Í furðustofu sögunnar

Í Andlitum til sýnis gerir Kristín Lofts­dóttir grein fyrir því skelfi­lega kerfi ofbeldis sem býr á bak við brjóst­mynd­irnar á Kanarísafn­inu. Hún skýrir frá sögu nýlendu­stefn­unnar og kyn­þátta­hyggj­unnar sem fylgdi henni. Bók Krist­ínar er gott yfir­lit yfir þá skelf­ingu sem leiddi okkur hingað og við­vörun gagn­vart því sem koma skal.

Í furðustofu sögunnar
Bók

Andlit til sýnis

Íslendingar og aðrir á Kanarísafninu
Höfundur Kristín Loftsdóttir
Sögufélag
328 blaðsíður
Niðurstaða:

Andlit til sýnis er greinargott og afar metnaðarfullt yfirlit yfir sögu nýlendustefnunnar og skelfilegra afleiðinga hennar. Bókin á hins vegar til að taka sér fullmikið í fang og líður fyrir það.

Gefðu umsögn

Í upp­hafi bókar lýsir höf­undur, mann­fræð­ing­ur­inn Kristín Lofts­dóttir, þeirri upp­lifun að koma inn í Kanarísafnið (El Museo Canario) á eyj­unni Gran Canaria og vera leidd inn í her­bergi sem virt­ist frosið í tíma. Her­bergið er troðið frá gólfi til rjáf­urs af munum inni í dökkum við­ar­skápum sem eitt sinn höfðu átt að tákna fram­gang vís­ind­anna og sið­menn­ing­ar­innar gagn­vart bar­barisma og van­þekk­ingu. Hér voru múm­íur frum­byggja Kanarí­eyj­anna, fornir munir horfinna sam­fé­laga og síð­ast en ekki síst, fjöldi brjóst­mynda af dul­ar­fullum, nafn­lausum ein­stak­lingum alls staðar að úr heim­inum, eða raunar ekki alls staðar, því sumir gerðu brjóst­mynd­irnar og aðrir sátu fyrir þær og engin hend­ing hver var hvað.

Eins og Kristín rekur eru brjóst­mynd­irnar hrein afurð nýlendu­stefnu Vest­ur­veld­anna sem, frá 15. öld og fram til dags­ins í dag, hafa brotið undir sig heim­inn með ofbeldi af stærð­argráðu sem erfitt er að lýsa. En her­námið sjálft var bara byrj­unin. Í sviðin fót­spor …

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
2
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár