Formaður Vals: Mál séra Friðriks „engan veginn búið“

Í fjöru­tíu ára tíð Harðar Gunn­ars­sonar í stjórnum Vals hefur hvorki orðrómur né ábend­ingar um meint níð­ings­verk séra Friðriks Frið­riks­sonar gagn­vart drengjum komið inn á hans borð. „Aldrei,“ segir hann.

Formaður Vals: Mál séra Friðriks „engan veginn búið“
Minning um mann Frið­rik­skapella var vígð á Hlíð­ar­enda árið 1993. Hún var reist í minn­ingu séra Friðriks Frið­riks­sonar. Við hana stendur einnig brjóst­mynd af Friðriki. Mynd: Facebook-síða Vals

„Nei, aldrei,“ svarar Hörður Gunn­ars­son, for­maður Knatt­spyrnu­fé­lags­ins Vals, spurður hvort að inn á hans borð, stjórnar eða ann­arra innan félags­ins hafi borist ábend­ingar eða orðrómur um að séra Friðrik Frið­riks­son hafi níðst á drengjum. Hörður hefur setið í stjórnum Vals í fjóra ára­tugi og segir engin slík mál tengd séra Friðrik nokkru sinni hafa komið upp.

Séra Friðrik kom óbeint að stofnun Vals. Árið 1911 var hald­inn fundur í les­stofu KFUM, sam­taka sem Friðrik hafði stofnað rúmum ára­tug fyrr, þar sem sex piltar er höfðu notið leið­sagnar hans, stofn­uðu Fót­bolta­fé­lag KFUM. Nafni félags­ins var breytt í Val síðar þetta sama ár. Á árunum eftir seinna stríð rofn­uðu smám saman þau tengsl sem verið höfðu á milli KFUM og Vals „en enn þann dag í dag,“ líkt og segir á heima­síðu Vals, „eru Valsmenn minnugir upp­runa félags­ins og minn­ast með virð­ingu og hlýju tengsla sinna við KFUM og séra Friðrik Frið­riks­son“.

Brjóst­mynd af séra Friðriki var reist að Hlíð­ar­enda árið 1961, sama ár og hann lést. Frið­rik­skapella að Hlíð­ar­enda var vígð árið 1993 þegar 125 ár voru liðin frá fæð­ingu hans.

Það var ald­ar­fjórð­ungi síðar, í tengslum við hátíð­ar­höld i tengslum við 150 ára afmælis séra Friðriks, sem karl­maður, þá kom­inn á efri ár, leit­aði til Stíga­móta vegna áreitni sem hann varð fyrir af hendi Friðriks er hann var barn. Atvikið sat þá enn í sálu hans, líkt og hann lýsir í nýút­kominni bók Guð­mundar Magn­ús­sonar sagn­fræð­ings um ævi og störf séra Friðriks. Að segja frá reynslu sinni, fylgdi ákveð­inn léttir, hefur Guð­mundur eftir mann­inum í bók­inni.

Hann lýsir atvik­inu með þeim hætti að eftir fund hjá KFUM á sunnu­degi hafi flokks­for­ingi leitt hann inn á stofu séra Friðriks sem var á efri hæð húss­ins við Amt­manns­stíg. Þar var hann skil­inn eftir. Hann seg­ist muna vel hvernig Friðrik fagn­aði honum, segir hann hafa seilst til sín, káfað á sér og m.a. þreifað á kyn­fær­unum. Svo hafi hann verið sóttur aftur og yfir­gefið stof­una ringlaður.

Í við­tali í bók­mennta­þætt­inum Kiljunni í síð­ustu viku sagði Guð­mundur m.a. frá þessu. Í kjöl­farið sögðu margir frá því, aðal­lega á sam­fé­lags­miðlum en einnig í fjöl­miðlum, að hátta­lag séra Friðriks gagn­vart ungum drengjum hefði verið altalað. Drífa Snædal, tals­kona Stíga­móta, greindi frá því í Kast­ljósi að fleiri en einn karl­maður hafi í gegnum árin leitað til sam­tak­anna vegna sam­skipta sinna við Friðrik og sagði hún áreitni hans hafa verið „verst geymda leynd­ar­mál Íslands­sög­unnar“.

En við það kann­ast hvorki Hörður né Tómas Ingi Torfason, fram­kvæmda­stjóri KFUM og KFUK. Hvorugur þeirra seg­ist hafa heyrt nokkuð um meint ofbeldi séra Friðriks í gegnum árin.

FormaðurHörður Gunn­ars­son, for­maður aðal­stjórnar Vals.

Hörður segir við Heim­ild­ina að hann hafi tekið eftir því að nú haldi fólk því að sögur af hegðun Friðriks hafa verið altal­aðar. „En ég heyri líka frá þeim sem standa mér nær, mönnum sem hafa verið með mér í stjórn [Vals], að þeir hafi aldrei heyrt þetta.“

Engar ábend­ingar hafa borist stjórn­inni eftir að mál séra Friðriks komust í hámæli í síð­ustu viku.

Þótt Friðrik hafi ekki haft bein eða náin tengsl inn í starf Vals á meðan hann lifði er „saga hans og okkar nátt­úr­lega sam­ofin,“ segir Hörður. Vegna þessa gaf stjórn Vals út yfir­lýs­ingu í síð­ustu viku. „Það er erfitt að lesa frá­sögn sem lýsir hegðun sem er and­stæð öllu því sem að Knatt­spyrnu­fé­lagið Valur stendur fyrir,“ sagði þar m.a. „Hugur félags­ins er hjá við­kom­andi.“

Spurður hvort að stjórnin ætli að bregð­ast eitt­hvað frekar við mál­inu segir Hörður að málið sé „engan veg­inn búið“ og að Valur sé „opinn fyrir að skoða þetta mál áfram“.  Siða­nefnd félags­ins muni m.a. fjalla um það. „Svo munum við nátt­úr­lega fylgj­ast vel með hvernig brugð­ist verður við á öðrum sviðum og hvað kemur fram við þá skoðun.“

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár