Vilja komast að sannleikanum og biðja þolendur séra Friðriks afsökunar

KFUM og KFUK hafa fengið félags­ráð­gjafa og prest til liðs við sig til að taka á móti sögum þolenda séra Friðriks Frið­riks­sonar, stofn­anda sam­tak­anna.

Vilja komast að sannleikanum og biðja þolendur séra Friðriks afsökunar
Séra Friðrik og dreng­ur­inn Friðrik Frið­riks­son stofn­aði KFUM árið 1899. Hann lést árið 1961. Nokkrum árum fyrr hafði verið reist af honum stytta við Lækj­ar­götu. Mynd: Shutterstock

KFUM og KFUK, Valur og þau félög önnur sem kennt hafa sig við séra Friðrik Frið­riks­sonar „eru fjölda­hreyf­ing fólks sem upp­lifir nú sorg,“ segir í nýrri yfir­lýs­ingu frá KFUM og KFUK vegna áreitn­is­mála sem tengj­ast séra Friðrik. Félögin vilja „horfast í augu við sögu sína, hversu sár sem hún kann að reyn­ast,“ segir enn­fremur í yfir­lýs­ing­unni. „Hluti af því er að stuðla að því sann­leik­ur­inn komi upp á yfir­borðið, meðal ann­ars svo hægt sé að biðja brota­þola afsök­unar.“

Guð­mundur Magn­ús­son sagn­fræð­ingur greinir í nýrri bók um ævi og störf séra Friðrik frá áreitni sem karl­maður sem nú er á átt­ræð­is­aldri varð fyrir af hálfu Friðriks er hann var barn. Áreitnin fólst í káfi, m.a. á kyn­færum. Maðurinn segir fleiri sem voru sam­ferða honum í starfi KFUM hafa greint frá svip­uðu.

KFUM og KFUK vilja „opna leið fyrir þá eða þau sem hafa orðið fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni eða ofbeldi af hálfu sr. Friðriks“, eða hafa beinar heim­ildir um slíkt t.d. frá nánum ætt­ingja, til að koma fram með þá reynslu sína, segir í yfir­lýs­ing­unni.  „Þekking sam­tím­ans segir okkur hve mik­il­vægt það er fyrir vel­ferð þeirra ein­stak­linga sem í hlut eiga að bera ekki slíkar byrðar í hjarta sér.“

Forysta KFUM og KFUK hefur því leitað til Sigrúnar Júl­í­us­dóttur félags­ráð­gjafa og Bjarna Karls­sonar prests um að taka á móti sögum þolenda. Bæði hafa þau langa reynslu af sál­gæslu og af vinnu með þolendum að úrlausn sinna mála. Bjarni þekkir jafn­framt til starfs KFUM og KFUK án þess að hafa gegnt neinni trún­að­ar­stöðu innan þeirra.

Samtökin segja að fyllsta trún­aðar verði gætt við þau sem til þeirra leita og að þolendum bjóð­ist jafn­framt áfram að hafa sam­band við sam­skipta­ráð­gjafa íþrótta- og æsku­lýðs­starfs sé það þeim auð­veld­ara.

Hægt er að hafa sam­band við Sigrúnu í gegnum net­fangið sigjul@hi.is eða í síma 891 7638 og við Bjarna í gegnum net­fangið bjarni@hafsal.is eða í síma 820 8865.

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár