KSÍ heyrði fyrst af máli Alberts í júlí – „Á þessum tíma var þetta orðrómur“

Starfs­fólki KSÍ barst í sumar orðrómur um meint brot Alberts Guð­munds­sonar lands­liðs­manns og var stjórn félags­ins til­kynnt um það án þess að hann væri nafn­greindur. Ljóst er að verk­ferlar innan KSÍ þegar kemur að meintum ofbeld­is­brotum leik­manna hafa verið teknir til gagn­gerrar end­ur­skoð­unar síðan Guðni Bergsson þurfti að segja af sér sem for­maður KSÍ eftir að hafa logið vegna slíkra mála. Vanda Sig­ur­geirs­dóttir vill ekki ræða hvort end­ur­teknar kærur vegna kyn­ferð­is­brota gegn lands­liðs­mönnum hafi nei­kvæð áhrif á ímynd þess.

KSÍ heyrði fyrst af máli Alberts í júlí – „Á þessum tíma var þetta orðrómur“
Ólík við­brögð vegna ásak­ana um kyn­ferð­is­brot Lands­liðs­mað­ur­inn Albert Guð­munds­son sem hefur verið kærður, Vanda Sig­ur­geirs­dóttir for­maður KSÍ og Guðni Bergsson fyrr­ver­andi for­maður. Mynd: Heimildin Tómas

„Lögmaður hringdi í okkur og til­kynnti okkur að það væri búið að leggja fram kæru,“ segir Vanda Sig­ur­geirs­dóttir, for­maður Knatt­spyrnu­sam­bands Íslands (KSÍ), um kæru vegna kyn­ferð­is­brots gegn lands­liðs­mann­inum Alberti Guð­munds­syni sem einnig leikur með Genóa á Ítalíu. Símtalið barst að morgni mið­viku­dags­ins 23. ágúst, fyrir tveimur dögum. Vanda vill þó ekki nafn­greina mann­inn, talar aðeins um „leik­mann“, en Albert hefur verið nafn­greindur bæði í íslenskum og ítölskum fjöl­miðlum. 

Upp­haf­lega hafði starfs­fóki KSÍ hins vegar borist orðrómur um meint brot Alberts. „Það ger­ist í lok júlí,“ segir Vanda. „Það er orðrómur og við tökum öll svona mál alvar­lega, viljum gera það sem okkur ber að gera sam­kvæmt okkar ferlum og vísum þessu beint til sam­skipta­ráð­gjafa,“ segir hún. 

Stjórn upplýst um orðróminn

Sam­skipta­ráð­gjafi íþrótta- og æsku­lýðs­starfs tók til starfa á vor­mán­uðum 2020 eftir að frum­varp til laga um starfið var unnið í mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neyt­inu. Mark­miðið með starfi sam­skipta­ráð­gjafa …

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Sigmundur Guðmundsson skrifaði
    "Samskiptaráðgjafi íþrótta- og æskulýðsstarfs tók til starfa á vormánuðum 2020 eftir að mennta- og menningarmálaráðuneytið setti lög um starfið."

    Á Íslandi er lagasetning í höndum Alþingis. Framkvæmdarvaldið og þar með ráðuneytin setja ekki lög.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár