Ofurgróði

Danski lyfja­fram­leið­and­inn Novo Nordisk græddi á tá og fingri á fyrstu sex mán­uðum þessa árs. Gríð­ar­leg eft­ir­spurn eftir tveimur lyfjum er ástæða ofur­gróð­ans.

Ofurgróði
Insúlín og ofþyngd Lars Fruergaard Jørg­en­sen, aðal­fram­kvæmda­stjóri Novo Nordisk, sagði að það væri gaman að fagna ald­ar­af­mæli fyr­ir­tæk­is­ins með gróða upp á rúma 40 millj­arða danskar krónur á fyrri hluta þessa árs. Fyr­ir­tækið er stærsti insúl­ín­fram­leið­andi í heimi en hagn­ast einkum á lyfjum sem nýt­ast fólki í ofþyngd en hefur einnig verið notað í megrun­skyni almennt. Mynd: AFP

Það var létt yfir Lars Fruergaard Jørg­en­sen aðal­fram­kvæmda­stjóra Novo Nordisk þegar hann kynnti upp­gjör ann­ars árs­fjórð­ungs þessa árs fyrir tíu dögum. Og fram­kvæmda­stjór­inn hafði ríka ástæðu til að brosa breitt, rekst­ur­inn hefur aldrei gengið betur. Á fyrsta árs­fjórð­ungi þessa árs hagn­að­ist Novo Nordisk um 19,8 millj­arða danskra króna og um 19,4 millj­arða á öðrum árs­fjórð­ungi. Þetta jafn­gildir um það bil 760 millj­örðum íslenskra króna, eftir skatta. Fram­kvæmda­stjór­inn sagði að það væri gaman að fagna ald­ar­af­mæli fyr­ir­tæk­is­ins með þessum hætti.

Fjórmenningarnir í Toronto

Frederick Banting, Charles Best, James Collip og John Mcleod. Þessi nöfn klingja kannski ekki bjöllum en fjór­menn­ing­arnir á bak við þau eiga heið­ur­inn af því sem oft er kallað ein merkasta upp­finn­ing á sviði lækna­vís­ind­anna á síð­ustu öld, insúlín. Efninu sem gjör­breytti lífi og lífslíkum syk­ur­sjúkra. Áður en insúl­ínið kom til sög­unnar var syk­ur­sýki ban­vænn sjúk­dómur. 

Árið 1869 hafði Þjóð­verj­inn Paul Langer­hans upp­götvað eyja­frumur í bris­inu sem fram­leiddu insúl­ín­horm­ónið. Margir reyndu að ein­angra virka efnið sem brisið fram­leiðir en það var ekki fyrr en árið 1921, sem það tókst. Þeir sem það gerðu voru áður­nefndir fjór­menn­ingar sem allir störf­uðu við háskól­ann í Toronto í Kanada. Ári síðar, 1922, var efnið talið nægi­lega þróað til að hefja til­raunir hjá mönnum. 

Samið var við lyfja­fyr­ir­tækið Eli Lilly & Co um fram­leiðslu efn­is­ins. Fyrsti sjúk­ling­ur­inn sem spraut­aður var með insúl­íni var Leonard Thompson, 14 ára drengur sem var nær dauða en lífi þegar hann fékk fyrstu spraut­una. Hann lifði svo í 13 ár, en lést úr lungna­bólgu í apríl 1935.

Nóbelsverðlaunin

Upp­götvun fjór­menn­ing­anna við Toronto háskól­ann vakti mikla athygli víða um lönd. Nóbels­nefndin í Stokk­hólmi var fljót að átta sig á mik­il­vægi upp­götv­unar vís­inda­mann­anna í Kanada, og veitti árið 1923 þeim Banting og Macleod Nóbels­verð­launin í lækn­is­fræði. 

Athygli vakti að sam­starfs­manna þeirra Banting og Macleod, þeim Best og Collip, var að engu getið. Í kjöl­farið hófust miklar deilur um hverjum bæri mestur heiður af þróun lyfs­ins, þeim lauk með því að þeir Banting og Macleod deildu verð­laun­unum með Best og Collip. Nóbels­nefndin afsak­aði sig með því að hún hefði ekki haft upp­lýs­ingar um þá Best og Collip og hrein­lega ekki vitað að þeir hefðu komið við sögu. Ekki voru allir jafn­trú­aðir á þær skýr­ingar.    

Danir voru fljótir til

Eins og áður var nefnt vakti upp­götvun fjór­menn­ing­anna í Toronto mikla athygli víða um heim. Danski líf­eðl­is­fræð­ing­ur­inn August Krogh, sem hlotið hafði Nóbels­verð­launin í líf­eðlis- og lækn­is­fræði árið 1920 brá sér vestur um haf árið 1922 og kom til baka með einka­leyfi til fram­leiðslu og sölu á þessu nýja undra­lyfi (orða­lag danskra blaða) í Skand­in­avíu. 

Árið 1923 stofn­aði August Krogh ásamt eig­in­konu sinni Marie, Hans Christian Hagedorn og August Kongsted fyr­ir­tæki sem fékk heitið Nordisk Insulinla­borator­ium, síðar nefnt Nordisk Gentofte. Marie og Hans Christian voru læknar og August Kongsted lyfja­fræð­ingur. Hann hafði ásamt öðrum manni stofnað Løvens Kemiske Fabrik (heitir nú Leo Pharma) og Løvens apo­tek árið 1908. Þess má geta að Marie Krogh, sem hafði fengið syk­ur­sýki árið 1920, var meðal þeirra fyrstu sem not­uðu „danska“ insúl­ínið.  

Strax eftir að „danska“ insúl­ínið kom á mark­að­inn kom í ljós að mikil eft­ir­spurn var eftir þessu „undra­lyfi“ eins og það var stundum kallað. Árið 1930 voru dönsk insúl­ín­lyf í boði í 40 löndum.

Pedersen bræðurnir

Skömmu eftir stofnun Nordisk Insulinla­borator­ium réðst Harald Pedersen, tækni­mennt­aður vél­stjóri, til fyr­ir­tæk­is­ins og Thorvald bróðir hans skömmu síðar. Vegna ósam­komu­lags hætti Thorvald fljót­lega og Harald hætti í kjöl­farið. Þeir bræður stofn­uðu árið 1924 eigið fyr­ir­tæki Novo Ter­a­peutisk Laborator­ium, það fékk síðar heitið Novo Industri A/S. Fyr­ir­tæki þeirra bræðra og Nordisk Insulinla­borator­ium áttu í harðri sam­keppni um ára­bil og haft var eftir einum fyrr­ver­andi for­stjóra að sú sam­keppni hefði ein­ungis leitt til góðs, „það þýddi ekki að sofa á verð­inum“.

Stærsti framleiðandi insúlíns í heiminum

Saga þess­ara tveggja fyr­ir­tækja verður ekki rakin hér en árið 1989 sam­ein­uð­ust þau undir heit­inu Novo Nordisk A/S og til varð stærsti insúl­ín­fram­leið­andi í heimi. 

Novo Nordisk hefur vaxið og dafnað, aðal­á­herslan er eins og í upp­hafi fram­leiðsla insúl­íns en einnig fram­leiðir fyr­ir­tækið önnur lyf. Í dag eru starfs­menn um það bil 55 þús­und, þaraf 18 þús­und í Danmörku, þar sem höf­uð­stöðvar fyr­ir­tæk­is­ins eru. Fram­leiðslan fer fram í 16 verk­smiðjum í 8 löndum auk Dan­merkur eru verk­smiðjur í Alsír, Brasilíu, Kína, Frakk­landi, Japan, Banda­ríkj­unum og Rúss­landi (a.m.k til skamms tíma). Þróunar- og rann­sókn­ar­stofur eru í Danmörku, Indlandi, Kína, Bret­landi og Banda­ríkj­unum. Lyf sem Novo Nordisk fram­leiðir eru seld í að minnsta kosti 170 löndum.

Nýjustu mjólkurkýrnar

Þótt rekstur Novo Nordisk hafi gengið vel gegnum tíð­ina verður yfir­stand­andi ár algjört metár, ef svo fer fram sem horfir. Eins og fyrr var nefnt nemur hagn­að­ur­inn fyrstu sex mán­uði árs­ins jafn­gildi 760 millj­arða íslenskra króna. 

WegovyLyfið er ætlað fólki sem glímir við ofþyngd og vill létt­ast. Eft­ir­spurnin er svo mikil að Novo Nordisk hefur ekki undan við fram­leiðsl­una. Lyfið er ekki fáan­legt á Íslandi,

Ástæð­urnar fyrir þess­ari góðu útkomu eru einkum tvær Annars vegar lyf sem heitir Wegovy, stungu­lyf sem ætlað er fólki sem glímir við ofþyngd og vill létt­ast. Eft­ir­spurnin er svo mikil að Novo Nordisk hefur ekki undan við fram­leiðsl­una. Hins vegar er syk­ur­sýkis­lyfið Ozempic, stungu­lyf sem notað er einu sinni í viku. Ozempic er á mark­aðnum hér á landi en Wegovy er ekki, enn sem komið er, fáan­legt hér á Íslandi. 

Í umfjöllun danska útvarps­ins DR fyrir skömmu kom fram að 13 pró­sent af öllum útflutn­ings­tekjum Dana á síð­asta ári komu frá Novo Nordisk og fyr­ir­tækið er hið langstærsta í land­inu. Í við­tali við danska útvarpið sagði Lars Fruergaard Jørg­en­sen aðal­fram­kvæmda­stjóri Novo Nordisk að stjórn­endur fyr­ir­tæk­is­ins væru vel með­vit­aðir um þá miklu ábyrgð sem hvíldi á herðum þeirra í dönsku efna­hags­lífi. Hann greindi jafn­framt frá því að fyr­ir­tækið hefði tekið ákvarð­anir um áfram­hald­andi upp­bygg­ingu í Danmörku. „Við gleymum ekki upp­runanum og hér eftir sem hingað til verður Danmörk móð­ur­skipið í allri okkar starf­semi.“ 

Kjósa
16
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • SSS
    Sigurjón Smári Sverrisson skrifaði
    "Danski lífeðlisfræðingurinn August Krogh, sem hlotið hafði Nóbelsverðlaunin í lífeðlis- og læknisfræði árið 1920 brá sér vestur um haf árið 1922 og kom til baka með einkaleyfi til framleiðslu og sölu á þessu nýja undralyfi (orðalag danskra blaða) í Skandinavíu."

    Fékk August Krogh þá bara einkaleyfi í tveimur af sex af norðurlöndunum noregi og svíþjóð en ekki í sínu heimalandi danmörku ?
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Hildur segir tillögu um bókasöfn hafa verið óheppilega orðaða
4
Stjórnmál

Hildur segir til­lögu um bóka­söfn hafa verið óheppi­lega orð­aða

Hildur Björns­dóttir borg­ar­stjóri hafnar því að meiri­hlut­inn í Reykja­vík hafi þurft að bakka með áform um hag­ræð­ingu í rekstri Borg­ar­bóka­safns­ins vegna mót­mæla. „Það stendur ekki til að loka bóka­söfnum,“ segir hún. Í til­lög­unni er meðal ann­ars lagt til að skoðað verði hvort hægt sé að fækka rekstr­ar­ein­ingum og sam­eina starf­semi bóka­safna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár