„Afplánun tók tvö ár – Afleiðingar stóðu ævina á enda“

Beitt ljóð­ræna notuð til að kjarna mál­efni sem rýnt er í á 254 síðum í skýrslu Reykja­vík­ur­borgar um Vöggu­stof­urnar en Ljóð­sagan Vöggu­dýra­bær kemur beint inn í umræðu um Vöggu­stof­urnar alræmdu.

„Afplánun tók tvö ár – Afleiðingar stóðu ævina á enda“
Kristján Hrafn Guð­munds­son Bókin Vöggu­dýra­bær eftir Kristján Hrafn er til­einkuð móður hans og ömmu.
Bók

Vöggu­dýra­bær

Höfundur Kristján Hrafn Guðmundsson
Bjartur
88 blaðsíður
Gefðu umsögn

Ljóðsaga Krist­jáns Hrafns Guð­munds­sonar, Vöggu­dýra­bær, kemur beint inn í umræðu um Vöggu­stof­urnar alræmdu sem reknar voru á síð­ari hluta 20. aldar í Reykja­vík í þeim til­gangi að fóstra börn ein­stæðra mæðra svo þær gætu stundað launa­vinnu. Nefnd sem Reykja­vík­ur­borg setti á fót til að rann­saka starf­sem­ina komst að þeirri nið­ur­stöðu að börnin hafi sætt illri með­ferð á vöggu­stof­unum en reyndar þurfti ekki nefnd til, því sjálf höfðu mörg þeirra barna sem þarna dvöldu – og mæður þeirra – borið vitni um til­finn­inga­lega van­rækslu og grimmd­ar­legan aðskilnað barna frá móður sem skildu eftir sig óaf­má­an­leg spor.

Höfundur til­einkar móður sinni og ömmu ljóð­sög­una og ljóst er að þær mæðgur eru meðal fórn­ar­lamba slíkrar stofn­unar þótt engin gögn finn­ist lengur um tveggja ára dvöl móð­ur­innar; hún er „eyða í gögnum stjórn­valda“ og við fyr­ir­spurn berst um síðir svarið: „mál­inu hefur verið lokað“.

„Vagga ber í sér merk­ing­una líf. Von. Framtíð. …

Kjósa
17
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár