Miklu betur borgað að gæta hagsmuna atvinnulífsins en launafólks

Fram­kvæmda­stjóri Samtaka iðn­að­ar­ins fékk rúm­lega 4,1 milljón á mán­uði fyrir hags­muna­gæslu og stjórn­ar­for­mennsku í banka á síð­asta ári. Helsti hags­muna­vörður sjáv­ar­út­vegs­ins var með hærri laun í fyrra en fram­kvæmda­stjóri Samtaka atvinnu­lífs­ins. Formaður stærsta stétt­ar­fé­lags lands­ins var með tæp­lega 40 pró­sent af launum hennar á mán­uði á árinu 2022. Heim­ildin birtir lista yfir launa­kjör helstu hags­muna­varða atvinnu­lífs og for­ystu­fólks innan verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar.

Miklu betur borgað að gæta hagsmuna atvinnulífsins en launafólks

Sigurður Hann­es­son, fram­kvæmda­stjóri Samtaka Iðn­að­ar­ins, var sá hags­muna­vörður sem fékk hæstu launa­greiðsl­urnar í fyrra. Alls voru mán­að­ar­laun hans rúm­lega 4,1 milljón króna að með­al­tali, Þó verður að taka með í dæmið að Sigurður er einnig stjórn­ar­for­maður Kviku banka og þiggur fyrir það tæp­lega 1,7 milljón krónur á mán­uði með­fram dag­vinn­unni. Hann fær því hæstu launin hjá þeim hags­muna­gæslu­sam­tökum sem deila Húsi atvinnu­lífs­ins í Borg­ar­túni.

Þar er Heiðrún Lind Mart­eins­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Samtaka fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi, efst á blaði. Laun hennar á mán­uði voru að með­al­tali tæp­lega 4,1 milljón króna. Það skil­aði henni tæp­lega 49 millj­ónum króna í launa­tekjur á árinu 2022, sem er 6,6 millj­ónum krónum meira en Halldór Benjamín Þor­bergs­son, fram­kvæmda­stjóri Samtaka atvinnu­lífs­ins á síð­asta ári, tók með heim þegar árið var gert upp. Hann þáði rúm­lega 3,5 millj­ónir króna á mán­uði fyrir störf sín. Halldór Benjamín hætti fyrr á þessu ári til að taka við starfi for­stjóra fast­eigna­fé­lags­ins …

Kjósa
21
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Hlynur Vilhjálmsson skrifaði
    Spilling atvinnulífsins.
    0
  • EÖ
    Edda Ögmundsdóttir skrifaði
    Gott að heyra að Útgerðin getur greitt framkvæmdastjóranum sínum
    mannsæmandi laun.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hátekjulistinn 2023

SagaHátekjulistinn 2023

Ójöfn­uður ósann­gjarn en samt nauð­syn­legur

Nið­ur­stöður nýlegrar rann­sóknar á við­horfum íslensks almenn­ings til ójafn­aðar og félags­legs rétt­lætis sýna að stærstur hluti almenn­ings er óánægður með tekju­ó­jöfnuð og telur ójöfnuð við­hald­ast vegna þess að hinir ríku og valda­miklu hagn­ast á honum. Sami almenn­ingur vill hins vegar ekki útrýma ójöfn­uði með öllu vegna trúar á opin tæki­færi og verð­leika.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár