„Ég var búin að drekka of mikið og brást illa við þegar dyraverðir opnuðu hurðina á klósettinu“

Arndís Anna Krist­ín­ar­dóttir Gunn­ars­dóttir, þing­kona Pírata, segir að hegðun hennar hafi ekki verið til fyr­ir­myndar á föstu­dags­kvöld. Hún hafi beðið hlut­að­eig­andi afsök­unar og að sér þykir „leitt að hafa brugð­ist svona við.“

„Ég var búin að drekka of mikið og brást illa við þegar dyraverðir opnuðu hurðina á klósettinu“

„Þetta mál er mér ekki til sóma og mér þykir það mjög leið­in­legt.“ Svona hefst stutt yfir­lýs­ing sem Arndís Anna Krist­ín­ar­dóttir Gunn­ars­dóttir, þing­kona Pírata, hefur sent frá sér.

Þar segir hún að á föstu­dags­kvöld, þegar hún var hand­tekin á skemmti­staðnum Kiki, hafi hún verið „búin að drekka of mikið og brást illa við þegar dyra­verðir opn­uðu hurð­ina á kló­sett­inu, ég var dóna­leg og streitt­ist á móti. Óháð öllu öðru, var hegðun mín ekki til fyr­ir­myndar.“

Arndís Anna segir að hún hafi beðið hlut­að­eig­andi afsök­unar á fram­komu sinni. „Það eru for­rétt­indi að vera kjör­inn full­trúi, því fylgir ábyrgð og mér þykir leitt að hafa brugð­ist svona við.“

Þing­mað­ur­inn var hand­tekin á föstu­dags­kvöld eftir að hafa verið tals­verðan tíma inni á kló­setti skemmti­stað­ar­ins Kiki. Dyra­verðir stað­ar­ins ætl­uðu vegna þessa að vísa henni út af staðnum. Við það komst hún í mikið upp­nám og lög­reglan var kölluð til. 

Arndís Anna greindi frá mál­inu í færslu á Facebook í gær, í kjöl­far þess að mbl.is hafði greint frá hand­töku hennar. Þar sagði meðan ann­ars: „Ég brá mér á skemmti­stað á föstu­dags­kvöld, eins og gengur og ger­ist, og fór á einn minn upp­á­halds­stað, Kiki. Ég fór á sal­ernið og var búin að vera þar sjálf­sagt í tals­verðan tíma þegar dyra­verðir opna hurð­ina.

Mér brá við þetta og við að það stæði til að bera mig út með valdi, þegar mér fannst ekki til­efni til. Ég hef skiln­ing á því að starf dyra­varða á skemmti­stöðum sé erfitt og ekki síst með fullt hús af fólki í mis­jöfnu ástandi, þó mín upp­lifun hafi verið sú að þarna hafi fram­ganga þeirra verið óþarf­lega harka­leg og nið­ur­lægj­andi. Ég hef talað við fyr­ir­svars­mann stað­ar­ins sem bað mig afsök­unar fyrir þeirra hönd, sem mér þykir afar vænt um.“

Í færsl­unni í fær sagð­ist Arndís Anna vera þakk­lát lög­regl­unni fyrir þeirra við­brögð og fag­mennsku, og fyrir alúð­ina sem þau sýndu sér í kjöl­farið, enda hafi hún kom­ist í tals­vert upp­nám við það sem hún kallar aðfarir. „Það að lög­reglan taki útkall frá hinsegin skemmti­stað alvar­lega, hvers eðlis sem það er, og bregð­ist svona skjótt við er sér­stak­lega mik­il­vægt og ylj­aði það mér um hjarta­ræt­urnar í öllum þessum ósköpum."

Heim­ildin greindi frá því fyrr í dag að samkvæmt frétt sem birt­ist á vef­miðl­inum Nútím­anum í morgun stað­festu „heim­ild­ar­menn innan lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu“ við mið­il­inn í hvernig ástandi Arndís Anna hefði verið þegar lög­reglan kom á vett­vang á skemmti­staðnum Kiki aðfar­arnótt laug­ar­dags; að hún hefði verið „dáin áfeng­is­dauða,“ upp­lýs­ingar sem lög­reglan hefur ekki gefið út opin­ber­lega.

Samkvæmt svörum lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu við fyr­ir­spurn Heim­ild­ar­innar verða þessar stað­hæf­ingar sem þarna koma fram teknar til skoð­unar. Sé þetta rétt, að slíkar upp­lýs­ingar hafi borist frá lög­regl­unni sé það „óheim­ilt,“ sam­ræm­ist ekki vinnu­reglum lög­regl­unnar og sé brot á trún­aði. 

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár