Helförin er víða

Sjónvarp & Bíó

Grænu landa­mærin / Zielona granica

Leikstjórn Agnieszka Holland
Leikarar Maja Ostaszewska, Tomasz Włosok, Behi Djanati-Atai, Mohamad Al Rashi, Jalal Altawil, Dalia Naous.
147 mínútur
Niðurstaða:

Þegar mannkynssagan ratar á hvíta tjaldið, nánast í beinni, geta ótrúlegir hlutir gerst. Fráfarandi ríkisstjórn Póllands hvatti fólk til að sjá þessa mynd ekki, það er varla hægt að fá stærra hrós en það.

Gefðu umsögn

Við sjáum nokkrar glað­legar fjöl­skyldur í flug­vél. Rétt áður en þær lenda eru þeim færðar rauðar rósir: vel­komin til Belarús! Þetta eru flótta­menn sem hefur verið lofað betra lífi í Evrópu – land­leiðin ætti jú að vera örugg­ari en sjó­leiðin og það er ekki svo langt að pólsku landa­mær­unum.

En þegar þangað kemur er þeim snúið til baka, með hörku og jafn­vel ofbeldi – og þau send aftur yfir landa­mærin. Það sama bíður þeirra hinum megin – þau eru föst í einskis­manns­landi og mega ekki einu sinni vera þar, landamæra­verðir tveggja þjóða reka þau alltaf til baka. Og þetta er norð­ar­lega í Evrópu að vetri til, það er kalt og þau eru mat­ar­laus og geta litla björg sér veitt. Þau eru föst í þessum skógi, Grænu landa­mær­unum sem tit­ill­inn vísar til.

Svart-hvít mynda­takan og ægi­fagur en óhugn­an­legur skóg­ur­inn minna um sumt á myrk­ustu tíma Evrópu – og það …

Kjósa
22
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • TM
    Tómas Maríuson skrifaði
    Í hreinskilni sagt er ég að verða þreyttur á því hvað við Evrópubúar erum gerðir vonda. Í öllum þessum hryllingi skulum við aldrei gleyma að þessi Lúkasjenkó lofar flottafólki hæli í ESB - eins og nágranni þinn mundi bjóða útigöngufólki að gista heima hjá þér.
    Auðvitað afskaplega átakanlegt fyrir þá einstaklinga sem hafa gleypt þessa lygi og er ekki hleypt inn til Pollands.
    En svo eru það landamæriverðirnir í Belarus sem leyfa þeim heldur ekki að snúa við og fara til baka, þeir sem í fyrsta lagi hafa lokkað fólkið þangað. Það vantar væntanlega þá hlið í myndina. Mætti gjarnan fylgjast með einum slíkum, hversu harðsvíraðir þeir eru.
    0
    • Ásgeir Ingólfsson skrifaði
      Það er enginn að fela neitt eða fegra hver ábyrgð Lúkasjenkó er í málinu, hvorki í þessum skrifum né í myndinni. En þetta er pólsk mynd og er skiljanlega að ávarpa pólska áhorfendur öðrum fremur.
      0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár