Pólarnir „garga á hvor annan“ í „skotgrafaumræðu“

„Stefnu­leysi“, „óstjórn“, „ógöngur“, „skrípa­leikur“, allt eru þetta orð sem þing­menn stjórn­ar­and­stöð­unnar nota um stöð­una í mál­efnum hæl­is­leit­enda hér á landi. Þeir tala um pólaríser­aða umræðu og sumir kalla eftir þverpóli­tískri sátt. Það er þó svo langt á milli flokka, bæði innan rík­is­stjórnar og utan hennar, að erfitt getur verið að ímynda sér að slík sátt geti orðið til.

Pólarnir „garga á hvor annan“ í „skotgrafaumræðu“
Hæl­is­leit­endur Frá mót­mælum venes­ú­el­skra hæl­is­leit­enda fyrir framan Alþing­is­húsið nýverið. Útlend­inga­stofnun er hætt að veita þeim öllum við­bót­ar­vernd. Mynd: Golli

„Við erum búin að vera svo upp­tekin af því að stoppa eitt­hvað hræði­legt að við höfum ekki fengið tæki­færi til þess að fara í umræð­una og svara spurn­ing­unni: Hvað viljum við gera?“ segir Arndís Anna Krist­ín­ar­dóttir Gunn­ars­dóttir, þing­kona Pírata, um mál­efni hæl­is­leit­enda hér á landi.

Fréttir af fólki sem hefur verið svipt þjón­ustu, fólki sem hefur búið hér í áraraðir þegar því er loks vísað úr landi, börnum sem þurfa að snúa aftur í erf­iðar aðstæður í heima­land­inu hafa verið dag­legt brauð fyrir íslenska fjöl­miðla­neyt­endur síð­ustu mán­uði. 

Arndís AnnaTelur nei­kvæða orð­ræðu um hæl­is­leit­endur hættu­lega.

Mála­flokkur hæl­is­leit­enda hefur sífellt stækkað og umræðan um hann hefur vaxið í takt við auk­inn fjölda sem hefur leitað hingað eftir alþjóð­legri vernd. Umsókn­ar­fjöld­inn hefur marg­fald­ast á und­an­förnum árum en umsóknir voru á bil­inu 650 til ríf­lega 1.000 á árunum 2016 …

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Kári Jónsson skrifaði
    Atvinnuleyfi á biðtímanum væri til mikilla bóta og veitum dvalarleyfi á forsendum mannúðar þ.e. fólki sem hefur verið hneppt í alskonar þrælahald.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Flóttamenn

Fá ekki að læra hér frekar en í Afganistan
FréttirFlóttamenn

Fá ekki að læra hér frekar en í Afganistan

Í Afganistan var þeim bannað að læra. Á Íslandi hafa þær mætt hindr­unum í hvert sinn sem þær hafa reynt að kom­ast í skóla. Þær þrá ekk­ert heitar en að læra íslensku, kom­ast inn í sam­fé­lagið og sækja sér háskóla­menntun. En þær eru fastar; kom­ast ekki út úr störfum sínum sem hót­el­þernur þar sem þær hafa engin tæki­færi til að þjálfa íslensk­una: lyk­il­inn að sam­fé­lag­inu.
Ágreiningurinn um útlendingamálin
Greining

Ágrein­ing­ur­inn um útlend­inga­málin

„Ég tel ekki að slík frum­vörp eigi erindi inn í þingið,“ sagði Svandís Svav­ars­dóttir. „Þar erum við inn­við­a­ráð­herra held ég ósam­mála,“ svar­aði Guðrún Haf­steins­dóttir. Þetta var gam­alt stef og nýtt, að flokk­arnir væru ósam­mála í útlend­inga­málum, en það hafði þó varla verið jafn skýrt fyrr en rétt áður en stjórnin féll, skömmu áður en Guðrún ætl­aði sér að leggja fram frum­varp um lokað búsetu­úr­ræði.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár