Hvað gerist með eldgosið?

Sagan geymir lík­leg­asta þróun eld­goss­ins sem kom upp „á verstu sprungu sem gat gosið á“.

Áhorfendur að eldgosinu
Áhorf­endur að eld­gos­inu Í nótt fylgd­ist hópur fólks með eld­gos­inu frá Reykja­nes­braut­inni. Mynd: Heiða Helgadóttir

Eldgosið norður af Grinda­vík og austur af Bláa lón­inu er „klass­ískt, íslenskt sprungu­gos á fleka­mótum“, sagði Ármann Hösk­ulds­son eld­fjalla­fræð­ingur í sam­tali við RÚV í nótt. Á jarð­sögu­legum skala er ekki langt síðan sein­ast gaus á svæð­inu. Í svoköll­uðum Reykja­nes­eldum, sem er nafnið yfir síð­ustu eld­gosa­hr­inu á skag­anum á 13. öld, gaus bæði norður af svæð­inu, í Arn­ar­set­urs­hrauni, þar sem norð­ur­hluti Grinda­vík­ur­vegar liggur, og vestur af svæð­inu bæði í Illa­hrauni við Bláa lónið og enn vestar í Eld­vörpum. Hraunið við Sund­hnúka rann hins vegar fyrir 2.400 árum. Í það skiptið rann hraun úr níu kíló­metra langri gíga­röð og rann það þar sem nú er vest­ur­hluti Grinda­víkur og hluti hafn­ar­svæð­is­ins. Í nótt var sprungan á svæð­inu rúm­lega fjórir kíló­metrar og strax farin að umbreyt­ast úr sam­felldri gossprungu í gíga­röð, líkt og búast má við.

Þróun slíkra gosa er vel þekkt í jarð­sögu Reykja­ness. Í upp­hafi gosa er kraftur mestur, en fljót­lega dregur úr honum og gossprungan missir sam­fellu með myndun stakra gíga eða eins gígs. Hraun eru gjarnan ekki mjög víð­feðm á Reykja­nesi í sam­an­burði við hraun nær miðju lands­ins.

Gosið er á svæði sem Kristín Jóns­dóttir, hóp­stjóri nátt­úru­vár­vaktar Veð­ur­stofu Íslands, sagði í nótt að þau hefðu „hugsað með hryll­ingi til í lengri tíma“. Fyrstu fréttir af gos­inu voru þó góðar fréttir. „Sprungan er á kór­réttum stað,“ sagði Ármann í nótt. „Ekki að draga úr því að þetta er versta sprunga sem gat gosið á.“

Ármann var staddur í nótt kl. 2 á Sýl­inga­felli að mæla sprung­una. „Hún er rétt rúm­lega 4 kíló­metra löng og hún nær nátt­úru­lega ekki yfir vatna­skil í átt að Grinda­vík. Hún hefur verið að stjaka sér norður úr og það er kom­inn straumur í norð­austur í átt að Grinda­vík­ur­veg­inum en að öðru leyti fer hraunið í átt til aust­urs í átt að Fagra­dals­fjalli.“

Páll Ein­ars­son jarð­eðl­is­fræð­ingur sagði að búast mætti við því að gos­inu þyrri kraftur fljót­lega og að gos­virkni færð­ist yfir í staka gíga eða jafn­vel einn gíg. Hann bar gos­hrin­una á Reykja­nesi saman við Kröflu­elda.1975 til 1984. „Þessi hrina af gosum byrjar með gangainnskotum og litlum gosum til að byrja með, síðan dregur úr stærð gang­anna en gosin vaxa með tím­anum. Þannig að stærsta gosið í Kröflu­hrin­unni var síð­asta gosið og með því gosi end­aði sú atburða­rás.“ 

Gosið, sem var í upp­hafi vel yfir tífalt kraft­meira en fyrsta gosið var í Fagra­dals­fjalli, fór þó af stað á besta mögu­lega hátt fyrst um sinn.

Kviku­gang­ur­inn gæti hins vegar færst til, eins og sýndi sig þegar hann færð­ist undan frá Sund­hnúka­gígum og beint undir byggð­ina í Grinda­vík í kringum 10. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn með þeim afleið­ingum að bær­inn var rýmdur síðar um dag­inn. Þar liggja helstu áhyggjur jarð­fræð­inga og almanna­varna, sem ann­arra, að gossprungan teygi sig suður yfir vatna­skil í átt að Grinda­vík, með þeim afleið­ingum að hraun flæði á byggð­ina. 

„Þetta verður búið fyrir ára­mót“
Ármann Hösk­ulds­son
Eld­fjalla­fræð­ingur

Önnur sviðs­mynd er síðan að hraun renni til norð­urs í átt­ina að Vogum á Vatns­leysu­strönd, en byggðin þar er í um 9 kíló­metra fjar­lægð frá gos­s­töðv­unum þar sem þær eru nú, ólíkt um 3 kíló­metrum frá Grinda­vík.

Ármann Hösk­ulds­son bjóst við því í nótt að hraun myndi renna áfram til aust­urs og „bunkast upp“ við Fagra­dals­fjall, en að lokum, haldi gosið áfram, leita í átt­ina að Þór­kötlu­staða­hverfi sem liggur aust­ast í Grinda­vík.

„Um miðjan dag á morgun [í dag] verða þetta örfáir gígar sem eru eftir,“ sagði hann. „Þetta verður búið fyrir ára­mót.“ 

Gossprungan í morgunUm fjög­urra kíló­metra löng gossprungan náði ekki suður fyrir vatna­skil að Grinda­vík. Eftir því sem leið á nótt­ina og að morgni færð­ist gos­virknin að mið­biki sprung­unnar en dvín­aði syðst.

Hraun­flæði­líkan munu hins vegar gefa bestu vís­bend­ing­una um áhrif eld­goss­ins að óbreyttu. Magnús Tumi Guð­munds­son jarð­eðl­is­fræð­ingur sagði í nótt að lyk­il­spurn­ingar væru tvær: Hversu lengi gosið stæði yfir og svo hvort gossprungan myndi teygja sig sunnar, og þá yfir vatna­skilin að Grinda­vík.

Lítið má því út af bregða. Ólíkt fyrri gosum síð­ustu ára á Reykja­nesskaga hélt skjálfta­virkni áfram eftir að gosið hófst. Fyrri part nætur teygðu skjálftar sig suður fyrir Hagafell, innan við tveimur kíló­metrum frá byggð­inni í Grinda­vík. Að sögn Víðis Reyn­is­sonar, yfir­lög­reglu­þjónst almanna­varna, tæki lík­lega of langan tíma að reisa varn­ar­garða við bæinn sem hafa verið hann­aðir.

Eftir fyrstu nótt­ina bendir hins vegar flest til þess að eld­virknin hafi verið að þétt­ast við mið­bik kviku­gangs­ins og syðsti hlut­inn að dvína. Jafn­framt fjar­aði skjálfta­virkni út þegar leið á nótt­ina. 

Kjósa
13
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • JA
    Jón Arnarson skrifaði
    Það vekur furðu hvert stuðningur vegna náttúruhamfara virðast fara.
    Hvað einstaklinga varðar, þá hefur komið í ljós að fjöldi húsa er ekki bjargandi, þá er fyrsta tilkynning frá Viðlagasjóði að einungis verði greitt fyrir ætlað brunabótamat, að slepptu einhverjum prósentum og ætluðum förgunarkostnaði!
    Með öðrum orðum, brot af raunverulegu tjóni er bætt.
    Ef hins vegar drullupollur, afurð frá virkjun sem notað er sem ferðamannastaður, þarf að loka, þá eru strax tillögur um að gefa viðkomandi lokunarstyrk – óafturkræfan.
    Það mætti geta þess að þessi drullupollur hefur gefið sínum eigendum milljarða arð á hverju ári.
    Þann sama drullupoll ásamt virkjuninni þótti rétt að verja með framkvæmd, varnargarð er hefur þegar kostað ótrúlega milljarða úr vösum skattborgaranna
    Getur verið að ráðamenn geri ekki grein á milli þess er verið er að vernda innviði samfélagsins og einkahagsmuni einhverra einstaklinga?
    Virkjun er án vafa, hluti af innviðum samfélagsins, en afleiddur drullupollur vegna þessa????
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Jarðhræringar við Grindavík

FréttirJarðhræringar við Grindavík

Íbúum leyft að dvelja næt­ur­langt í Grinda­vík þótt lög­reglan mæli ekki með því

Frá og með morg­un­deg­inum verður íbúum og fólki sem starfar hjá fyr­ir­tækjum í Grinda­vík heim­ilt að fara í bæinn og dvelja þar næt­ur­langt. Í nýlegri frétta­til­kynn­ingu lög­reglu­stjór­ans á Suð­ur­nesjum er greint frá þessu. Íbúar eru þó varaðir við að inn­viðir bæj­ar­ins séu í lama­sessi og sprungur víða. Bærinn sé því ekki ákjós­an­legur staður fyrir fjöl­skyldur og börn.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár