Kambsránið með mismunandi nefjum

Þetta jóla­bóka­flóð ganga per­sónur og leik­endur úr Kambs­rán­inu, nærri 200 ára glæpa­máli, aftur í tveimur mis­mun­andi sögu­legum skáld­sögum. Þótt margt sé líkt með bók­unum eru þær þó gjör­ó­líkar, nálgun og stíll eru hvort af sinum skól­anum. Af þessum bókum að dæma er erfitt að sjá hvernig Kambs­ránið heillar svo marga sem sögu­efni.

Það er merki­lega algengt að sömu hand­rits­hug­myndir sveimi um Hollywood þannig að skyndi­lega koma tvær stór­myndir sam­tímis um nokkurn veg­inn sama efni, sama sum­arið, en það er öllu sjald­gæfara í íslenska jóla­bóka­flóð­inu, þótt vissu­lega komi fyrir að sömu hug­myndir svífi niður Lauga­veg­inn, eins og Andri Snær orð­aði það í Drauma­land­inu forðum. En þetta jóla­bóka­flóð ganga per­sónur og leik­endur úr Kambs­rán­inu, nærri 200 ára glæpa­máli, aftur í tveimur mis­mun­andi sögu­legum skáld­sögum.

„Margir hafa sagt þessa sögu en hver með sínu nefi,“ stendur snemma í bók Einars Más Guð­munds­sonar, Því dæm­ist rétt vera, og seinna kemur fram að „Um tíma var sagt að annar hver maður í Tangavík gengi með skáld­sögu í mag­anum um þessa atburði“.

Ég veit ekki hvort hann sá Ófeig Sig­urðs­son fyrir sér þegar hann skrif­aði þessar setn­ingar, en hann er að skrifa um sömu atburði í Far heimur, far sæll. Hver veit, kannski hitt­ust þeir reglu­lega …

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár