„Ég hef hingað til aldrei skorast undan ábyrgð“

Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir segir Bjarna Bene­dikts­syni sann­ar­lega stætt áfram sem for­manni Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Hún seg­ist sem vara­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins bera ábyrgð inn í stjórn­ar­sam­starfið og úti­lokar ekki að stíga inn í ráðu­neytið sem Bjarni var að segja sig frá

„Ég hef hingað til aldrei skorast undan ábyrgð“
Þórdís Kolbrún seg­ist sem vara­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins bera ábyrgð inn í rík­is­stjórn­ar­sam­starfið Mynd: Heimildin / Davíð Þór

Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir, vara­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og utan­rík­is­ráð­herra, segir það merki um hversu sterkur stjórn­mála­maður Bjarni Bene­dikts­son sé að hann hafi ákveðið að segja af sér ráð­herra­emb­ætti í kjöl­far álits umboðs­manns Alþingis vegna sölu Íslands­banka. 

Álitið var birt almenn­ingi í morgun og skömmu síðar boð­aði Bjarni til blaða­manna­fundar þar sem hann til­kynnti ákvörðun sína, en fimm dagar eru síðan hann fékk álitið í sínar hendur.

Ber ábyrgð inn í stjórnarsamstarfið

Umboðs­maður Alþingis komst að þeirri nið­ur­stöðu að Bjarni hafi verið van­hæfur til að að selja félagi í eigu föður síns, Bene­dikts Sveins­sonar, hlut í Íslands­banka í lok­uðu útboði sem fram fór í mars í fyrra.

„Já, það finnst mér“

Þórdís segir allt óvíst um fram­haldið en segir þó að Bjarna sé sann­ar­lega stætt áfram sem for­maður flokks­ins: „Já, það finnst mér.“

Ein af þeim hug­myndum sem hafa verið í umræð­unni er að Þórdís taki við ráðu­neyti Bjarna, fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu. 

Værir þú til­búin til þess?

„Ég er sem vara­for­maður flokks­ins í ábyrgð­ar­stöðu og ber sem slík ríka ábyrgð á inn í stjórn­ar­sam­starfið. Mér finnst skipta máli að við náum aðeins áttum og eigum þau sam­töl sem þarf að eiga en ég hef hingað til aldrei skor­ast undan ábyrgð og er ekki að fara að byrja á því núna,“ segir hún. 

Spurningar vakni við lesturinn

Bjarni ítrek­aði á blaða­manna­fund­inum að hann væri ósam­mála þeim for­sendum sem lagðar væru til grund­vallar í áliti umboðs­manns. Það breytti þó ekki þeirri póli­tísku sýn hans að virða ætti álit sem þetta

Hvert er þitt mat á áliti umboðs­manns Alþingis?

„Það vakna spurn­ingar við lest­ur­inn á því. En þú áfrýjar ekki áliti umboðs­manns Alþingis, og álit umboðs­manns stendur. Þetta er mik­il­vægt emb­ætti og þetta er nið­ur­staðan. Að því leyt­inu til þá eru þar atriði sem ég lít svo á að verði inn­legg inn í þá vinnu sem er auð­vitað fyrir löngu þegar hafin um ákveðna end­ur­skoðun á þessu fyr­ir­komu­lagi,“ segir Þórdís.

Þetta hljómar eins og þú sért ekki alveg sam­mála álit­inu?

„Bjarni reif­aði á blaða­manna­fund­inum ákveðin atriði og ég er ekki ósam­mála þeim atriðum sem hann þar reif­aði. En aftur, þá stendur þetta álit og í því eru atriði sem eru mik­il­væg að geta þá litið til og tekið mið af í þeirri vinnu sem er í gangi varð­andi end­ur­skoðun á þessu reglu­verki og umhverfi,“ segir hún. 

Þórdís benti á að nú myndu for­menn stjórn­ar­flokk­anna ræða saman og ráða sínum ráðum. 

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Afsögn Bjarna Ben

Katrín svarar því ekki hvort hún hafi hvatt Bjarna til að sitja áfram í ríkisstjórn
FréttirAfsögn Bjarna Ben

Katrín svarar því ekki hvort hún hafi hvatt Bjarna til að sitja áfram í rík­is­stjórn

For­sæt­is­ráð­herra telur langt í land með að hægt verði að ræða frek­ari banka­sölu, ólíkt frá­far­andi fjár­mála­ráð­herra sem til­tók það sem sér­stakt verk­efni nýs fjár­mála­ráð­herra, á blaða­manna­fundi for­manna stjórn­ar­flokk­anna í morgun. Stjórn­ar­flokk­arnir sömdu um vopna­hlé eftir skæru­s­umar á Þing­völlum í gær.
„Ég ætti í reynd ekki annan valkost en að sitja áfram við ríkisstjórnarborðið“
FréttirAfsögn Bjarna Ben

„Ég ætti í reynd ekki annan val­kost en að sitja áfram við rík­is­stjórn­ar­borðið“

Bjarni Bene­dikts­son frá­far­andi fjár­mála­ráð­herra telur að hann hafi ekki getað annað en að sitja áfram við rík­is­stjórn­ar­borðið, þrátt fyrir að hafa sagt af sér emb­ætti fjár­mála­ráð­herra. Með því að taka sæti utan­rík­is­ráð­herra seg­ist hann vilja auka póli­tískan stöð­ug­leika, sem sé for­senda þess efna­hags­lega.
Að selja banka í góðri trú og armslengd
GreiningAfsögn Bjarna Ben

Að selja banka í góðri trú og arms­lengd

Álit umboðs­manns Alþingis, sem sagði Bjarna Bene­dikts­son van­hæfan til að selja föður sínum hlut í Íslands­banka, efast ekki um stað­hæf­ingar Bjarna um „hreina sam­visku“ eða góða trú. Það snýr að því að Bjarni hafi ekki gætt að hæfi sínu með því að leyfa sér að taka áhættu um hvort hann væri að selja föður sínum hlut í banka eða ekki þegar hann kvitt­aði undir söl­una.
Armslengd frá stjórnarkreppu
GreiningAfsögn Bjarna Ben

Arms­lengd frá stjórn­ar­kreppu

Afsögn Bjarna Bene­dikts­sonar hefur leitt af sér glund­roða innan rík­is­stjórnar Íslands. Nú eru for­menn­irnir í kappi við tím­ann við að finna ein­hverja lausn. Sú lausn þarf að taka mið af þeim raun­veru­leika að Bjarni vill hætta í stjórn­málum. Hann er búinn með sín níu líf á því sviði, en er þó opinn fyrir að stiga burt á annan hátt til að lág­marka skað­ann fyrir rík­is­stjórn­ar­sam­starfið og Sjálf­stæð­is­flokk­inn.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár