Með veskið Bjarni Bene­dikts­son, sem verið hefur fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra meira og minna frá árinu 2013, kynnti enn ein fjár­lögin sem hann mun mæla fyrir í vik­unni. Mynd: Heiða Helgadóttir

Fjárlagafrumvarpið á mannamáli

Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra lagði fram fjár­laga­frum­varp árs­ins 2024 í síð­ustu viku. Fáir aðrir en stjórn­ar­liðar virð­ast vera ánægðir með það. Stjórn­ar­and­staðan segir að um end­ur­tekið efni sé að ræða, verka­lýðs­hreyf­ingin segir að verið sé að hygla breiðu bök­unum og hags­muna­gæslu­að­ilar atvinnu­lífs­ins kvarta yfir nýjum álögum og skorti á skulda­nið­ur­greiðslu rík­is­sjóðs. En hver eru helstu atriðin í frum­varp­inu sem hafa áhrif á líf lands­manna?

Í fyrsta lagi verður rík­is­sjóður áfram rek­inn með halla árið 2024, líkt og hann hefur verið und­an­farin ár. Það þýðir að meiru verður eytt en rík­inu tekst að afla. Nú er áætlað að sá halli verði 46 millj­arðar króna á næsta ári. 

Tekj­urnar sem hann aflar eru áætl­aðar 1.349 millj­arðar króna en til stendur að eyða 1.395 millj­örðum króna. Útgjalda­aukn­ingin er því áætluð um 7,2 pró­sent. Þetta er meiri halli en áætl­anir gera ráð fyrir að verði á rík­is­sjóði í ár, þegar hann á að vera 41 millj­arður króna. Tapið er hins vegar miklu minna en á árunum 2021 og 2022 þegar rík­is­sjóður var rek­inn í sam­an­lögðum 305 millj­arða króna halla, vegna útgjalda­aukn­ingar og tekju­sam­dráttar út af efna­hags­legum áhrifum kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins.

Ástæða þess að hall­inn hefur dreg­ist svona mikið saman, þrátt fyrir að lítið hafi verið skorið niður, er fyrst og síð­ast sú að virð­is­auka­skattur hefur skilað miklu meiri …

Kjósa
37
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár