Logn í vindasömum heimi

Bækur Auðar eru djúpur sjór að veiða úr. Þær eru barma­fullar af til­vís­unum, táknum, myndum og mennsku. Hér, líkt og í öðrum skáld­sögum Auðar, er sterk teng­ing við nátt­úr­una, dýr og þá sér­stak­lega fugla. Auður nær að lauma upp­lýs­ingum og gagn­rýni til les­enda í gegnum fal­legan og hvers­dags­legan en líka húmor­ískan texta.

Logn í vindasömum heimi
Auður Ava Ólafs­dóttir. Höfundur DJ Bambi Mynd: Davíð Þór
Bók

DJ Bambi

Höfundur Auður Ava Ólafsdóttir
Benedikt bókaútgáfa
192 blaðsíður
Niðurstaða:

Kómík hversdagsleikans skín í gegnum fallegan og látlausan texta skrifaðan af hlýju og samkennd.

Gefðu umsögn

Auður Ava er með þekkt­ari höf­undum þjóð­ar­innar. Sögu­hetja níundu skáld­sögu hennar er Logn, 61 árs gömul trans kona. Við hittum hana í Reykja­vík þar sem hún býr og starfar en fáum að heyra af upp­vaxt­ar­árum hennar fyrir vestan og veg­ferð hennar hingað til, allt frá móð­ur­kviði til kven­horm­óna og bið­inni löngu eftir leið­rétt­andi kyn­færa­að­gerð. Bókin hefst á könn­un­ar­ferðum hennar með­fram strand­lengju höf­uð­borg­ar­innar þar sem hún leitar að heppi­legum stað til að ganga í sjó­inn. Ákvörð­unin er hvers­dags­leg og kómísk í því hvernig hún vill ekki að rúskinn­s­kápa hennar skemmist. Logn vill samt ekki deyja fyrr en hún hefur leið­rétt „stærsta mis­skiln­ing lífs“ síns, að hafa fæðst sem drengur. Hún finnur fyrir mik­illi van­líðan og kynama meðan hún bíður eftir aðgerð­inni sem hún hefur beðið eftir í sex ár. 

Ung að árum tekur Logn ákvörðun um að gef­ast upp á því að vera hún og verða bara strákur. Hún lærir fyrir það eins og leik­ari fyrir hlut­verk eða nem­andi fyrir próf. Les bækur, hermir eftir hegðun stráka og lærir allt um fót­boltalið fyrir „strákaferð“ á fót­bolta­leik í Manchester, varð sér­fræð­ingur í því að vera karl­maður. Hún finnur aðferðir til að lifa af. 

DJ Bambi er nafnið sem Logn not­aði þegar hún vann sem plötu­snúður á homma­bar með­fram háskóla­námi, áður en hún kynnt­ist Sonju, fyrrum eig­in­konu sinni og barns­móður. Upptök nafns­ins koma frá Guðríði, móð­ur­ömmu Logns, sem kall­aði hana það og Trausti tví­bura­bróðir hennar tók upp þráð­inn þegar amma þeirra lést. Þau og Lovísa, kona Trausta, eru jafn­framt þau einu sem virð­ast við­ur­kenna Logn, sem stendur ann­ars utan fjöl­skyld­unnar. Henni er ítrekað ekki boðið á fjöl­skyldu­sam­komur, sonur hennar vill ekki kalla hana mömmu, hún fær ekki að passa barna­barnið sitt. „Listi yfir þau sem hafa snúið baki við mér eftir að ég ákvað að standa með sjálfri mér: Systur mínar tvær. Mágar mínir. Frænd­fólk og hálf­systur fyrir vestan. Afkom­endur Guðríðar ömmu. Tveir sam­starfs­menn mínir sem kalla mig enn V.“ 

Auður hefur sagst skrifa gegn myrkr­inu, hver bók sé eins og eld­spýta til höf­uðs þess. Hún vilji gefa þeim rödd sem hafi ekki rödd sjálfir til þess að leið­rétta ein­hverja skekkju í heim­inum. Hér gefur hún Logni í vinda­sömum heimi orðið og heldur áfram rann­sókn sinni á kynj­aðri ver­öld. Í fjórðu skáld­sögu Auðar, Und­an­tekn­ing­unni, fer Flóki frá Maríu því hann er sam­kyn­hneigður. Hér fer Logn frá Sonju því hún er trans kona. Bæði áttu þau börn fyrir. Auður Ava skoðar mis­mun­andi fjöl­skyldu­mynstur nútím­ans og skrifar nýjan hvers­dags­leika. Skrif hennar beina sjónum að sam­skiptum fólks og sam­skipta­leysi og í þeim má finna eins konar ferða­sögur fólks sem leitar einna helst að sjálfu sér. Þannig snú­ast þau ekki í kringum stóra atburði, heldur er ljós­inu beint að hinu hvers­dags­lega og smáa og feg­urð þess. Það er til að mynda fal­legt að sjá hvernig Trausti passar upp á Logn og reynir að tjá að hann standi með henni, bæði því hann er maður fárra orða en líka því hann er 61 árs gam­all maður að læra á raun­veru­leika sem hann reynir að laga sig að. „Ég hélt að bróðir minn væri hommi en ég hafði rangt fyrir mér [...] ég vissi ekki að þú vildir vera stelpa. Síðan þá hefur hann mátað ýmsar við­bætur þar til hann sagði loks, ég gerði mér ekki grein fyrir því að þú hefðir alltaf verið stelpa, Bambi.“ Auður Ava skrifar sam­band tví­bu­r­anna af raun­veru­legri hlýju og sam­kennd. 

Í kafl­anum „Hinn langi tími bið­ar­innar“ er sjónum beint að því hversu langt og óað­gengi­legt kyn­leið­rétt­ing­ar­ferlið er og í ljósi þess er mjög trú­verð­ugt að við hittum sögu­hetj­una á helj­ar­þröm. Fyrir utan bið­ina er áreitið sem trans ein­stak­lingar verða fyrir gíf­ur­legt. Hér gengur eldri maður upp að Logni og spyr hvort hún sé búin að „skera hann af“. Áreitið getur tekið á sig ýmsar myndir, eins og þegar for­maður hús­fé­lags­ins spyr Logn hvort hún sé kona og segir að ekki allir í blokk­inni hafi verið á sama máli um það. Logn minn­ist einnig á í fram­hjá­hlaupi að það sé nokkuð langt síðan hún „lenti í því að vera lamin“.

Blaða­konan Auður T hefur sam­band því hún vill ræða við Logn „hvernig sé að vera elsta trans konan á land­inu að bíða eftir aðgerð“. Það er skemmti­legt að Auður nefni blaða­kon­una Auði T. Þar er þá á ferð­inni eins konar Auður tvö, sem reynir að skrifa inni í bók Auðar Övu. Auðarnar tvær eru því með sama við­mæl­and­ann, eini mun­ur­inn er að Logn heldur hlutum frá Auði T. Eins og mannætu­blómið Auður tvö úr Litlu hryll­ings­búð­inni vill Auður T sífellt meira. Fyrst vill hún taka við­tal við Logn, því næst skrifa bók. Auður býður henni í ísbílt­úra, smjaðrar fyrir henni og tekur jafn­vel upp á því að mæta heim til hennar. Blaða­menn eru hlið­verðir upp­lýs­inga hins almenna borg­ara og Logn er tor­tryggin á hana. Spennan sem sam­band þeirra skapar innra með sögu­hetj­unni skil­aði sér ekki alltaf til mín, ég upp­lifði sam­skipti þeirra á milli frekar sem leið til þess að ýta sög­unni áfram. 

Bækur Auðar eru djúpur sjór að veiða úr. Þær eru barma­fullar af til­vís­unum, táknum, myndum og mennsku. Hér, líkt og í öðrum skáld­sögum Auðar, er sterk teng­ing við nátt­úr­una, dýr og þá sér­stak­lega fugla. Máva­plága sækir á borg­ina en máva­rnir trufla einnig sjálfs­vígs­plön sögu­hetj­unnar. Stór ljós­grár mávur eltir Logn á röndum og kemur dag­lega á opnar svalir hennar. Máva­stellið, erfða­gripur og stöðu­tákn íslenskra kvenna í gegnum árin, kemur einnig við sögu. Auður kemur inn á alls kyns mál­efni sem eru ofar­lega á baugi, svo sem stríð, banka­menn sem mis­nota aðstöðu sína, efna­hags­á­standið og áhrif þess á íbúð­ar­verð. Hún hendir inn gagn­rýni á olíu­fram­leið­endur og áhrif hlýn­unar jarðar á máva. Auður nær að lauma upp­lýs­ingum og gagn­rýni til les­enda í gegnum fal­legan og hvers­dags­legan en líka húmor­ískan texta. Sagan er að mörgu leyti lát­laus en efni hennar vegur þungt þar sem við höktum með Logni í bið­inni. Bókin er skrifuð á mik­il­vægum tíma þar sem mikið bakslag er í við­horfi til lgbtq+ fólks. Gelt er á fólk á götum úti og ofbeld­is­glæpir orðnir dag­legt brauð og ekki bara í útlöndum. 

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár