Úlfur vaknar spenntur á sólríkum morgni því hann ætlar í ævintýraferð með vinkonu sinni, henni Ylfu, og hundinum Bósa Ljóshári. Úlfur og Ylfa nýta síðan ímyndunaraflið til hins ítrasta og eiga saman skemmtilegan dag fullan af hættulegum villidýrum og árásargjörnum nammipokum.
Ævintýradagurinn er fyrst í flokki bóka fyrir yngstu lesendurna um Úlf og Ylfu og ævintýri þeirra. Markmið bókaflokksins er að „fagna fjölbreytileikanum með því að sýna hann í allri sinni dýrð“, eins og segir í bókakápu. Í þessari bók birtist fjölbreytileikinn einna helst í því að Úlfur á tvær mömmur og er það kynnt á áreynslulausan hátt í upphafi og enda bókarinnar, enda er það sennilega markmiðið: að skrifa skemmtilegar og grípandi sögur fyrir börn þar sem fjölbreytt fjölskylduform og einstakir einstaklingar eru svo sjálfsagt mál að ekki er nokkur þörf að ávarpa það neitt frekar.
Þetta tekst vel í þessari fyrstu bók enda hafa höfundar textans í mörg ár verið ötular að benda á hversu órjúfanlegur hluti hinseginleikinn er af samfélaginu og hversu ástæðulaust er að gera eitthvað sérstakt veður út af þvi. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem tvær mömmur rata inn í íslenskar barnabókmenntir en góð vísa er aldrei of oft kveðin og mikilvægt að fjölbreytileiki samfélagsins sjáist sem oftast í bókum og kannski sérstaklega þeim sem eru ætlaðar börnum.
Myndir Auðar Ýrar Elísabetardóttur eru fallegar og litríkar, flæða kringum textann og styðja söguna vel. Eitt aðalsmerki góðra myndlýsinga í barnabókum er að þær bæti einhverju við söguna, einhverjum smáatriðum sem hægt er að finna og tala um, til dæmis þegar sagan er lesin fyrir börn og slíkt má sannarlega finna í þessari bók. Ævintýradagurinn er hugljúf og skemmtileg saga sem auðvelt er fyrir börn að samsama sig við og byrja strax að hlakka til fleiri ævintýra Úlfs og Ylfu.
Athugasemdir