Fimm seldu í laxeldisfyrirtæki á Ísafirði fyrir 2,3 milljarða

Á árinu 2022 héldu ein­stak­lingar sem byggt hafa upp lax­eld­is­fyr­ir­tæki á Íslandi áfram að selja sig út úr grein­inni með miklum hagn­aði. Stór­út­gerðin Síld­ar­vinnslan kom þá inn í hlut­hafa­hóp Arctic Fish á Ísafirði og nokkrir hlut­hafar sem lengi höfðu komið að félag­inu gátu inn­leyst mik­inn hagnað.

Selja sig út úr laxeldinu með miklum hagnaði
Selja sig út úr lax­eld­inu með miklum hagn­aði Fimm hlut­hafar í lax­eld­is­fyr­ir­tæk­inu Arctic Fish á Ísafirði seldu sig sig út lax­eld­is­fyr­ir­tæk­inu Arctic Fish á Ísafirði í fyrra. Einn af þeim var einn af mönn­unum á bak við Arctic Fish, Sigurður Pét­urs­son, sem var fram­kvæmda­stjóri og helsta and­lit félags­ins út á við um ára­bil.

Á síð­ustu árum hafa ýmsir hlut­hafar lax­eld­is­fyr­ir­tækj­anna sem orðið hafa til á Íslandi selt sig út úr grein­inni með miklum hagn­aði. Þessi þróun hélt áfram árið 2022. Þá seldu stórir hlut­hafar í lax­eld­is­fyr­ir­tæk­inu Arctic Fish á Ísafirði sig út úr félag­inu þegar stór­út­gerðin Síld­ar­vinnslan á Norð­firði kom inn sem hlut­hafi. Síld­ar­vinnslan keypti 34,2 pró­sent hlut fyrir 13,7 millj­arða króna. 

Stærsti hlut­haf­inn sem seldi sig út úr Arctic Fish á þessum tíma var fyr­ir­tæki pólska kaup­sýslu­manns­ins Jerzy Malek á Kýpur. Þetta félag seldi 28,56 pró­senta hlut fyrir 11,4 millj­arða króna. Þessir fjár­munir fóru beint úr landi til kýp­versks félags Jerzy Malek, Bremesco Holding Limited, sem hagn­að­ist vel á fjár­fest­ing­unni í Arctic Fish. Malek hefur ára­langa reynslu af fjár­fest­ingum í sjáv­ar­út­vegi í Evrópu. 

Íslenskir hlut­hafar voru á bak við þann 2,3 millj­arða króna hlut í Arctic Fish sem eftir stóð. Um var að ræða fjár­fest­ing­ar­fé­lagið Novo ehf., sem meðal ann­ars …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hátekjulistinn 2023

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár