Norðanáttin gustar um Norðurlandið

Nýsköp­un­ar­hrað­all sem settur var á fót árið 2021 til að auka fjár­fest­ingar á Norð­ur­landi stendur nú yfir. Mikið eft­ir­spurn er eftir þátt­töku og fleiri vilja taka þátt en kom­ast að.

Norðanáttin gustar um Norðurlandið
Frum­kvöðlar Full­trúar Kvarnar, Vall­humals og Ísponicu, sem taka þátt í hraðl­inum, á vinnu­stofu á Húsavík. Mynd: ÚR vör

Nú um stundir stendur yfir nýsköp­un­ar­hrað­all­inn Startup Stormur á Norð­ur­landi. Hrað­all­inn er hluti af Norð­an­átt, en það er hreyfi­afl nýsköp­unar sem miðar að því að auka fjár­fest­ingar á svæð­inu, skapa kraft­mikið umhverfi og þétta möskvana í stuðn­ings­neti frum­kvöðla á Norð­ur­landi.

Norð­an­átt, sem hófst árið 2021, stendur fyrir fjölda við­burða á hverju ári og styðja við­burð­irnir við grænar nýsköp­un­ar­hug­myndir á ólíkum stigum. Hug­mynd­irnar eiga það svo sam­eig­in­legt að hafa skírskotun í tengsl matar, vatns og orku.

Að verk­efn­inu Norð­an­átt koma EIMUR, Samtök sveit­ar­fé­laga og atvinnu­þró­unar á Norð­ur­landi eystra (SSNE) og Samtök sveit­ar­fé­laga á Norð­ur­landi vestra (SSNV) með stuðn­ing frá umhverfis-, orku- og lofts­lags­ráðu­neyt­inu. Þá var stuðn­ings­fyr­ir­tækið RATA einn stofn­að­ili verk­efn­is­ins ásamt fyrr­nefndum aðilum.

Mikil eftirspurn

Startup Stormur er hald­inn nú í þriðja sinn. Hrað­all­inn hófst þann 4. októ­ber síð­ast­lið­inn og stendur yfir í sjö vikur, eða til 16. nóv­em­ber næst­kom­andi.

Anna Lind Björns­dóttir, verk­efna­stjóri hjá …

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár