Svona lítur íslenska hagkerfið út í dag

Ef tekin væri ljós­mynd af íslenska hag­kerf­inu væru á henni flug­vélar, bið­skyldu­merki og 25 ára ung­menni í von­lausri leit að sinni fyrstu fast­eign. Ör vöxtur ferða­þjón­ust­unnar vekur ugg meðal hag­fræð­inga, en fjár­mála­ráð­gjafi segir hann einnig stuðla að stöð­ug­leika krón­unnar og þeim lífs­gæðum sem Íslend­ingar búa við í dag.

Svona lítur íslenska hagkerfið út í dag

Íslenska hag­kerfið. Hvað er það, hvernig lítur það út og hver eru hreyfiöflin á bak við það? Heim­ildin reyndi að svara þess­ari spurn­ingu, nánar til­tekið hvernig hag­kerfið myndi líta út ef tekin væri ljós­mynd af því í kringum 22. ágúst 2023, rétt fyrir stýri­vaxta­á­kvörðun Seðla­banka Íslands.

Almennt er talað um að þrjár meg­in­stoðir séu und­ir­staða íslenska hag­kerf­is­ins, það eru sjáv­ar­út­vegur, álf­ram­leiðsla og ferða­þjón­ustan. Svo er fjórða stoðin allt hitt, þótt það sé von­andi að breyt­ast hratt og stoð­unum fjölgi.

Sér­fræð­ingar, sem og almenn­ingur, voru beðnir um að svara því hvað þeim finnst ein­kenna hag­kerfið núna. Svörin voru alls konar; bið­skyldu­merki, fólk að reyna að draga úr verð­bólgu, græðgi, óstöð­ug­leiki, flug­vélar að fljúga burt með Íslend­inga, 25 ára fólk á göt­unni og dýrir mat­seðlar. Út frá þessum svörum var teiknuð upp mynd af hag­kerf­inu.

Stefnuleysi hins opinbera

Gylfi Zoëga er pró­fessor í hag­fræði við Háskóla Íslands og sér­hæfir sig í …

Kjósa
17
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hátekjulistinn 2023

Ójöfnuður ósanngjarn en samt nauðsynlegur
SagaHátekjulistinn 2023

Ójöfn­uður ósann­gjarn en samt nauð­syn­legur

Nið­ur­stöður nýlegrar rann­sóknar á við­horfum íslensks almenn­ings til ójafn­aðar og félags­legs rétt­lætis sýna að stærstur hluti almenn­ings er óánægður með tekju­ó­jöfnuð og telur ójöfnuð við­hald­ast vegna þess að hinir ríku og valda­miklu hagn­ast á honum. Sami almenn­ingur vill hins vegar ekki útrýma ójöfn­uði með öllu vegna trúar á opin tæki­færi og verð­leika.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár