Einungis þriðjungur ætlar að kjósa ríkisstjórnarflokkana sem hafa hríðfallið í vinsældum

Tveir stjórn­ar­flokka hafa tapað um helm­ingi fylgis síns það sem af er kjör­tíma­bili og sá þriðji hátt í þriðj­ungi. Sam­an­lagt fylgi allra þriggja er ein­ungis 7,1 pró­sentu­stigi yfir fylgi Sam­fylk­ing­ar­innar, sem mælist með 26,1 pró­sent. Engin tveggja flokka stjórn er mögu­leg en stærstu miðju­flokk­arnir ættu að óbreyttu marga mögu­leika á stjórn­ar­myndun.

Einungis þriðjungur ætlar að kjósa ríkisstjórnarflokkana sem hafa hríðfallið í vinsældum
For­sæt­is­ráð­herra Katrín Jak­obs­dóttir hefur leitt rík­is­stjórn Sjálf­stæð­is­flokks, Fram­sókn­ar­flokks og Vinstri grænna í bráðum sex ár. Mynd: Heiða Helgadóttir

Sam­eig­in­legt fylgi rík­is­stjórn­ar­flokk­anna þriggja er komið niður í 33,2 pró­sent sam­kvæmt nýj­ustu könnun Maskínu. Það er 7,1 pró­sentu­stigi meira en fylgi þess flokks sem mælist með mest fylgi allra um þessar mundir, Sam­fylk­ing­ar­innar, en alls sögð­ust 26,1 pró­sent aðspurðra ætla að kjósa hana sam­kvæmt könn­un­inni. Sam­an­lagt fylgi rík­is­stjórn­ar­flokk­anna hefur ekki mælst minna á þessu kjör­tíma­bili og það hefur verið undir 40 pró­sent síðan í febr­úar. Flokk­arnir þrír: Sjálf­stæð­is­flokkur, Fram­sókn­ar­flokkur og Vinstri græn, fengu sam­tals 54,4 pró­sent atkvæða eftir síð­ustu kosn­ingar og rúman meiri­hluta þing­manna. Þeir hafa því saman tapað 39 pró­sent kjós­enda sinna á þeim tæpu tveimur árum sem liðin eru frá því að kosið var síð­ast til þings. 

Stærsti flokk­ur­inn í rík­is­stjórn­inni, Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn, hefur aldrei mælst með jafn lítið fylgi í könnun Maskínu, en alls sögð­ust 17,6 pró­sent styðja hann. Flokk­ur­inn hefur nú sam­fleytt mælst með undir 20 pró­sent fylgi í mán­að­ar­legum könn­unum fyr­ir­tæk­is­ins síðan í apríl og með undir 21 pró­senti síðan í nóv­em­ber í fyrra. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn fékk 24,4 pró­sent atkvæða í síð­ustu kosn­ingum, sem fóru fram haustið 2021. Því hefur flokk­ur­inn tapað um 28 pró­sent af fylgi sínu á tæpum tveimur árum. Versta nið­ur­staða hans í kosn­ingum í sög­unni kom árið 2009, þegar hann fékk 23,7 pró­sent atkvæða. Miðað við gengi í skoð­ana­könn­unum und­an­farið stefnir í að það met verði að óbreyttu slegið. Vert er þó að minna á að næstu kosn­ingar þurfa ekki að fara fram fyrr en haustið 2025. 

Grænu flokkarnir í frjálsu falli

Staðan hjá hinum stjórn­ar­flokk­unum er enn verri. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn, sig­ur­veg­ari síð­ustu kosn­inga, hefur tapað næstum helm­ing þess fylgis sem hann fékk í sept­em­ber 2021 þegar 17,3 pró­sent atkvæða féllu flokknum í skaut. Nú segj­ast 9,2 pró­sent lands­manna telja það best að kjósa Framsókn.

Vinstri græn virð­ast pikk­föst í fall­bar­áttu stjórn­mál­anna og mæl­ast nú með 6,4 pró­sent fylgi, sem er um helm­ingur þeirra 12,3 pró­senta sem flokk­ur­inn fékk í síð­ustu kosn­ingum. Flokkur Katrínar Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra, sem var næst stærsti flokkur lands­ins eftir kosn­ing­arnar 2017 og sá þriðji stærsti eftir kosn­ing­arnar 2021, er nú ein­ungis rétt stærri en Flokkur fólks­ins, sem mælist með 5,9 pró­sent fylgi, og Sós­í­alista­flokkur Íslands, sem mælist með 4,2 pró­sent. Það þýðir að sex flokkar mæl­ast nú stærri en Vinstri græn. 

Frjálslynda miðjan í sókn

Sam­fylk­ingin hefur allt þetta ár mælst stærsti flokk­ur­inn í könn­unum Maskínu. Hún hækkar lít­il­lega milli mán­aða og yrði langstærsti flokk­ur­inn á þingi, með 8,5 pró­sentu­stigum meira en Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn, ef þetta yrði nið­ur­staða kosn­inga. Til að setja þá tölu í sam­hengi þá er fylgi Mið­flokks­ins, sem hefur ekki mælst meira það sem af er kjör­tíma­bil­inu, nú 7,9 pró­sent. Sam­fylk­ingin er sam­kvæmt þessu með meira fylgi en Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn og Mið­flokk­ur­inn sam­an­lagt. 

Píratar eru líka að hress­ast og mæl­ast með 13,1 pró­sent, sem er besta nið­ur­staða þeirra síðan í mars. Sá flokkur hefur siglt nokkuð lygnan sjó í könn­unum almennt á þessu kjör­tíma­bili en það verður að hafa þann fyr­ir­vara á að Píratar hafa til­hneig­ingu til að fá minna upp úr kjör­köss­unum en kann­anir bentu til. Samkvæmt stöð­unni eins og hún mælist nú myndu Píratar þó bæta við sig 4,5 pró­sentu­stigum frá síð­ustu kosn­ingum. 

Viðreisn er að mæl­ast aðeins hærri en hún fékk síð­ast þegar var kosið. Alls segj­ast 9,5 pró­sent aðspurðra ætla að kjósa flokk­inn en hann fékk 8,3 pró­sent. 

Engin tveggja flokka stjórn möguleg

Hin svo­kall­aða frjáls­lynda miðja, sem inni­heldur Sam­fylk­ing­una, Pírata og Viðreisn, mælist nú með 48,7 pró­sent sam­an­lagt fylgi, eða 15,5 pró­sentu­stigum meira en rík­is­stjórn­ar­flokk­arnir. Þar munar vit­an­lega lang­mest um fylg­is­aukn­ingu Sam­fylk­ing­ar­innar sem hefur bætt við sig tæpum Sjálf­stæð­is­flokki það sem af er kjör­tíma­bili, eða 16,2 pró­sentu­stigum. Þessir þrír flokkar ættu, miðað við nið­ur­stöðu könn­unar Maskínu, að geta myndað þriggja flokka stjórn saman með minnsta mögu­lega meiri­hluta. 

Engin tveggja flokka stjórn yrði mögu­leg þar sem sam­an­lagt fylgi tveggja stærstu flokk­anna, Sam­fylk­ingar og Sjálf­stæð­is­flokks, mælist ein­ungis 43,7 pró­sent sem myndi vart duga fyrir meiru en 29 þing­mönnum, en 32 þarf til að ná meiri­hluta.

Sam­fylk­ingin og Píratar, sem deila áherslum í fjölda­mörgum málum, virð­ast í góðri stöðu til að velja hvort flokk­arnir hafi hug á að mynda miðju­stjórn, starfa til vinstri eða til hægri. Saman mæl­ast þeir nú með um 26 þing­menn og vantar ein­ungis sex til við­bótar til að mynda meiri­hluta­stjórn.   

Rík­is­stjórn­ar­flokk­arnir eru, líkt og áður sagði, í óra­fjar­lægð frá því að geta end­ur­nýjað sam­starf sitt ef ósenni­legur vilji væri til þess innan raða þeirra, enda sam­eig­in­legur þing­manna­fjöldi þeirra vart meiri en 22.

Könnunin fór fram dag­ana 17. til 22. ágúst 2023 og voru 954 svar­andi sem tók afstöðu til flokks.

Kjósa
28
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár