Guðni sækist eftir formannssæti KSÍ að nýju

Fyrr­ver­andi for­maður KSÍ, sem hætti í kjöl­far þess að sam­bandið var gagn­rýnt harð­lega fyrir þöggun og með­virkni með meintum ger­endum, ætlar að bjóða sig fram aftur á nýju ári.

Guðni sækist eftir formannssæti KSÍ að nýju
Fyrr­ver­andi for­maður „Verk­efnið framundan hjá knatt­spyrnu­hreyf­ing­unni er að taka umræðu og fræðslu um það hvernig við fyr­ir­byggjum kyn­ferð­is­of­beldi, og að brugð­ist verði við þeim málum sem upp kunna að koma af fest­u,“ skrif­aði Guðni árið 2021. Í yfir­lýs­ingu sinni um for­manns­fram­boð nú nefnir hann for­varnir gegn kyn­ferð­is­of­beldi ekki einu orði. Mynd: mbl/ Eggert Jóhannesson

Guðni Bergsson, fyrr­ver­andi for­maður Knatt­spyrnu­sam­bands Íslands (KSÍ), ætlar að bjóða sig fram til for­manns KSÍ að nýju. Þetta seg­ist hann gera vegna „fjölda áskor­ana.“

Guðni hætti sem for­maður KSÍ í ágúst­mán­uði árið 2021. Þá hafði KSÍ verið gagn­rýnt harð­lega fyrir þöggun og með­virkni með meintum ger­endum innan þess. Vanda Sig­ur­geirs­dóttir tók þá við kefl­inu en hún til­kynnti í byrjun þessa mán­aðar að hún hygð­ist ekki taka þátt í kom­andi for­manns­kjöri.

Í des­em­ber­mán­uði það sama ár birti úttekt­ar­nefnd á vegum Íþrótta­fé­lags Íslands (ÍSÍ) úttekt á við­brögðum og máls­með­ferð KSÍ vegna meints kyn­ferð­is­of­beldis sem tengd­ist leik­mönnum í lands­liðum Íslands. 

Fengu upplýsingar um meinta hópnauðgun

Þar kom fram að KSÍ hafi fengið upp­lýs­ingar um meinta hópnauðgun tveggja lands­liðs­manna, sem var sögð hafa átt sér stað ell­efu árum fyrr, í júní árið 2021. Eftir til­kynn­ingu þar um frá starfs­manni sam­bands­ins, tengda­móður þol­and­ans, var meðal ann­ars rætt við annan ger­and­ann. Samt ákvað KSÍ að hlíta ráð­legg­ingu almanna­tengsla­fyr­ir­tækis og svara fyr­ir­spurnum fjöl­miðla um málið með vill­andi hætti. 

Í yfir­lýs­ingu sem Guðni sendi frá sér í kjöl­far birt­ingar úttekt­ar­innar  sagð­ist hann hafa borið ábyrgð á við­brögðum sam­bands­ins, vegna þeirra ofbeld­is­mála sem komu upp í for­mann­s­tíð hans. Sömu sögu hafi verið að segja um miðlun upp­lýs­inga til fjöl­miðla og almenn­ings. „Þar hefði ég getað gert bet­ur,“ sagði Guðni þá.

Hann bætti því við að hann hafi ein­blínt um of á formið og trúnað við máls­að­ila. „Ég reyndi þó eftir bestu getu í þeim tveimur málum sem komu til minnar vit­undar að finna þeim réttan far­veg,“ sagði Guðni. 

„Annað var leyst með sátt á milli máls­að­il­anna sjálfra en hitt málið er nú loks komið í far­veg hjá lög­reglu. Sem sam­fé­lag erum við að stíga erfið en mik­il­væg skref í sam­tal­inu um kyn­ferð­is­brot og hvernig við tök­umst á við þau. Verk­efnið framundan hjá knatt­spyrnu­hreyf­ing­unni er að taka umræðu og fræðslu um það hvernig við fyr­ir­byggjum kyn­ferð­is­of­beldi, og að brugð­ist verði við þeim málum sem upp kunna að koma af fest­u.“

Ekkert um forvarnir í yfirlýsingunni

For­manns­kjörið fer fram í lok febr­úar næst­kom­andi. 

„Fót­bolt­inn hefur verið í stóru hlut­verki allt mitt líf og ég brenn fyrir íþrótt­ina,“ skrifar Guðni í til­kynn­ingu sem hann sendi fjöl­miðlum fyrir skemmstu. Þar seg­ist hann jafn­framt vilja vinna að því betrum­bótum á starfi KSÍ og aðild­ar­fé­laga sam­bands­ins. 

Mark­miðið segir Guðni að sé „fram­gangur fót­bolt­ans í land­inu.“

Hann seg­ist ætla að kynna áherslur sínar betur síðar en minn­ist ekki einu orði á það sem hann sagði mik­il­vægt fyrir tveimur árum síðan, for­varnir gegn kyn­ferð­is­of­beldi. 

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Ásgeir Överby skrifaði
    "Markmiðið segir Guðni að sé „framgangur fótboltans í landinu.“"
    Framgangur fótboltans getur varla orðið meiri. "Colosseum" í Reykjavík, hallir og vellir um allt land. Allt í boði skattgreiðenda.
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár