Framlög til stjórnmálaflokka standa í stað milli ára og verða 692 milljónir

Framlög til stjórn­mála­flokka úr rík­is­sjóði voru hækkuð umtals­vert með ákvörðun sem tekin var síðla árs 2017. Sú ákvörðun hefur gjör­breytt fjár­hags­stöðu flokk­anna. Fast­eigna­þró­un­ar­verk­efni hefur sett Sjálf­stæð­is­flokk­inn í allt aðra fjár­hags­stöðu en aðra flokka. Eigið fé hans er tíu sinnum meira en fram­lagið sem hann fær úr rík­is­sjóði.

Framlög til stjórnmálaflokka standa í stað milli ára og verða 692 milljónir
Þing­setn­ing Alþingi var sett í síð­ustu viku og þing­störfin eru nú hafin af alvöru eftir langt sum­ar­frí. Mynd: Heiða Helgadóttir

Framlög til stjórn­mála­flokka úr rík­is­sjóði voru hækkuð umtals­vert með ákvörðun sem tekin var síðla árs 2017. Sú ákvörðun hefur gjör­breytt fjár­hags­stöðu flokk­anna. Fast­eigna­þró­un­ar­verk­efni hefur sett Sjálf­stæð­is­flokk­inn í allt aðra fjár­hags­stöðu en aðra flokka. Eigið fé hans er tíu sinnum meira en fram­lagið sem hann fær úr rík­is­sjóði.

Þeir stjórn­mála­flokkar sem fá fé úr rík­is­sjóði á næsta ári til að standa undir starf­semi sinni munu skipta á milli sín 692,2 millj­ónum króna, sem er sama krónu­tala og flokk­arnir fengu í sinn hlut í ár. Því lækkar fram­lagið að raun­virði milli ára. Þetta kemur fram í fjár­laga­frum­varpi næsta árs sem lagt var fram í síð­ustu viku. 

Allir flokkar sem fá að lág­marki 2,5 pró­sent atkvæða í þing­kosn­ingum eiga rétt á fram­lag­inu í sam­ræmi við það atkvæða­magn sem þeir fengu. Því fær Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn, sem fékk flest atkvæði, hæsta fram­lagið en Sós­í­alista­flokkur Íslands, sem fékk fæst atkvæði, það lægsta. 

Staða flokka gjörbreyttist með ríkisfé

Fram­lög til stjórn­­­­­mála­­­flokka úr rík­­­is­­­sjóði voru hækkuð veru­­­lega í byrjun síð­­­asta kjör­­­tíma­bils. Til­­­­­laga sex flokka sem sæti eiga á Alþingi um að hækka fram­lag rík­­­­­­­­is­ins til stjórn­­­­­­­­­­­­­­­mála­­­­­­­­flokka á árinu 2018 um 127 pró­­­­­­­­sent var sam­­­­­­­­þykkt í fjár­­­­­­­­lögum sem voru afgreidd áður en þingi var slitið í lok des­em­ber 2017. Fram­lög til stjórn­­­­­­­­­­­­­­­mála­­­­­­­­flokka á því ári áttu að vera 286 millj­­­­­­­­ónir króna en urðu 648 millj­­­­­­­­ónir króna. Fram­lögin hækk­­uðu síðan jafnt og þétt og voru 728,2 millj­­ónir króna á árunum 2020 til 2022. 

Fram­lagið var lækkað lít­il­lega, um 36 millj­ónir króna, í fjár­lögum yfir­stand­andi árs. Með því var verið að sýna lit þess efnis að stjórn­mála­flokk­arnir væru að leggja sín lóð á vog­ar­skálar þess að draga úr þenslu­hvetj­andi útgjöldum rík­is­sjóðs. 

Fjár­hagur stjórn­mála­flokk­anna hefur kúvenst eftir að þeir voru settir á fjár­lög. Eigið fé þeirra jókst sam­tals um 748,5 millj­­arða króna frá árs­lokum 2017 og til loka árs 2020, fyrst og síð­ast vegna þess­ara fram­laga. 

Þessu til stað­fest­ingar má benda á að þorri allra tekna þeirra flokka sem áttu sæti á Alþingi árið 2020 kom úr sam­eig­in­legum sjóðum. Í til­­­­­felli Flokks fólks­ins og Pírata komu 98 pró­­­sent tekna úr rík­­­is­­­sjóði eða frá Alþingi eða sveit­­ar­­fé­lög­um, í til­­­­­felli Mið­­­flokks­ins var hlut­­­fall tekna úr opin­berum sjóðum tæp­­­lega 94 pró­­­sent, hjá Vinstri grænum 92 pró­­­sent og rúm­­­lega 91 pró­­­sent tekna Við­reisnar komu úr opin­berum sjóð­­­um.

Fram­­­sókn­­­ar­­­flokk­­­ur­inn sótti 87 pró­­­sent tekna sinna á árinu 2020 í opin­bera sjóði, Sam­­­fylk­ingin 75 pró­­­sent og Sjálf­­­stæð­is­­­flokk­­­ur­inn 66 pró­­­sent. 

Töpuðu allir á kosningaári nema Sjálfstæðisflokkur

Þessi staða breytt­ist aðeins á árinu 2021, sem er síð­asta árið sem árs­reikn­ingar stjórn­mála­flokk­anna liggja fyrir vegna, en þá aðal­lega vegna breyt­inga á fjár­málum Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Hann hagn­að­ist um 227 millj­ónir króna á því ári þrátt fyrir að fram færu þing­kosn­ingar, sem eru flokk­unum afar kostn­að­ar­samar. Ástæðan er sú að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn fékk rúm­lega 340 millj­ónir króna greiddar fyrir sölu bygg­inga­réttar á lóð­inni í kringum Valhöll, þar sem unnið er að því að reisa fimm hæða skrif­stofu­bygg­ingu og fjöl­býl­is­hús með 47 íbúðum. Vegna þessa rúm­lega tvö­föld­uð­ust tekjur flokks­ins milli ára og voru 708 millj­ónir króna. Auk þess jókst virði fast­eigna í hans eigu úr 647 millj­ónum króna í rúm­lega 1,2 millj­arða króna. Þessi tekju­aukn­ing og virð­is­mats­breyt­ing gerði það að verkum að eigið fé Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sem fær um 160 millj­ónir króna úr rík­is­sjóði árlega, var komið upp í rúm­lega 1,2 millj­arða króna í lok árs 2021 og hafði auk­ist um 770 millj­ónir króna á einu ári. 

Allir aðrir flokkar sem eiga full­trúa á þingi skil­uðu tapi á árinu 2021, enda stórjuk­ust útgjöld þeirra vegna kosn­ing­anna sem fram fóru það ár. Þeim hafði þó tek­ist að safna í ansi digra kosn­inga­sjóði með rík­is­fram­lögum áranna á undan.

Tveir flokkar voru með nei­kvætt eigið fé í lok árs 2021, Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn, sem skuld­aði 26,2 millj­ónum krónum meira en hann átti, og Viðreisn, sem var með nei­kvætt eigið fé upp á 35 millj­ónir króna. Báðir hafa þó getað rétt við stöð­una í fyrra, en þá fékk Framsókn, eftir mikla fylg­is­aukn­ingu í kosn­ing­unum 2021, tæp­lega 122 millj­ónir króna í rík­is­styrk og Viðreisn um 65 millj­ónir króna.  

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • SSS
    Sigurjón Smári Sverrisson skrifaði
    Það er nú frekar grátbroslegt að það sé talað um eigið fé stjórnmálaflokkana.
    Því ekki voru eigendur (þjóðin), þess fé spurðir um hvort það væri í samræmi við vilja eigendan að gefa þetta fé til stjórnmálaflokkana.
    Eigum við ekki heldur að tala um stolið fé í höndum stjórnmálaflokkana ?
    0
  • Gudmundur Einarsson skrifaði
    "Eigið fé þeirra jókst sam­tals um 748,5 millj­­arða króna frá árs­lokum 2017 og til loka árs 2020..." Vona að hér sé talað um miljónir.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár