosið hefur ekki áhrif á flug, sam­kvæmt til­kynn­ingu frá sam­skipta­stjóra Icelandair. Það hafði þó þau áhrif að flug­um­ferð­ar­stjórar hættu við boðað verk­fall sitt sem átti að taka gildi í nótt og á morgun.

Gosið við Sýl­inga­fellBjarminn af gos­inu umleikur eldri gíga nærri Sund­hnúka­gígum.

Uppfært kl. 02.10. Eldgosið sem kom upp norður af Haga­felli við Grinda­vík í gær­kvöldi við Sund­hnúka­gíga­röð­ina, sem nátt­úru­vá­r­sér­fræð­ingar hafa hugsað til með hryll­ingi, kemur upp „á kór­réttum stað“, segir Ármann Hösk­ulds­son eld­fjalla­fræð­ingur, í sam­tali við RÚV. Þó kemur gosið upp á „verstu sprungu sem gat gosið á“.

Ármann Hösk­ulds­son var staddur í nótt kl. 2 á Sýl­inga­felli að mæla sprung­una. „Hún er rétt rúm­lega 4 kíló­metra löng og hún nær nátt­úru­lega ekki yfir vatna­skil í átt að Grinda­vík. Hún hefur verið að stjaka sér norður úr og það er kom­inn straumur í norð­austur í átt að Grinda­vík­ur­veg­inum en að öðru leyti fer hraunið í átt til aust­urs í átt að Fagra­dals­fjalli. Þetta er versta sprunga sem gat gosið á.“

Ármann telur að hraun muni bunkast upp við Fagra­dals­fjall, austur af gossprung­unni. „En nokkrir dagar í að það falli niður í Þór­kötlu­staða­hverfi aust­ast í Grinda­vík,“ bætir hann við. Ólíkt því sem kom fram fyrr í nótt segir Ármann gossprung­una ekki virst hafa færst til suð­urs í átt­ina að Grinda­vík.

Uppfært kl. 01.10: Gossprungan er um fjög­urra kíló­metra löng. Magnús Tumi Guð­munds­son jarð­eðl­is­fræð­ingur lýsir því sem hann sá í flugi yfir gos­s­töðv­arnar í við­tali við RÚV. Gossprungan er „miklu stærri og lengri en í fyrri gosum sem við höfum séð á Skaganum,“ segir hann. „Þetta nær frá vatna­skilum og norður eftir til Stóra-Skóg­fells.“

Gosið séð frá NjarðvíkFerða­menn sem aðrir fylgd­ust með eld­gos­inu frá Reykja­nes­braut­inni og nágrenni hennar.
Séð frá Reykja­víkBjarmi og logar goss­ins voru sýni­legir frá höf­uð­borg­ar­svæð­inu í gær­kvöldi.

Magnús Tumi segir hraun­breið­una stóra en þunna. „Þetta virð­ast vera nokkur hund­ruð rúmmetrar á sek­úndu.“ Hann segir stað­setn­ing­una góða miðað við gos á þessum stað. „Skaginn býr yfir­leitt ekki til mjög stór hraun.“

Þróunin hefur verið sú að sprungan teygir sig til suð­urs. „Sprungan var aðeins að teygja sig til suð­urs og hún gæti gert það meira.“ Að hans sögn eru lyk­il­spurn­ingar hvort gosið teygi sig lengra til suð­urs og hversu lengi það heldur áfram. Haldi það áfram með svip­uðum hætti teygir hraun­breiðan sig á slétt­unni milli fjall­anna fyrst um sinn.

Uppfært kl. 01.00: Samkvæmt fréttum RÚV flæðir hraun til norð­urs með­fram varn­ar­garði sem reistur var í kringum Svarts­engi.

Uppfært kl. 00.25: Gossprungan norður af Grinda­vík þró­ast hratt. Benedikt Ófeigs­son, jarð­eðl­is­fræð­ingur hjá Veð­ur­stofu Íslands, segir að gossprungan sé nú að teygja sig til suð­urs. „Það er frekar hröð þróun á gossprung­unni. Hún hefur breitt úr sér mjög hratt. Hún hefur færst eftir Sund­hnúka­gíga­röð­inni til suð­vest­urs, suður fyrir vatna­skilin, og er komin núna 2,5 kíló­metra norður af Grinda­vík. Eldgosið sjálft er norður fyrir það en það er að fær­ast suður yfir vatna­skil,“ segir hann í við­tali við RÚV.

Eldgos hófst klukkan 22:17 skammt norðan við Grinda­vík, milli Haga­fells og Sýl­inga­fells. Neyð­ar­stigi almanna­varna hefur verið lýst yfir. Lög­reglan á Suð­ur­nesjum hefur sent eft­ir­far­andi til­kynn­ingun frá sér: „Eldgos er hafið, rýmið Grinda­vík STRAX en alls ekki um Grinda­vík­ur­veg.“ Fólki í Grinda­vík er ráð­lagt að fara Suð­ur­strand­ar­veg til að flýja bæinn. Gossprungan var upp­haf­lega um þrjá til fjóra kíló­metra frá nyrsta hluta byggð­ar­innar í Grinda­vík, en fær­ist sunnar sam­hliða áfram­hald­andi skjálfta­virkni.

Gos við Sund­hnúka­gígaGossprungan náði í nótt fjög­urra kíló­metra lengd.
EldgosiðMyndbrot frá Almanna­vörnumAlmanna­varna­deild Rík­is­lög­reglu­stjóra

„Þetta er ekki túrista­gos,“ segir Víðir Reyn­is­son, yfir­lög­reglu­þjónn almanna­varna, á blaða­manna­fundi. Víðir var­aði í upp­hafi við því að hraun gæti runnið til Grinda­víkur á örfáum klukku­stundum, ef gos­rásin lægi sunnan við vatna­skil. Svo virð­ist þó ekki vera. Hraunið rennur til norður og fer norður fyrir Sýl­inga­fell. „Stað­setn­ingin virð­ist vera ágæt en gosið er stórt,“ segir hann í við­tali við Rík­is­út­varpið. Sprungan virð­ist vera að teygja sig til norð­urs og mest virkni milli Stóra-Skóg­fells og Sýl­inga­fells. Hluti hrauns­ins rennur í átt til Fagra­dals­fjalls, en hraun­flæði­líkan er ekki til­búið. Gert er ráð fyrir að hraun geti runnið í átt að Grinda­vík og Bláa lón­inu og Svarts­engi, þar sem varn­ar­garðar hafa verið reistir. Ef sprungan teygir sig áfram til norð­urs gæti hraun farið að renna á næstu dögum að Vogum á Vatns­leysu­strönd.

Kvikuflæðið er 100 rúmmetrar á sek­úndu, sam­kvæmt fyrsta mati Víðis Reyn­is­sonar, eða tífalt meira en í fyrsta gos­inu við Fagra­dals­fjall árið 2021. Ármann Hösk­ulds­son eld­fjalla­fræð­ingur gerir ráð fyrir að flæðið sé 150 til 200 rúmmetrar á sek­úndu, þrefalt á við gosið við Litla-Hrút, en helm­ingur á við gosið í Holu­hrauni. Gossprunga er um 3 til 3,5 kíló­metrar að lengd og „miklu meira gos­efni heldur en við sáum þar“, segir Kristín Jóns­dóttir, deild­ar­stjóri eld­virkni, jarð­skjálfta og jarð­hniks hjá Veð­ur­stofu Íslands, í við­tali við RÚV. Hún segir að áhyggjur hafi verið lengi af gosi á þessu svæði og til þess „hugsað með hryll­ingi í lengri tíma“.

Háir goss­trókar liggja frá langri sprungu sem liggur um svæðið milli Haga­fells og Sýl­inga­fells, skammt frá Sundhnúk. Stað­setn­ingin er beint austur af Svarts­engi og Bláa lón­inu. Skammt frá gam­alli gíga­röð.

Ármann Hösk­ulds­son eld­fjalla­fræð­ingur segir í við­tali við RÚV um að ræða „klass­ískt, íslenskt sprungu­gos á flekamótum“. „Um miðjan dag á morgun verða þetta örfáir gígar sem eru eftir,“ segir hann og bætir við: „Þetta verður búið fyrir ára­mót.“

Páll Ein­ars­son jarð­eðl­is­fræð­ingur segir við RÚV að búast megi við því að gos­inu þverri kraftur fljót­lega og að gos­virkni fær­ist yfir í staka gíga eða jafn­vel einn gíg. Hann ber gos­hrin­una á Reykja­nesi saman við Kröflu­elda.1975 til 1984. „Þessi hrina af gosum byrjar með gangainnskotum og litlum gosum til að byrja með, síðan dregur úr stærð gang­anna en gosin vaxa með tím­anum. Þannig að stærsta gosið í Kröflu­hrin­unni var síð­asta gosið og með því gosi end­aði sú atburða­rás.“

KeflavíkFlug­far­þegi tók þessa mynd með útsýni til suð­urs yfir Keflavík.

Goss­trókar „slá í hund­rað metrana“, segir Þor­valdur Þórð­ar­son, sem lýsir sam­felldri sprungu með öfl­ugum kviku­strókum í sam­tali við Rík­is­út­varpið. „Hraunið flæðir til allra átta frá gíg­unum,“ segir hann.

Að sögn Þor­valdar liggur nú fyrir að rétt hafi verið að reisa varn­ar­garð í kringum jarð­varma­virkj­un­ina á Svarts­engi. Þá segir hann að mælt hafi verið fyrir varn­ar­görðum við Grinda­vík og reisa megi garða með skömmum fyr­ir­vara. „Það er ekki eftir neinu að bíða,“ segir hann.

Í fyrra gosi á svæð­inu var löng gossprunga sem náði lang­leið­ina að núver­andi byggð í Grinda­vík. „Syðsti end­inn er ekki nema 800 metrum frá Grinda­vík. Nyrsti end­inn er minna en fimm kíló­metrum frá Vogum,“ útskýrir Þor­valdur í við­tali við Rík­is­út­varpið.

Skömmu eftir að gos hófst hafði lög­reglan beðið fólk að stöðva ekki bif­reiðir sínar við braut­ina. „Við viljum óska eftir því að öku­menn teppi ekki vegi og skapi með því óþarfa hættu með að stöðva á akbrautum og í veg­köntum. Þetta er afskap­lega mik­il­vægt! Höldum vegum opnum þannig að fólk geti rýmt svæðið og við­bragðs­að­ilar kom­ist til og frá!“

Síðar barst önnur til­kynn­ing, þess efnis að búið sé að lokað Reykja­nes­braut­inni. „Við biðjum ykkur um að rýma Reykja­nes­braut­ina strax“.

Íbúar á svæð­inu spyrja lög­reglu á móti hvort þeir kom­ist um Reykja­nes­braut til vinnu á morgun.

Bláa lónið opn­aði í gær eftir að hafa verði lokað þegar rýmt var vegna skjálfta­hr­inu um 10. nóv­em­ber. Mikill þrýst­ingur hafði verði meðal sumra íbúa Grinda­víkur að fá að dvelja í bænum að næt­ur­lagi og greip lög­regla inn í dvöl eins íbú­anna um helg­ina.

Hægt hafði á þenslu undir Svarts­engi síð­ustu daga, en um helg­ina var­aði Veð­ur­stofan við því að of snemmt væri að álykta um stöð­una. „Of snemmt er að full­yrða að kviku­söfnun við Svarts­engi hafi stöðvast og land­risi sé lokið. Vís­bend­ingar eru um að hægt hafi á land­ris­inu síð­ustu daga, en nauð­syn­legt er að bíða eftir frek­ari gögnum til að túlka mögu­lega þróun atburða­rás­ar­innar.“

Gosið um mið­nætti

Eldgosið er hafiðEftir skjálfta­hr­inu sem hófst í kvöld hófst eld­gos.Live from Iceland
Kort Veð­ur­stofu ÍslandsStað­setn­ing goss­ins liggur nú fyrir og er sprungan um 2,8 kíló­metrar að lengd, um þrefalt á við lengstu sprungu við Fagra­dals­fjall.
Skjálfta­hrinaStaðan klukkan hálf ell­efu í kvöld.
Kjósa
18
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Jarðhræringar við Grindavík

Íbúum leyft að dvelja næturlangt í Grindavík þótt lögreglan mæli ekki með því
FréttirJarðhræringar við Grindavík

Íbúum leyft að dvelja næt­ur­langt í Grinda­vík þótt lög­reglan mæli ekki með því

Frá og með morg­un­deg­inum verður íbúum og fólki sem starfar hjá fyr­ir­tækjum í Grinda­vík heim­ilt að fara í bæinn og dvelja þar næt­ur­langt. Í nýlegri frétta­til­kynn­ingu lög­reglu­stjór­ans á Suð­ur­nesjum er greint frá þessu. Íbúar eru þó varaðir við að inn­viðir bæj­ar­ins séu í lama­sessi og sprungur víða. Bærinn sé því ekki ákjós­an­legur staður fyrir fjöl­skyldur og börn.
Tímabært að verja Reykjanesbraut
FréttirJarðhræringar við Grindavík

Tímabært að verja Reykja­nes­braut

Þor­valdur Þórð­ar­son eld­fjalla­fræð­ingur segir að það sé tíma­bært að huga að vörnum fyrir Reykja­nes­braut­ina og aðra inn­viði á Suð­ur­nesjum. Atburða­rásin á fimmtu­dag, þegar hraun rann yfir Grinda­vík­ur­veg og hita­vatns­leiðslu HS Veitna, hafi verið sviðs­mynd sem búið var að teikna upp. Hraun hafi runnið eftir gam­alli hraun­rás og því náð meiri hraða og krafti en ella.
Í Grindavík er enn 10. nóvember
VettvangurJarðhræringar við Grindavík

Í Grinda­vík er enn 10. nóv­em­ber

Það er nógu leið­in­legt að flytja, þegar maður velur sér það sjálfur, hvað þá þegar maður neyð­ist til þess. Og hvernig velur maður hvað eigi að taka með sér og hvað ekki, þegar maður yfir­gefur stórt ein­býl­is­hús með tvö­földum bíl­skúr fyrir litla íbúð með lít­illi geymslu? Fjöl­skyldan á Blómst­ur­völlum 10 í Grinda­vík stóð frammi fyrir þeirri spurn­ingu síð­ast­lið­inn sunnu­dag.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár