Sakaður um að gægjast á glugga hjá börnum í Garðabæ

Mál karl­manns á fer­tugs­aldri sem sak­að­ur er um blygð­un­ar­sem­is­brot í Kópa­vogi, grun­að­ur um að hafa fró­að sér í bíl sín­um í ná­grenni barna, hef­ur ver­ið sent til hér­aðssak­sókn­ara. Í byrj­un vik­unn­ar barst lög­regl­unni ný til­kynn­ing vegna ferða manns­ins í Garða­bæ sem þóttu grun­sam­leg­ar.

Sakaður um að gægjast á glugga hjá börnum í Garðabæ
Lögreglan hefur aukið eftirlit í hverfinu þar sem maðurinn sást á sunnudag og mánudag. Mynd: Lögreglan á Norðurlandi vestra

Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu hefur borist ný tilkynning um grunsamlegar mannaferðir karlmanns sem grunaður er um að hafa fróað sér í bíl á meðan börn voru í sjónmáli.

Tvær konur segja í samtali við Heimildina að hann hafa verið fyrir utan glugga á barnaherbergi í byrjun vikunnar, að morgni sunnudags og að morgni mánudags. Ung dóttir annarrar konunnar sem gerði móður sinni vart um manninn sagði: „Kannski er hann að leita að sínu barni“.

Afplánaði dóm í Bandaríkjunum

Vísir greindi frá því um miðjan september að foreldrar barna í Kársnesskóla í Kópavogi hafi fengið tölvupóst um að einstaklingur væri á ferð í vesturbæ Kópavogs „sem við viljum ekki að sé í kringum börnin okkar“. Skólastjórnendur höfðu ekki orðið varir við manninn en fannst þó rétt að vara við honum. 

Á þessum tímapunkti hafði maðurinn endurtekið sést í bifreið sinni nálægt stöðum sem börn sækja. Hann er á fertugsaldri og sat í fangelsi í Bandaríkjunum í tæp átta ár vegna kynferðisbrots gegn 13 ára stúlku. Maðurinn lauk afplánun árið 2021 og flutti eftir það til Íslands. 

Lögreglan hefur lokið rannsókn á meintu blygðunarsemisbroti mannsins í bíl hans í Kópavogi og vísað því til héraðssaksóknara sem tekur ákvörðun um hvort ákæra verður gefin út í málinu. 

Aukið eftirlit í hverfinu

Nýja tilkynningin snýst um ferðir mannsins í Garðabæ í byrjun þessarrar viku. Hann var þá í bíl sínum fyrir utan sitthvora íbúðina, annars vegar klukkan níu að morgni sunnudags og hins vegar klukkan sjö að morgni mánudags.

Mæður á þessum heimilum tóku eftir manninum og skrifuðu niður bílnúmerið sem kom heim og saman við bílnúmer mannsins sem grunaður er um blygðunarsemisbrotið í Kópavogi. Í annað skiptið hafði hann ekið bifreiðinni inn í garð sem barnaherbergið vísaði að en í hitt skiptið sást hann ganga minnst fjórum sinnum framhjá glugga barnaherbergis. Samkvæmt upplýsingum frá kynferðisbrotadeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu hefur eftirlit verið aukið í hverfinu.

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Eina íslenska kollagenið framleitt á Blönduósi
5
Nýsköpun

Eina ís­lenska kolla­genið fram­leitt á Blönduósi

Norð­an heiða, nán­ar til­tek­ið á Blönduósi, er fram­leitt eina ís­lenska kolla­genið. Um er að ræða fyr­ir­tæk­ið Prot­is sem nýt­ir sér verk­smiðju Vil­ko þar á slóð­um, en um er að ræða sömu eig­enda­hópa að miklu leyti. Það er ým­is­legt í far­vatn­inu hjá þeim, með­al ann­ars sam­starf við drykkjar­vöru­fram­leið­end­ur er­lend­is sem eig­and­inn bind­ur mikl­ar von­ir við.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár