Þingkona Pírata handtekin á skemmtistað

Arndís Anna Krist­ín­ar­dóttir Gunn­ars­dóttir, þing­kona Pírata, var hand­tekin á skemmti­stað á föstu­dags­kvöld. Hún segir dyra­verði hafa viljað vísa sér út fyrir að vera of lengi á sal­erni stað­ar­ins.

Þingkona Pírata handtekin á skemmtistað
Pírati Arndís Anna Krist­ín­ar­dóttir Gunn­ars­dóttir segir að hún upp­lifi fram­göngu dyra­varða „óþarf­lega harka­lega og nið­ur­lægj­andi.”

Arndís Anna Krist­ín­ar­dóttir Gunn­ars­dóttir, þing­kona Pírata, var hand­tekin á skemmti­staðnum Kíkí á föstu­dags­kvöld. Hún hafði verið tals­verðan tíma á sal­erni stað­ar­ins og sam­kvæmt frá­sögn hennar stóð til að vísa henni út af staðnum vegna þessa.
Við það komst hún í upp­nám og lög­reglan var kölluð til.

Frá þessu greinir Arndís Anna a Facebook-síðu sinni en greinir ekki nánar frá ástæðu þess að vísa átti henni út af staðnum. Færslan birt­ist eftir að mbl.is hafði greint frá hand­tök­unni.

Í færsl­unni segir: „Ég brá mér á skemmti­stað á föstu­dags­kvöld, eins og gengur og ger­ist, og fór á einn minn upp­á­halds­stað, Kiki. Ég fór á sal­ernið og var búin að vera þar sjálf­sagt í tals­verðan tíma þegar dyra­verðir opna hurð­ina.

Mér brá við þetta og við að það stæði til að bera mig út með valdi, þegar mér fannst ekki til­efni til. Ég hef skiln­ing á því að starf dyra­varða á skemmti­stöðum sé erfitt og ekki síst með fullt hús af fólki í mis­jöfnu ástandi, þó mín upp­lifun hafi verið sú að þarna hafi fram­ganga þeirra verið óþarf­lega harka­leg og nið­ur­lægj­andi. Ég hef talað við fyr­ir­svars­mann stað­ar­ins sem bað mig afsök­unar fyrir þeirra hönd, sem mér þykir afar vænt um.“

Þar seg­ist Arndís Anna vera þakk­lát lög­regl­unni fyrir þeirra við­brögð og fag­mennsku, og fyrir alúð­ina sem þau sýndu sér í kjöl­farið, enda hafi hún kom­ist í tals­vert upp­nám við það sem hún kallar aðfarir. „Það að lög­reglan taki útkall frá hinsegin skemmti­stað alvar­lega, hvers eðlis sem það er, og bregð­ist svona skjótt við er sér­stak­lega mik­il­vægt og ylj­aði það mér um hjarta­ræt­urnar í öllum þessum ósköpum."

Kjósa
18
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (5)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Guðjón Jensson skrifaði
    Ánægjulegt er að lesa góð viðbrögð lögregluþjónarnir. Þeir hafa viljað gera gott úr þessu og sýnt af sér hárrétt viðbrögð. Það getur komið fyrir alla að lenda í aðstöðu sem margir líta illa. Því er engin ástæða til að gera meira úr þessu.
    3
  • Ingolfur Gudmundsson skrifaði
    Var hún bókstaflega handtekin, þeas sett í járn og í fangageymslur eða var lögreglan kölluð á staðinn og málið svo leyst og án handtöku, eins og fréttin gefur til kynna? Dáldið mikið klickbait í fyrirsögninni, sem ég hélt að Heimildin væri yfir hafin.
    2
  • BDÞ
    Birgir Dalai Þórðarson skrifaði
    Þvílik rugl grein og sérstaklega þáttur, Arndísar, reynir samt að upphefja sjálfa sig m.a. með hrósi yfir aðra þátttakendur, harðhentan dyravörð, ljúfar löggur og eigandann sem snobbaði fyrir þingkonu. Segir ekki, sem margir vilja vita, en engum kemur við; Hvað var hún að dvelja svo lengi á salerni staðarins ?? Klósettsaga, sem er fyrir neðan virðingu Heimildarinnar !
    1
  • Þorsteinn V. Sigurðsson skrifaði
    Eru tímamörk á klósettum ?
    2
  • Björn Ólafsson skrifaði
    Þessir dyraverðir eru ekki upp á marga fiska, þar sem þetta verkefni var þeim óviðráðanlegt án aðstoðar lögreglu.
    -2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár